 
                
        
          Signý Kolbeinsdóttir og Margrét Örnólfsdóttir
        
        
          
          
          
          
              
          
          
        
      
    Tulipop – Mánasöngvarinn
            Fullt verð
            
              1.499 kr
            
            
              
              
            
          
          
          
            Á ævintýraeyjunni Tulipop er allt úr skorðum. Ókunnug skuggajurt birtist um nótt og hafið er alls ekki sjálfu sér líkt. Sveppasystkinin Búi og Gló verða að bjarga málum, því á Tulipop er allt best nákvæmlega eins og það er og hefur verið. Þau fá hjálp frá vinum sínum sem búa yfir ýmsum hæfileikum, og síðast en ekki síst himintunglunum, sem allt vita.
Tulipop er sköpunarverk Signýjar Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur. Í Mánasöngvaranum glæðir verðlaunahöfundurinn Margrét Örnólfsdóttir íbúa eyjunnar lífi í skemmtilegu ævintýri.
 
                   
               
               
              