 
                
        
          Johanna Basford
        
        
          
          
          
          
              
          
          
        
      
    Týnda hafið
            Fullt verð
            
              490 kr
            
            
              
              
            
          
          
          
            Í Týnda hafinu er boðið í ferðalag um töfraheima undirdjúpanna. Þetta er ný og glæsileg teikni- og litabók eftir höfund metsölubókarinnar Leynigarður.
Hér býður Johanna Basford í ævintýraferð um ótrúlega neðansjávarveröld. Hér má finna vöður af framandi kóralfiskum, forvitnum smokkfiskum og stórkostlegum sæhestum. Einnig má heimsækja kóralrifið, skoða gamalt skipsflak og finna fjársjóðskistu sjóræningjanna sem falin er bak við bylgjandi sæfífla hafsins.
Johanna Basford er nú orðin heimsþekktur teiknari og dáð af þeim ótalmörgu sem þegar hafa litað töfraheima fyrri bókar hennar: Leynigarður.
 
                   
               
               
              