Þrautgóðir á raunastund 1950-1975
Steinar J. Lúðvíksson

Þrautgóðir á raunastund 1950-1975

Fullt verð 3.999 kr Tilboðsverð 7.499 kr

Á árunum 1950-1975 unnu björgunarmenn við strendur Íslands mörg frækileg afrek - en engu að síður fórst fjöldi sjómanna á þessum árum. Hér er fjallað um 58 hrikaleg sjóslys frá þessu tímabili. 

Í bókinni segir meðal annars frá því er Grindavíkingar björguðu með ævintýralegum hætti mönnum af breska togaranum Preston North End og þeirri hetjudáð þegar skipbrotsmönnum af togaranum Agli rauða var bjargað í aftakaveðri undir Grænuhlíð. Þá er í bókinni frásögn af baráttu áhafnar Þorkels mána upp á líf og dauða við að halda skipinu ofansjávar í Nýfundnalandsveðrinu fræga þegar ísing varð þess valdandi að 30 íslenskir sjómenn fórust og fjallað er ítarlega um þá ógnaratburði er áttu sér stað snemma árs árið 1968.

Frásagnirnar eru margar hverjar í senn skelfilegar og stórbrotnar. Sjómenn og björgunarmenn þurftu að berjast við óblíð náttúruöflin eins og þau gerast illvígust með búnaði sem í dag þykir æði frumstæður. 

Steinar J. Lúðvíksson er höfundur stórvirkisins Þrautgóðir á raunastund sem á sínum tíma kom út í nítján bindum og naut fádæma vinsælda. Hér hefur hann safnað saman einstökum frásögnum úr því mikla verki. 


Fleiri bækur