Býfluga
Hjónin Andrew og Sarah ætla að taka sér stutt frí frá amstri daganna. Þau panta sér helgarferð í sólina en vita ekki að í Nígeríu geisar skelfileg styrjöld – hvað gerist þegar atburðir sem maður les yfirleitt bara um í blöðum eða sér í sjónvarpi henda í manns eigin lífi? Á ströndinni hitta þau unga konu, Býflugu, og verða vitni að hryllilegum atburði sem hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir þau öll þrjú.
Tveimur árum síðar bankar þessi unga kona upp hjá Söru í Bretlandi. Einmitt daginn sem bera á Andrew til grafar.
Þetta er fyrsta skáldsaga breska höfundarins, Chris Cleave, en hún rýkur nú upp metsölulista í hinum enskumælandi heim og er væntanleg á fjölda tungumála.
Þýðandi er Ásdís Guðnadóttir. Býfluga er neon-bók.
“Tvímælalaust besta bók ársins 2009 fram að þessu.” Metro
“Einstaklega læsileg og heillandi.” New York Times
“Listilega fléttuð.” Sunday Telegraph