Játning - kilja
Ólafur Jóhann Ólafsson

Játning - kilja

Fullt verð 3.800 kr 0 kr

Tveir íslenskir námsmenn, Elísabet og Benedikt, kynnast í Leipzig skömmu fyrir hrun múrsins. Þau fella hugi saman en líf þeirra tek- ur óvænta stefnu þegar yfirvöld fara að sýna þeim áhuga. Áratugum síðar neyðist Elísabet skyndilega til að minnast þessara löngu liðnu daga sem hún vill síst af öllu rifja upp.

Játning eftir Ólaf Jóhann Ólafsson var ein mest selda bók ársins 2022. Þetta er stórbrotin skáldsaga um ást og minningar, heilindi og svik, fjölskyldusambönd og hverfulleika, um sannleika og lífslygi, og þær ákvarðanir sem við stöndum frammi fyrir á ögurstundum lífsins.

„Heillandi saga ... hrífandi, tónninn léttur og leikandi og atburðarásin spennandi.“ SNÆDÍS BJÖRNSDÓTTIR, MORGUNBLAÐIÐ

„Fallega skrifuð, það er auðvelt að lifa sig inn í hana og hún verður hjartnæm undir lokin.“ KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, VIÐSKIPTABLAÐIÐ / FRJÁLS VERSLUN

„... hvetur lesandann áfram í órólegri forvitni.“ SALKA GUÐMUNDSDÓTTIR, STUNDIN

 


Fleiri bækur