{"product_id":"sagan-hefst-her","title":"Sagan hefst hér","description":"\u003cp\u003eSagan hefst hér – hjá Ben Foley. Hann er rekinn úr alþjóðlega menntaskólanum í Strassborg. Hann fer heim til sín með skottið á milli lappanna en þá eru foreldrar hans horfnir, blóð á eldhússkápnum og hans bíður miði með undarlegum skilaboðum frá móður hans sem lýkur á: Ekki hringja á lögregluna! \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBen veit ekki sitt rjúkandi ráð, hefur engan til að leita til og engan sem hann getur treyst. Til að bæta gráu ofan á svart er hann grunaður um að hafa myrt foreldra sína. Þeir sem eiga sök á því eru núna á eftir honum og vilja fá eitthvað sem hann hefur í fórum sínum. Ben veit aftur á móti ekki hvað það er. Það eina sem hann veit er að foreldrar hans voru ekki það fólk sem hann hélt að þau væru. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKevin Wignall hefur skrifað fjölmargar spennusögur sem selst hafa í milljónum eintaka. Sagan hefst hér er fyrsta bók hans sem kemur út á íslensku.  \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Frábær spennutryllir sem ég mæli sannarlega með; hröð atburðarás, áhugaverðar persónur og óvæntar vendingar.“ Yrsa Sigurðardóttir\u003c\/p\u003e","brand":"Kevin Wignall","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45119300141256,"sku":"kw","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/SaganhefstherFRAMAN_jpg.jpg?v=1781775787","url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/products\/sagan-hefst-her","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}