Hjarta Íslands - Frá Eldey til Eyjafjarðar
Páll Stefánsson og Gunnsteinn Ólafss.

Hjarta Íslands - Frá Eldey til Eyjafjarðar

Fullt verð 9.999 kr 0 kr

Hjarta Íslands – Frá Eldey til Eyjafjarðar er afar veglegt rit um gersemar náttúru Íslands frá Reykjanesi, um Vestfirði og til Norðurlands. Hér er meðal annars fjallað um perlur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, töfra Snæfellsness, eyjarnar á Breiðafirði, friðlandið á Hornströndum og stórbrotna dali Tröllaskaga.

Gunnsteinn Ólafsson fléttar saman í lifandi texta náttúru, sögu, þjóðtrú og bókmenntum, svo úr verður einstök mynd af lífríki og mannlífi á Íslandi í yfir 1100 ár.

Bókina prýða stórkostlegar myndir Páls Stefánssonar sem hann tók sérstaklega fyrir þetta mikla verk, bæði á jörðu niðri og úr lofti.

Höfundar bókarinnar gjörþekkja náttúru Íslands. Gunnsteinn hefur um áratuga skeið farið með ferðamenn um landið og Páll myndað það fyrir bækur og tímarit heima og erlendis í yfir þrjátíu ár. Þeir hlutu mikið lof fyrir bók sína Hjarta Íslands – Perlur hálendisins sem út kom árið 2018.

„Kannski fallegasta bók þessa hausts. ... Konfekt ... aldeilis dásamleg bók ... ofboðslega gaman að dýfa sér í hanan ... Fyrir utan ægifagrar myndir Páls er mikill fróðleikur í bókinni og maður kynnist sjarma og dulúð svæðanna mjög vel ... 315 myndir í bókinni og hver annarri tilkomumeiri.“ Sigmundur Ernir Rúnarsson, Bókahorninu á Hringbraut

„Einstaklega vel heppnuð bók, forvitnileg, skemmtileg og falleg. ... áhugaverð viðbót í bókasafn farðfræðiáhugamannsins en þarna er líka að finna konfektmola fyrir ljóðaunnendur, þjóðsagnaaðdáendur og landafræðigrúskara.“ – Steingerður Steinarsdóttir, Vikunni


Fleiri bækur