Snerting - kilja
Ólafur Jóhann Ólafsson

Snerting - kilja

Fullt verð 3.500 kr 0 kr

Kristófer hyggst loka veitingastað sínum í miðbæ Reykjavíkur vegna veirunnar, eftir áratuga farsælan rekstur. Sama dag berst honum óvænt vinarbeiðni á Facebook – og tíminn nemur staðar. Það er líkt og áratugirnir gufi upp og hann hverfi aftur um fimmtíu ár, standi við læstar dyr um morgun í London – þegar hann uppgötvaði að þau voru farin.

 

Hann leggur af stað í ferð yfir þveran hnöttinn. Og um leið heldur hann á vit minninga um ástir, fornar og nýjar, leynd og eftirsjá eftir því sem hefði getað orðið, hugsjónir og veruleika, en undir kraumar spurning sem hefur leitað á hann í hálfa öld: Hvers vegna fóru þau án þess að kveðja?

Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er áhrifamikil skáldsaga sem gerist í Reykjavík og Tókýó samtímans og London á sjöunda áratugnum. Hér sýnir hann allar sínar bestu hliðar í glæsilega skrifaðri sögu sem rígheldur lesanda allt til óvæntra endaloka.

Snerting til tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og sagði dómnefndin um bókina: 
„Í Snertingu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er dregin upp sannfærandi mynd af samfélaginu og aðstæðum fólks af ólíkum uppruna. Nútíð og fortíð er listilega fléttað saman þannig að úr verður skáldsaga sem skiptir máli.“

„Snerting er án efa ein af bestu bókum Ólafs Jóhanns. Frásögnin er meitluð og hófstillt en líka grípandi og flæðir afskaplega vel.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu

„Ofboðslega sterk saga sem hreyfði mjög mikið við mér.“ Sverrir Norland, Kiljunni

Heillandi skáldsaga sem er óskaplega fallega skrifuð. ... Maður vill ekki hætta að lesa ... örugglega ein af bestu bókum Ólafs Jóhanns – örugglega ein af bestu skáldsögum ársins.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni

„Heillandi bók sem snertir lesandann og hreyfir við honum.“ Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðinu

„Höfundi [tekst] á snilldarlegan hátt að grípa tíðarandann en jafnframt segja stórfenglega og fallega sögu. ... Ólafur Jóhann Ólafsson hefur sent frá sér fjölda góðra skáldsagna og er Snerting meðal þeirra betri sem ég hef lesið eftir hann. Hún heldur manni alveg við lesturinn, en það gerir hana sérstaklega góða hvað hún skilur mikið eftir sig.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️1/2 Sæunn Gísladóttir, lestrarklefinn.is

„Það er erfitt annað en að hrífast með ... Eins og vel smíðuð hæka segir Snerting stærri sögu en virðist við fyrstu sín og sleppir lesandanum ekki auðveldlega.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir, Víðsjá

„Skrifuð af einstakri næmni og hlýju. Þetta er falleg saga. Steingerður Steinarsdóttir, Vikunni

Undurfalleg bók og mjög áhrifamikil. Snerti mig djúpt.“  Silja Aðalsteinsdóttir

„Meiriháttar bók. Meistaraverk.“ Gísli Helgason

„Ég er algjörlega heilluð af Snertingu. Tær fegurð og besta bók Ólafs Jóhanns.” Sirrý Arnardóttir

Dásamleg bók. Mæli með henni.“ Gísli Marteinn Baldursson


 


Fleiri bækur