Ástin, trú og  tilgangur lífsins
Bjartur & Veröld

Ástin, trú og tilgangur lífsins

Fullt verð 14.990 kr 0 kr

Í tilefni af sjötugsafmæli Sigurðar Árna Þórðarsonar þann 23. desember 2023 er bókin Ástin, trú og tilgangur lífsins gefin út. Þetta er glæsileg stórbók með íhugunum hans helstu kennidaga ársins. Sigurður Árni hefur starfað sem prestur og fræðimaður og verið einn kunnasti kennimaður Íslendinga síðustu áratugi. Hann flutti prédikanirnar í þessari bók í Neskirkju og Hallgrímskirkju á árunum 2003–23.

Vandað er mjög til útgáfunnar og býr Ragnar Helgi Ólafsson hana til prentunar. Sigurður Árni hefur starfað sem prestur og fræðimaður og verið einn kunnasti kennimaður Íslendinga síðustu áratugi. 

Bókin er einkar aðgengileg og er auðvelt að fletta upp í henni. 

Eftir stúdentspróf frá MR hóf hann nám í Noregi en lauk guðfræðinámi á Íslandi frá HÍ. Hann lauk doktorsprófi í guðfræði og hugmyndasögu frá Vanderbiltháskóla í Tennessee í Bandaríkjunum. Í doktorsritgerðinni skrifaði hann um myndmál í trúarhefð Íslendinga. Sigurður Árni hefur starfað sem rektor Skálholtsskóla, fræðslustjóri þjóðgarðsins á Þingvöllum, háskólakennari og verkefnisstjóri guðfræði og þjóðmála á Biskupsstofu. Hann hefur verið prestur í Ásaprestakalli, Staðarfellsprestakalli, Neskirkju og Hallgrímskirkju.

„Í mínum huga má líka líkja þessi bók við matreiðslubók. Það er gaman að skoða hana, fá hugmyndir, hlakka til veislunnar sem er fram undan og í bígerð og tengslunum sem eru nærð þegar fólk mun sitja saman til borðs. Ef menn leggja sig fram getur postillan Ástin, trú og tilgangur lífsins orðið uppskriftabók að sjálfri hamingjunni.“ Elínborg Sturludóttir, Kirkjublaðið


Fleiri bækur