Veðurfræði Eyfellings – greinargerð um veður og veðurmál undir Eyjafjöllum
Bjartur

Veðurfræði Eyfellings – greinargerð um veður og veðurmál undir Eyjafjöllum

Fullt verð 2.990 kr 0 kr

Höfundur tileinkar Veðurfræði Eyfellings – greinargerð um veður og veðurmál undir Eyjafjöllum foreldrum sínum og  gamla fólkinu í Vallnatúni, þeim sem kenndu honum að tala íslenskt mál og gáfu honum orðaforða. 

Þessi merkilegi vitnisburður um íslenska tungu kom út árið 1979, og sendi Nóbelsskáldið Halldór Laxness höfundi þakkarbréf og áletraða bók í hrifningu sinni. Bókin hefur lengi verið ófáanleg en kemur nú út að nýju, með viðbótum, nýrri orðaskrá og eftirmála höfundar.

Þórður Tómasson hefur um langt skeið safnað minjum um horfna menningu og starfshætti. Auk þess að skrifa fjölda greina og bóka hefur hann byggt upp byggðasafnið í Skógum undir Eyjafjöllum.

 198 bls


Fleiri bækur