Málleysingjarnir
Pedro Gunnlaugur Garcia

Málleysingjarnir

Fullt verð 3.500 kr Tilboðsverð 6.000 kr

Rúmenía 1989: Mihail er ellefu ára, einrænn rúmenskur piltur sem býr við þröngan kost í Búkarest þegar forsetahjónin eru tekin af lífi í þjóðfélagsbyltingu. Algjör ringulreið ríkir - sem hefur mikil áhrif á fjölskyldu og allt hans umhverfi. 
Ísland 2000: Unglingarnir Bergþóra og Finnur eru samrýnd systkini þótt ólík séu, hún luraleg og félagsfælin en hann á hraðri leið ,,í gráðugan faðm vaxandi klámfíknar." Heimili þeirra er í upplausn, foreldrarnir á barmi skilnaðar en leita leiða til að láta hlutina ganga upp. 
Í þessari viðamiklu skáldsögu segir frá ungu fólki í flóknum og um sumt fjandsamlegum heimi, en um leið er umbrotaskeiði lýst í fjörmikilli frásögn sem einkennist í senn af frjóu ímyndunarafli og sterkri tilfinningu fyrir sérkennum fólks og sögu.

Málleysingjarnir, sem er fyrsta bók Pedros Gunnlaugs Garcia, er óvenjulegt skáldverk í íslenskum bókmenntum og má með sanni segja að hér kveði við nýjan tón. Sagan hlaut Nýræktarstyrk Miðstöfðvar íslenskra bókmennta árið 2017 með afar lofsamlegri umsögn.

„Þetta er saga sem nær bæði að vera ótrúlega þroskað byrjendaverk og líka ungæðislegt ... skrifað af feikilegu öryggi. ... rosalega mögnuð bók.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljunni

„Það tekst ekki allt í henni, en það besta er brilljant.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljnni

„Vel heppnað verk sem lofar mjög góðu sem fyrsta skáldsaga höfundar með nýjar og spennandi hugmyndir.“ ⭐️⭐️⭐️1/2 Óttar Kolbeinsson Proppé, Fréttablaðinu

„Hér [eru] sjónarhorn sem sannarlega eru nýstárleg og forvitnileg; og það er ekki á hverjum degi sem ungur höfundur kemur fram með svo metnaðarfulla fyrstu skáldsögu, stóra í sniðum og með nánast öll eilífðarmálin undir. Honum hlýtur því að fyrirgefast að færast fullmikið í fang fyrir það hugrekki og frásagnarkraft sem hann sýnir með þessari fyrstu bók sinni, það verður spennandi að sjá það sem síðar kemur.“ Gauti Kristmannsson, Víðsjá, Rás 1


Fleiri bækur