Ekkjan
Fiona Barton

Ekkjan

Fullt verð 2.499 kr 0 kr

Líf Jean Taylor var þægilega hversdagslegt. Hún bjó í fínu húsi og átti ástríkan eiginmann, Glen. En allt breyttist þegar hann var útmálaður sem skrímsli á forsíðum blaðanna. Skyndilega var Jean gift manni sem virtist vera fær um hrikaleg illivirki. Var hún meðsek? Eða eiginkonan sem ekkert vissi? Var Glen sekur um það sem allir eru sannfærðir um að hann hafi gert?

En nú er Glen látinn og Jean getur loksins sagt söguna alla.

„Grípur mann heljartökum.“ Independent

„Barton stenst allar væntingar … Frábærlega dregnar persónur drífa söguna áfram sem heldur manni föngnum.“ The Washington Post

„Þeir sem hrifust af Hún er horfin munu sannarlega njóta þess að lesa þennan skothelda sálfræðitrylli.“ US Weekly


Fleiri bækur