 
                
        
          Margrét Örnólfsdóttir
        
        
          
          
          
          
              
          
          
        
      
    Aþena – að eilífu, kúmen!
            Fullt verð
            
              2.990 kr
            
            
              
              
            
          
          
          
            Að fermast eða ekki fermast, það er spurningin. En Aþena hefur ekkert val, hún á óuppgerða skuld við Guð sem hún þarf að gangast við. Að öðru leyti stefnir allt í rólegan vetur en þegar hún kynnist Snæju, fjörugum ofurhuga, tekur lífið skyndilega nýja stefnu.
Og spurningin verður: Ræður Aþena við hraðann? Er hún tilbúin fyrir stráka með bílpróf, telpur með kjaft og foreldralaus partí?
Með samviskuna á annarri öxlinni og púkann á hinni reynir Aþena að fóta sig í þessum nýja og ögrandi heimi. Og svo er það þessi blessaða spurning sem hún bara finnur ekkert svar við: Hver er ég?
 
                   
               
               
              