Lói – Þú flýgur aldrei einn
Bjartur

Lói – Þú flýgur aldrei einn

Fullt verð 2.499 kr 0 kr

Óvænt atvik verða til þess að lóunginn Lói verður eftir þegar langbesta vinkona hans, Lóa Vera, flýgur suður um höf með hinum farfuglunum um haustið. Lói er staðráðinn í að berjast fyrir lífi sínu og hitta Lóu Veru aftur um vorið. Hann lendir í ýmsum hremmingum og þarf að kljást við ótal ógnir; fálkann Skugga og fleiri rándýr sem vilja koma honum fyrir kattarnef og ekki síst ískaldan heimskautaveturinn. Með hjálp nýrra vina tekst honum hið ómögulega – og meira en það!

Í framleiðslu er alþjóðleg stórmynd eftir þessari spennandi og hugljúfu sögu. Hún kemur úr smiðju þeirra sömu og gerðu Þór – Hetjur Valhallar sem er mest sótta íslenska kvikmyndin utan landsteinanna. Bókin kemur einnig út með enskum texta og ber þá titilinn Ploey – You never fly alone.

Lói – þú flýgur aldrei einn er 64 blaðsíður að lengd. Bókin er prentuð í Slóveníu.


Fleiri bækur