Svarti sauðurinn
Augusto Monterroso

Svarti sauðurinn

Fullt verð 0 kr 0 kr

,,Ég varð stuttorður af að lesa Proust,“ sagði Augusto Monterroso, en hann skrifaði einkum stutta texta: smásögur, örsögur, ritgerðir, aforisma, orðaleiki, hugleiðingar, gamanmál, dagbókarbrot og ekki síst fabúlur eða dæmisögur.  

Monterroso (1921-2003) var frá Guatemala en skrifaði flest verk sín í Mexíkó. Hann var sjálfmenntaður, og einn fróðasti og víðlesnasti bókmenntamaður Rómönsku-Ameríku. Fyrsta verk hans Heildarsafn (og aðrar sögur) kom út árið 1959, en þar birtist hans þekktasta smásaga, sem hljóðar svo: ,,Þegar hann/hún vaknaði var risaeðlan enn þarna.“ 

Kristín Guðrún Jónsdóttir þýddi og ritaði eftirmála.


Fleiri bækur