Annabelle
Lina Bengtsdotter

Annabelle

Fullt verð 2.300 kr Tilboðsverð 3.400 kr

Hin 17 ára Annabelle hverfur í smábænum Gullspång í vesturhluta Svíþjóðar. Hún sást síðast á leið úr partíi. Lögreglan er ráðalaus í kastljósi fjölmiðla.

Lögreglukonan Charlie Lager er send frá Stokkhólmi til að veita aðstoð – til smábæjarins sem hún yfirgaf fjórtán ára að aldri og ekki að ástæðulausu. 

Klukkan tifar. Charlie verður að finna stúlkuna og koma sér síðan burt eins fljótt og hún getur. Áður en allir uppgötva sannleikann um hana sjálfa …

Lina Bengtsdotter fékk verðlaun fyrir Annabelle sem bestu frumraun ársins í Svíþjóð 2017 og bókin kemur nú út um allan heim við gríðarlegar vinsældir. Hún er hin nýja stjarna á meðal sænskra glæpasagnahöfunda.

„Snilldarlega skrifuð og þétt glæpasaga.“ Dagens Nyheter, Svíþjóð

„Annabelle var kjörin besta frumraunin á sviði glæpasagna í Svíþjóð. Það er mjög skiljanlegt. Stíllinn er léttur og fágaður. Persónusköpunin er frábær, frásögnin er keyrð áfram og er blæbrigðarík. Sagan tekur nokkrum sinnum óvænta stefnu sem bæði kemur á óvart og kýlir mann kaldan.“ ***** Dagbladet, Noregi

„Spennusaga sem fylgir manni lengi á eftir.“ Sunday Times Crime Club 


Fleiri bækur