Ótemjur
Kristín Helga Gunnarsdóttir

Ótemjur

Fullt verð 2.500 kr Tilboðsverð 4.000 kr

Amma Fló deyr á þrettán ára afmællisdegi Lukku. Hún þarf því að flýja skuggaverurnar, koma sér burt úr Hyldýpinu og gera sínar eigin áætlanir. Lukka tekur stefnuna á Benidorm og dreymir um að temja höfrunga. En þá þarf hún að komast burt sem laumufarþegi. Það er ekki einfalt því í hana toga dularfullir skagfirskir kraftar.

Ótemjur er örlagasaga um leitina að öryggi, ást og uppruna.

Kristín Helga er einn vinsælasti rithöfundur landsins og bækur hennar hafa hlotið margvísleg verðlaun og tilnefningar.

„Heillandi saga af sársauka, bata og endurreisn sem situr með lesandanum löngu eftir að lestri lýkur.“ Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðinu

„Mikið persónugallerí… Þessi bók er svo góð með mikið af litríkum persónum ... Ég væri alveg til í að sjá kvikmyndina.“ Egill Helgason, Kiljunni


Fleiri bækur