Strákar sem meiða
Eva Björg Ægisdóttir

Strákar sem meiða

Fullt verð 3.800 kr Tilboðsverð 6.000 kr

Maður finnst myrtur í sumarbústað í Skorradal. Á veggnum fyrir ofan hann hafa verið skilin eftir blóðug skilaboð.

Elma glímir hér við sérlega erfitt mál sem teygir anga sína víða um samfélagið og tugi ára aftur í tímann – ekki síst eftir að gömul dagbók ungs drengs finnst. Og á Akranesi er fólk sem vill alls ekki að sannleikurinn komi í ljós.

Hinn myrti var um fertugt og var banað með fjölmörgum hnífstungum. Elma er nýkomin úr fæðingarorlofi þegar hún fær þetta flókna mál í fangið.

Á meðan er Sævar heima í fæðingarorlofi með dóttur þeirra Elmu. Hann finnur kassa frá fyrri eigendum íbúðarinnar sem þau eru nýflutt úr þar sem meðal annars er að finna afar athyglisverða dagbók sem ungur drengur hélt á tímabili eitt sumarið í fortíðinni.

„Enginn glæpasagnaunnandi verður svikinn af þessari nýjustu bók Evu Bjargar. Hún vheldur allt fram á lokasíðurnar forvitni lesandans um lausn gátunnar og afdrif sögupersónanna og mun leggjast vel í þá sem hafa gaman af snörpum, norrænum reyfurum.“ Bára Huld Beck & Símon Vestarr, Stundinni

„... hlýtur að snerta hvern einasta lesanda ... vel skrifuð og athyglisverð, frásögnin spennandi ...“ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu

„ ... gríðarlega spennandi og hélt bókin mér allan tímann ... stórkostlega vel gert ... Það er óhætt að segja að Eva Björg sé búin að skipa sér sess meðal okkar fremstu glæpasagnahöfunda.“ Jana Hjörvar, Lestrarklefinn.is

 


Fleiri bækur