Hálfsnert stúlka
Bjarni Bjarnason

Hálfsnert stúlka

Fullt verð 1.990 kr 0 kr

Ung kona finnst illa til reika eftir ellefu ára dvöl í afskekktum skógi í Ástralíu. Sálgreinandi fær það flókna verkefni að komast að því hvað gerðist. Í samtölum þeirra hverfur hún inn í draumkennda frásögn sem hann þarf að túlka og vinna úr. Þegar í ljós kemur hvað gerðist í raun og veru fer af stað óvænt atburðarás

 

Hálfsnert stúlka er heillandi og margslungin saga.

 

Bjarni Bjarnason hefur hlotið mikið lof og fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldsögur sínar og meðal annars verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.  Útgáfuréttur á Hálfsnertri stúlku var seldur til  Bretlands áður en hún kom út hér á landi.

 

„Einn athyglisverðasti höfundur sinnar kynslóðar á Íslandi.“ World Literature Today

 

Hálfsnert stúlka er 248 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.


Fleiri bækur