Hvað nú? - Myndasaga um menntun
Halldór Baldursson

Hvað nú? - Myndasaga um menntun

Fullt verð 3.800 kr Tilboðsverð 5.500 kr

Halldór Baldursson, einn snjallasti teiknari landsins og þjóðkunnur fyrir skopmyndir sínar í Fréttablaðinu, lauk meistaranámi í listkennslufræðum í vor. Lokaritgerð hans er ein sú alskemmtilegasta því þar fer Halldór í myndasöguformi yfir skólagöngu sína og menntun og skoðar hvernig myndasagan getur nýst við að koma þekkingu og fróðleik á framfæri.

Umsögn prófdómara:

Verkefnið í heild sinni er bæði framúrskarandi áhugavert og gagnrýnið. Höfundur notar kímni og afar greinandi huga í að skoða eigin skólagöngu og kennslu með tilliti til þess sem hann hefur kynnst í gegnum nám sitt við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands.
Hann nýtir heimildir og skrif annarra fræðimanna af natni og innsæi og nær að draga fram eigin skilning á fræðunum til að upplýsa eigin ályktanir af reynslu sinni.
Sérstaklega er áhugavert að höfundur leitar til samferðafélaga sinna í grunnskóla til að reyna að staðfesta eigin minningar. Þar kemur í ljós veikleiki mannlegs minnis. Manneskjan ver sig með gloppóttu valkvæðu minni og leyfir oftast bara eigin útgáfu að fljóta á yfirborðinu.
Þrátt fyrir þetta er myndasagan sem fylgir greinargerðinni mjög heildstæð og gagnrýnin á bæði eigin þátttöku höfundar í grunnskólanámi og líka hvaða áhrif samferðafólk og umhverfi hafði á hann. Svo koma gagnrýnar sviðsmyndir þar sem höfundur skoðar eigin kennslu út frá kenningum annarra fræðimanna og niðurstaðan er verulega hressandi sjálfsrýni.
Halldóri tekst með þessu verkefni að færa kennslufræðilegar starfendarannsóknir á annað stig og mun verkefnið vera hvatning fyrir menntavísindin í heild sinni til naflaskoðunar og minnir vel á að í gegnum kímni getum við nálgast auma kvikuna sem býr milli raunverulegrar upplifunar og fræðilegra skilgreininga á athöfnum mannskepnunnar.

Úr umsögn leiðbeinanda:
Verk Halldórs er framúrskarandi vel unnið í alla staði og honum hefur tekist með einstökum hætti að skoða hefðbundnar kenningar í menntavísindum frá nýjum og ferskum sjónarhóli auk þess að afhjúpa fræðilegar klisjur og fastmótuð viðhorf til skólastarfs og menntunar. Formgerð verksins þar sem áherslan er lögð hina myndrænu framsetningu og beittan húmor er sérstaklega til þess fallin að hvetja til opinnar samfélagsumræðu um menntun þar sem lesendum gefst kostur á að segja eigin skólagöngu og barna sinna í samhengi. Þannig má segja að með verkinu geti Halldór náð til mun stærri lesendahóps heldur en hefðbundin fræðileg umræða um menntun getur gert.
Halldór sýnir með verkinu framúrskarandi hæfni sem fræðimaður og hugsuður á sviði menntavísinda. Í því ljósi vil ég hvetja Halldór til að finna leiðir til að gefa verkið út og ná þannig til stærri lesendahóps. Ég vil ennfremur hvetja Halldór til að halda áfram á sömu braut og teikna fleiri myndasögur þar sem unnt væri að skoða flókin álitamál í menntaumræðu samtímans.


Fleiri bækur