Lífið er staður þar sem bannað er að lifa – Bók um geðröskun og von
Steindór Jóhann Erlingsson

Lífið er staður þar sem bannað er að lifa – Bók um geðröskun og von

Fullt verð 4.000 kr Tilboðsverð 4.500 kr

Eftir þrjátíu ára leit að bata tókst Steindóri Jóhanni Erlingssyni loksins að snúa vörn í sókn í baráttu sinni við ægivald þunglyndis og kvíða. Allan þennan tíma hefur þessi geðröskun fylgt honum sem áleitinn skuggi. Baráttan hefur verið ströng og oft tvísýn. Stundum hefur vonleysið og löngunin til að binda enda á lífið borið hann ofurliði. Í þrígang reyndi hann að ganga alla leið.

Hér fjallar Steindór á einlægan hátt um glímu sína, hvernig hann hefur leitað að haldreipi í bókmenntum og hugsuðum fyrri tíma, heimsótt geðlækna, tekið geðlyf, legið inni á geðdeildum og unnið með meðferðarhópum utan heilbrigðiskerfisins. En það var ekki fyrr en hann fór að skoða áföll í fortíðinni að bataferlið hófst.

Einstök bók um mann sem þurfti að ferðast um djúpan dal lungann úr ævi sinni en hefur nú endurheimt lífið.

Steindór er doktor í vísindasagnfræði og höfundur einnar bókar, auk fjölmargra fræði- og blaðagreina.

„Mjög áhugaverð frásögn af þeim innri og ytri hremmingum sem fylgja alvarlegri geðröskun.“ Gyrðir Elíasson

„Stórmerkileg frásögn af glímu  við þunglyndi, stóráföll og sjálfsvígshugsanir." Egill Helgason


Fleiri bækur