Hlaðan – Þankar til framtíðar
Bergsveinn Birgisson

Hlaðan – Þankar til framtíðar

Fullt verð 5.500 kr 0 kr

Bergsveinn Birgisson ákveður að endurbyggja hlöðu forfeðra sinna á Ströndum sem er komin að hruni. Það fær hann til þess að hugsa um heiminn og stöðu mannsins í honum. Hann fer að skrifa bréf til dóttur sinnar, rifjar upp hugmyndir manna í fortíðinni um hvernig best sé að haga lífinu, um leið og hann tekst á við hin daglegu verkefni við endursmíð hlöðunnar, og freistar þess sömuleiðis að horfa til framtíðar. Þá fléttast Strandamenn, lífs og liðnir, inn í frásögnina, sumir koma í heimsókn en aðrir rétta hjálparhönd. Útkoman verður því ferðalag um tíma og rúm, andlegt sem raunverulegt, í bók sem er engri annarri lík. 

Bergsveinn Birgisson er einn vinsælasti og virtasti rithöfundur landsins og bækur hans koma út um allan heim. Meðal þeirra má nefna verðlaunabækurnar Leitin að svarta víkingnum, Þor­ móður Torfason, Landslag er aldrei asnalegt og Svar við bréfi Helgu.

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

„Stórmerkileg bók um afar hraða og afdrifaríka samfélagsþróun og enginn ætti að láta fram hjá sér fljóta ólesna, einkar lipurlega skrifuð.“ Sölvi Sveinsson, Morgunblaðið

„Las af áfergju, skrifað af yfirvegun og ekki predik­ andi, hugsa að ég lesi ekki bók sem hefur meiri áhrif á mig í ár en þessi.“ Sverrir Norland, Kiljan

„Rosalega skemmtilegur leiðangur.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljan

„Bókin er skrifuð af miklu mannviti og fádæma yfirsýn eins og vænta mátti, alvarleg tilraun um manninn, leit að mennskunni og því hvernig má á ný tjasla því saman sem brotið er og sundrað.“ Guðmundur Andri Thorsson

„Tvímælalaust áhugaverðasta bók þessa hausts.“ Þröstur Helgason, Bændablaðið

„Bók sem á erindi við okkur öll ... óskandi væri að allir ráðamenn þjóðarinnar fengju þessa bók og læsu.“ Gauti Kristmannsson, Rúv


Fleiri bækur