Konan í myrkrinu
Marion Pauw

Konan í myrkrinu

Fullt verð 0 kr 0 kr

Íris er ungur lögfræðingur og einstæð móðir sem reynir að fóta sig á framabrautinni samhliða því að sjá um erfiðan son sinn. Ray, sem er ekki eins og fólk er flest, er lokaður inni á stofnun eftir að hafa verið dæmdur fyrir hrottalegt morð á ungri konu og dóttur hennar. Leiðir Írisar og Rays liggja óvænt saman sem verður til þess að af stað fer atburðarás sem gjörbreytir lífi þeirra.

Konan í myrkrinu er djúp og grípandi spennusaga þar sem ekkert er sem sýnist og skyggnst er inn í hugarheim sem flestum er framandi.

Marion Pauw er drottning hollenskra spennusagna og hlaut hin virtu spennusagnaverðlaun Gullnu snöruna fyrir bókina. Nú þegar hefur verið gerð kvikmynd eftir sögunni sem hlotið hefur fjölda verðlauna og bandarísk stórmynd byggð á bókinni er í burðarliðnum.

„Áhrifamikil og grípandi spennusaga. Hugvitsamlega samansett, hrollurinn smýgur inn að beini. Frumleg, engar klisjur og málfarið hlaðið perlum.“ *****
Crimezone

„Þessi læsilega og hraða spennusaga mun halda lesendum sem voru hrifnir af Hún er horfin og Konan í lestinni föngnum fram á síðustu blaðsíðu.“
Library Journal

Konan í myrkrinu er 338 blaðsíður að lengd. Ragna Sigurðardóttir þýddi. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.


Fleiri bækur