Saga Keflavíkur 1949-1994
Árni Daníel Júlíusson

Saga Keflavíkur 1949-1994

Fullt verð 12.500 kr 0 kr

Saga Keflavíkur á árunum 1949 til 1994 er ólík sögu allra annarra sveitarfélaga á Íslandi á sama tímabili. Þar hefur koma varnarliðsins árið 1951 grundvallarþýðingu. Nálægð bæjarins við herstöðina og margvísleg samskipti við bandaríska herinn settu mark sitt á þróun atvinnulífs og menningar í Keflavík. Uppbygging herstöðvarinnar og síðar stækkun alþjóðaflugvallarins á Miðnesheiði sköpuðu mikla atvinnu og átti sinn þátt í því að sjávarútvegur lagðist nánast af í bænum við lok tímabilsins.

En lífið í Keflavík snerist þó ekki aðeins um her, flugvöll og brauðstrit. Í bænum blómstraði menningin þar sem tónlist skipaði stóran sess, enda Keflavík oft verið nefnd Bítlabærinn.

Í þessu fjórða bindi af sögu Keflavíkur er fjallað um tímabilið frá því að hún varð sjálfstætt bæjarfélag og þar til hann sameinaðist Njarðvík og Höfnum og úr varð sveitarfélagið Reykjanesbær árið 1994.

Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur er höfundur bókarinnar og er textinn í senn aðgengilegur og grípandi. Bókina prýðir að auki fjöldi ljósmynda sem bregða lifandi ljósi á liðna tíð og auka enn á gildi verksins.


Fleiri bækur