107 Reykjavík
Birna Anna Björnsdóttir og Auður Jónsdóttir

107 Reykjavík

Fullt verð 3.500 kr 0 kr

Skemmtisaga fyrir lengra komna. Hallgerður og nánustu vinkonur hennar, Melkorka, gift þumbaranum Agli Þormóði, og Þórdís, nýfráskilin og frjáls, leggja mikið upp úr því að vera leiðandi í samkvæmis- og athafnalífi Reykjavíkur. Þegar spyrst að gömul skólasystir þeirra úr MR og tíður gestur breskra glanstímarita, sjálf Stefanía Brown-Huntington, sé skilin við breska jarlinn Matthew og flutt aftur til Íslands, ríður á miklu að vinkvennaklíku Hallgerðar takist að ná henni til sín.

Þannig hefst fjörmikill, spennandi og ærslafengin atburðarás um reykvíska samtíð þar sem grátbroslegar persónur, raunverulegar sem ímyndaðar, mæta galvaskar til leiks í fyndinni og hárbeittri háðsádeilu.

„Þessi bók er eiginlega þerapía  maður emjar af hlátri. ... Fyndnasta bók ársins.“ Sigmundur Ernir Rúnarsson, Bókahorninu á Hringbraut

„Hreint út sagt frábær paródía ... ekki hægt annað en hlæja upphátt.“ Steingerður Steinarsdóttir, Vikunni

 

„Öskurhló oft!“ Kamilla Einarsdóttir rithöfundur

„Ég sá þessar litríku og margbrotnu persónur strax fyrir mér lifna við fyrir framan kvikmyndavélarnar!“ Inga Lind Karlsdóttir framleiðandi

„Þessi satíríska ærslasaga úr samtímanum fær mig bæði til að langa í tikka masala og fleiri sögur um ást á pöbbnum.“ Þóra Hallgrímsdóttir lögfræðingur


 


Fleiri bækur