Þegar hún hló
Katrín Júlíusdóttir

Þegar hún hló

Fullt verð 7.000 kr 0 kr

Umdeild fjölmiðlakona finnst myrt úti á Granda eftir að hafa hlaupið í Reykjavíkurmaraþoni. Þrátt fyrir mannfjöldann eru engin vitni að atburðinum og morðið virðist óvenju fagmannlega útfært. Hin unga lögreglukona, Sigurdís, er kölluð til liðs við rannsóknina, en um leið dregur til tíðinda í máli er tengist dauða föður hennar.

Katrín Júlíusdóttir tekur hér upp þráðinn úr bók sinni Sykur, sem fékk góða dóma og hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn. Sykur kom út í Bretlandi og fékk glimrandi viðtökur.

„Heldur lesandanum föngnum … og endalokin eru jafn myrk og íslensk vetrarnótt.“ Nordic Watchlist (um Sykur)

„Eftir að hafa lesið sögu [Katrínar], Sykur, kemur ekki á óvart að hún hafi fengið spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn í ár ...vel skrifuð spennusaga og sérlega góð áminning, ekki síst til þeirra sem eiga að fara með valdið í opinberri stjórnsýslu. ... að loknu góðu dagsverki fær [Sigurdís] sér ónefndan drykk. Það getur Katrín Júlíusdóttir svo sannarlega líka gert eftir útkomu þessarar bókar.“ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu

„Heldur háu og hrífandi tempói allt fram á lokasíðu.“ Már Másson Maack, bokmenntir.is

„Sykur er bók sem erfitt er að leggja frá sér eftir að lestur hefst. ... Afbragðsgóð fyrsta glæpasaga höfundar og fannst margt frumlegt í sögunni.“ 1/2 Sæunn Gísladóttir, Lestrarklefinn.is

„Frábær bók.“ Gurrí Haraldsdóttir, Vikunni


Fleiri bækur