Ævisaga
„Fáum dögum síðar skrifar Steindór afi minn mömmu í Noregi að amma mín hafi loks ákveðið að segja mér tíðindin og hann sé viss um að það hafi verið eins vel gert og hægt var miðað við aðstæður.“
Í opinskárri ævisögu sinni veitir Geir einstaka innsýn í baksvið stjórnmálanna, meðal annars mánuðina örlagaríku haustið 2008, og er óhætt að segja að þar komi ýmislegt á óvart. Hann fjallar einnig ítarlega og gagnrýnið um landsdómsmálið.
Geir skrifar af einlægni um einkalíf sitt, uppvöxt í Vesturbæ Reykjavíkur, MR og námsár í Bandaríkjunum en einnig dramatíska atburði úr æsku sem hann hefur aldrei rætt opinberlega áður, þar á meðal viðkvæm fjölskyldumál.
Geir styðst við margvísleg gögn úr sínu einkasafni – sendibréf, tölvupósta, símskeyti, smáskilaboð, minnisblöð og dagbækur en einnig myndir. Fæst af því hefur áður komið fyrir almenningssjónir.
„ýtarleg og vandlega unnin ... Það ber með sér karaktereinkenni auðmýktar sem sjaldséð er í íslenskri og jafnvel alþjóðlegri pólitík og gerir söguna áhugaverða. ... nauðsynleg sagnfræðileg heimild ... vönduð, skemmtileg.“ Ásgeir Brynjar Torfason, Heimilidinni
„Sætir tíðindum ... vönduð að allri gerð.“ Ólafur Arnarson, hringbraut.is