          Mats Strandberg og Sara B. Elfgren
        
    Hringurinn – kilja
            Fullt verð
            
              999 kr
            
              Englafoss er fallegt bæjarnafn en smábærinn er dauðanum merktur. Hann er umkringdur skógum þar sem menn villast oft og hverfa. Nótt eina þegar tunglið er óeðlilega rautt draga óútskýrðir kraftar sex stúlkur sem eru nýnemar í menntaskóla inn í yfirgefinn skemmtigarð.
Skólabróðir þeirra hefur nýlega fundist látinn. Allir halda að hann hafi framið sjálfsmorð. Nema þær sem þekkja sannleikann. Stúlkurnar eiga fátt sameiginlegt og hafa ekki hugmynd um hvað leiddi þær inn í niðurnídda garðinn. En frá þessari stundu er tilvistin í skólanum upp á líf og dauða. Þær verða að finna og sigra illt afl sem reynir að ná valdi á þeim. Þær verða að standa saman og berjast til að lifa af.