Það kemur alltaf nýr skafl í fjallið
Eyþór Árnason

Það kemur alltaf nýr skafl í fjallið

Fullt verð 5,500 kr 0 kr

Eyþór Árnason hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabók sína árið 2009. Það kemur alltaf nýr skafl í fjalliðer áttunda ljóðabók hans.

Í glugganum stendur

hvít símakúla sem Jónas frá Hriflu skrúfaði í

baðstofuþilið á bænum í heiðinni

Ég held að búálfurinn

hafi fylgt með kúlunni suður

því þegar ég legg eyrað að postulíninu

heyrist stundum í honum tuðið

Ég segi honum að hafa sig hægan

og bið ömmu afsökunar á að liggja

á línunni enda sé ég bara

að forvitnast um sprettu í grasaheiðinni


Fleiri bækur