Heim fyrir myrkur
Eva Björg Ægisdóttir

Heim fyrir myrkur

Fullt verð 4.000 kr Tilboðsverð 6.300 kr

BESTA ÍSLENSKA GLÆPASAGAN 2023!

Heim fyrir myrkur hlaut Blóðdropann – Íslensku glæpasagnaverðlaunin!

Hin 14 ára Marsí skrifast á við strák sem býr hinum megin á landinu. En hún gerir það í nafni systur sinnar. Bréfaskiptunum lýkur með því að þau ákveða að hittast. Marsí kemst ekki til að hitta hann en þar sem þau höfðu mælt sér mót finnst blóðug úlpa systur hennar sem er horfin. Tíu árum síðar hefur þessi óþekkti pennavinur samband á ný.

Bækur Evu Bjargar Ægisdóttur koma nú út á um tuttugu tungumálum um allan heim við frábærar undirtektir. The Times valdi Ég sé þig ekki sem bestu glæpasögu júlímánaðar 2023, Financial Times valdi hana sem eina af fimm bestu glæpasögum sumarsins og eina vikuna átti Eva þrjár af 22 mest seldu bókunum í Frakklandi. Þá hlaut Marrið í stiganum Gullrýtinginn í Bretlandi sem besta frumraun ársins. Strákar sem meiða var tilnefnd til Blóðdropans – Íslensku glæpasagnaverðlaunanna 2022.

„Heim fyrir myrkur er grípandi sálfræðitryllir sem erfitt er að leggja frá sér. Andrúmsloft óhugnaðar og dulúðar er listilega byggt upp og grunsemdum og efa sáð jöfnum höndum í huga lesanda. Sögusviðið er lifandi og vel er unnið úr sögulegum atburðum í bakgrunni frásagnarinnar. Þessi samfélagslegi vinkill, sem snertir á sögu vistheimila á Íslandi, er fléttaður við fjölskyldudrama og hversdagslíf ungs fólks í borgfirsku dreifbýli upp úr miðri síðustu öld og úr verður sannfærandi og afar spennandi frásögn með fjölbreyttu og breysku persónugalleríi. Frásagnaraðferðin er áhugaverð og ísmeygilega unnið með fyrstu persónu sjónarhorn söguhetju sem berst við að ráða í atburði, drauma og flókinn veruleika í nútíð og fortíð um leið og lesandinn berst við hrollinn sem læðist að honum og grípur hann sífellt fastari tökum.“ Umsögn dómnefndar um Blóðdropann – Íslensku glæpasagnaverðlaunin

„Það sem mér fannst sterkast í þessari bók er þetta andrúmsloft sem Eva dregur upp þarna á heimilinu. ... Persónusköpunin virkilega flott ... hver persónan á fætur annarri sem ég tortryggði sem er mjög gott í krimma. Besta bók Evu Bjargar.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni

„Fléttan er býsna haganlega gerð ... vendingarnar eru vel settar saman og andrúmsloftið mjög magnað. ... Spennandi og fullnægjandi lausnir. Besta bók Evu Bjargar.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljunni

 

„Æsispennandi." Dóra Júlía Agnarsdóttir, vísir.is


Fleiri bækur