Upplausn
Sara Blædel og Mads Peder Nordbo

Upplausn

Fullt verð 2.500 kr Tilboðsverð 3.800 kr

Á fallegum sumardegi er Charlotte, móðir tveggja ungra barna, á leið úr ræktinni í skólann þar sem hún vinnur í friðsælum smábæ á eyjunni Fjóni. Nokkrum mínútum síðar er hún horfin sporlaust á þessari stuttu leið.

Þegar Charlotte hefur ekki skilað sér morguninn eftir verður fljótlega ljóst að glæpur hefur verið framinn. Á nokkrum dögum er öll eyjan undirlögð í rannsókninni og fólk fer að halda sig innan dyra af ótta við að verða næsta fórnarlamb. Lögregluforingjarnir Liam og Dea eru í kapphlaupi við tímann að reyna að leysa málið þar sem fólk deyr kvalafullum dauðdaga án þess að lögreglan fái við nokkuð ráðið.

Hér leggja saman krafta sína tveir höfundar í fremstu röð.

Sara Blædel er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Dana og koma bækur hennar út víða um heim. Og bækur hennar fara ævinlega rakleitt efst á metsölulista á Íslandi.

Mads Peder Nordbo vakti mikla athygli með bók sinni Flúraða konan sem kom út á íslensku fyrir nokkrum árum.

„Spennandi glæpasaga sem flæðir vel, plottið er margþætt og persónugalleríið fjölskrúðugt. Ég mæli eindregið með Upplausn!“ Yrsa Sigurðardórttir


Fleiri bækur