Ný útgáfa af einni vinsælustu glæpasögu Yrsu Sigurðardóttur í tilefni af mikilli velgengni bókarinnar erlendis, ekki síst á Bretlandseyjum. Líkamsleifar finnast við uppgröft húss sem fór undir ösku í eldgosinu í Eyjum árið 1973. Grunsamlegt andlát konu í Reykjavík sumarið 2007. Og Þóra Guðmundsdóttir lögmaður glímir við spurninguna: Hvernig tengast þessi voðaverk?
„Frábærlega fléttuð – hrollvekjandi tryllir.“ **** – Daily Mirror
„Svar Íslands við Stieg Larsson.“ Daily Telegraph
„Yrsa Sigurðardóttir skapar alveg jafn hrollvekjandi andrúmsloft á eyju undir glóandi hrauni og á dimmum íslenskum vetrum eins og hún gerði í tveimur fyrri bókum sínum.“ The Times
„Heillandi sögusvið og trúverðugar persónur grípa lesandann föstum tökum – og Yrsu Sigurðardóttur tekst að halda athygli lesandans allt þar til úthugsuð fléttan leysist.“ Metro