Bjartur / Veröld

Der goldene Ring und die blaue Lagune

Fullt verð 990 kr 0 kr

Der goldene Ring und die blaue Lagune eftir Gunnstein Ólafsson er í ritröðinni Island – Kurz und gut. Bókina prýða myndir eftir marga af fremstu ljósmyndurum þjóðarinnar.

Der goldene Ring und die blaue Lagune vísar veginn um vinsælustu ferðamannastaði Íslands. Þar gefur að líta fegurstu náttúruperlur landsins og helstu sögustaði þjóðarinnar. Farið er um hrjóstrugar heiðar, blómleg héruð og kraumandi jarðhitasvæði, yfir ár og hjá stöðuvötnum og fossum, horft til eldfjalla og jökla, auk þess sem sjónum er beint að ýmsum merkum mannvirkjum á leiðinni.

Hér er með myndum og stuttum skýringatextum á þýsku sagt frá merkilegum stöðum á suðvestanverðu Íslandi þar sem fellur saman í eitt stórfengleg náttúra, þjóðtrú og saga. Bókin kemur einnig út á ensku undir titlinum The Golden Ring and Blue Lagoon í ritröðinni Iceland – Cool and Crisp en í henni hefur einnig komið út bókin Reykjavík á ensku og þýsku.

Báðar útgáfurnar eru í innbundnu formi og er hvor um sig 94 blaðsíður að lengd. Bókarkápur og innsíður hannaði Bergdís Sigurðardóttir en bækurnar eru prentaðar í Danmörku.


Fleiri bækur