Tími til að tengja
Bjarni Hafþór Helgason

Tími til að tengja

Fullt verð 3.500 kr Tilboðsverð 6.000 kr

Ef litlu jól er réttnefni, hversu lítil eru þau þá í raun og veru? Hvers vegna eiga hrútar svona erfitt með að festa ráð sitt?  Hvernig sigrar maður nágranna í jólaskreytingum? Má maður ekki gleðja ellihruman afa á jólum með gjöf sem er kannski ekki mjög kristileg? Hefur Andrés ekkert annað fram að færa en að vera utan gátta? Hvernig stendur á því að Adam Freyr og Mjallhvít Ósk eignuðust sjö dvergvaxna syni?

Öllum þessum knýjandi spurningum – og mörgum fleiri – svarar Bjarni Hafþór Helgason í sínu fyrsta smásagnasafni, Tími til að tengja. Bráðfyndnar sögur þar sem leiftrandi húmor Bjarna Hafþórs fær að njóta sín og kunnuglegir hlutir eru sýndir í nýju og óvenjulegu ljósi. Hér geta margir á sig brosum bætt! 
 
„Lesandinn situr orðlaus eftir – og hlær eins og vitfirringur. Ég gef þessari bók bæði stjörnur og norðurljós.“ Ragnar Ingi Aðalsteinsson

„Þær bestu eru bráðsniðugar .... Þetta er bók sem gott er að eiga, eða vita allavega af, ef maður þarf að stytta fólki stundir í jólaboði eða aðventusamkomu.“ Þorgeir Tryggvason, gagnrýnandi

„Sprenghlægileg.“ Jóhann Ólafsson, Morgunblaðinu

 


Fleiri bækur