Stóri maðurinn
Hún framdi morð – en hver var fórnarlambið?
1990: Fjórar stúlkur eltast við skugga í skóginum.
2000: Ung móðir, Sadie Banner að nafni, hverfur sporlaust skömmu eftir að hafa fætt dóttur sína, Amber.
2016: Sadie birtist skyndilega á heimili sínu og fjölskyldan sameinast á ný.
2018: Kvikmyndagerðarmenn vilja komast að sannleikanum um Amber Banner. Þessi dularfulla unga kona var ákærð fyrir morð en sýknuð. Hvaða skuggar eru yfir henni? Og er hún í raun og veru saklaus?
Mögnuð, dularfull og æsispennandi skáldsaga sem um þessar mundir er að slá í gegn út um allan heim.
„Sagan er svo mögnuð að ég þorði ekki að lesa hana ef ég var ein heima.“
The Observer
„Sumartryllirinn í ár!“
Daily Express
„Grípandi blanda af sálfræðitrylli og hrollvekjandi spennusögu.“
Crimetime