Orð, krydd og krásir
Sigrún Óskarsdóttir og Krisín Þóra Harðardóttir

Orð, krydd og krásir

Fullt verð 990 kr 0 kr

Í þessari áhugaverðu og glæsilegu bók sækja matgæðingarnir Sigrún Óskarsdóttir og Kristín Þóra Harðardóttir hugmyndir að spennandi og girnilegum réttum á söguslóðir Biblíunnar. Hráefnið er hins vegar úr íslenskri náttúru til sjávar og sveita. Sá matur sem borinn er hér á borð er einfaldur og heilsusamlegur en um leið kitlandi og framandi. Krydd, litir, bragð, gleði og fjölbreytni eru í öndvegi og áhersla er lögð á að skapa ánægjulega stemningu við veisluborðið.

 Þær Sigrún og Kristín Þóra töfra hér fram ómótstæðilega rétti sem freista, seðja og gleðja í senn.

 „Himneskar uppskriftir og sérlega bragðgóð skemmtun að fletta þessari matreiðslubók.“  Sigurlaug M. Jónasdóttir, matgæðingur

 Orð, krydd & krásir er 169 blaðsíður að lengd. Lóa Auðunsdóttir og Birna Geirfinnsdóttir hönnuðu innsíður og kápu. Sigurjón Ragnar sá um ljósmyndun og myndvinnslu. Bókin er prentuð í Odda.


Fleiri bækur