Friðbergur forseti
Árni Árnason

Friðbergur forseti

Fullt verð 2.500 kr Tilboðsverð 4.000 kr

Friðbergur forseti hefur náð völdum á Íslandi á vafasömum forsendum, búinn að reka sendiherra Bandaríkjanna úr húsnæi sínu við Engjateig og hefur sjálfur komið sér þar fyrir. Systkinin Sóley og Ari og skólafélagar þeirra eru ekki sérlega upptekin af þessu en þegar vinum þeirra, Iman og Nabil, hefur verið vísað úr landi bara fyrir það eitt að vera útlendingar er þeim nóg boðið. 
Þannig hefst hetjuleg barátta þeirra við Friðberg forseta. En skömmu síðar fara börn að hverfa og svo virðist sem einhver hryðjuverkasambök standi á bak við það. 
Friðbergur forseti er fyndin, hugljúf og spennandi saga um kraftmikla krakka sem þora að hafa hátt og berjast gegn ranglæti - fyrir betra samfélag.

„Ég efast ekki um að margir krakkar muni lesa bókina í einum rykk á aðfangadagskvöld enda getur verið ákaflega erfitt að leggja spennandi og skemmtilegar bækur frá sér áður en þeim lýkur.“  ⭐️⭐️⭐️⭐️1/2 Jóhann Ólafsson, Morgunblaðinu

„Ævintýraleg spennusaga ... skemmtileg bók.“ Guðrún Baldvinsdóttir, Kiljunni

„Snjöll og brýn og ævintýrið er spennandi.“ Þorgeir Tryggvason

„Árni Árnason kemur inn á ritvöllinn með látum. Friðbergur Forseti er æsispennandi barnabók sem allir krakkar ættu að hafa gaman af. Spennan er óbærileg undir lokin.“ Gunnar Helgason


Fleiri bækur