{"product_id":"ljosfadir","title":"Ljósfaðir","description":"\u003cp\u003eJónas í Hróarsdal í Skagafirði var bóndi, yfirsetumaður og hafði auk þess formlegt leyfi til lækninga þótt sjálfmenntaður væri. Til hans lá straumur sjúkra, lemstraðra og þunglyndra sem dvöldu á heimilinu í von um bata – sumir lengi. Rúmföstum gömlum manni er honum í mun að miðla þekkingu sinni til þriðju eiginkonunnar, Lilju. Hún sinnir lækningunum með honum og annast að mestu hinn misleita hóp sjúklinga, auk þess að stýra búinu. En viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi, Jónas yngri, tvídklæddur og „myndarlegri en djöfullinn sjálfur“ kemur til dvalar í Hróarsdal – og erfiðar spurningar um tilvist, sekt og ábyrgð verða ekki lengur umflúnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðrún Eva Mínervudóttir hefur hér skrifað áhrifamikla skáldsögu sem er „fleytifull af sannleika, hundrað ára gömlum hviksögum, munnmælum, staðreyndum og söguburði“ eins og hún orðar það í eftirmála. Guðrún Eva er í fremstu röð íslenskra rithöfunda, síðasta bók hennar, Í skugga trjánna, var hlaðin lofi og varð ein mest selda bók ársins 2024.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„JÓNAS JÓNSSON. HANN EIGNAÐIST 33 BÖRN MEÐ ÞREMUR KONUM. EN HANN VAR LÍKA LJÓSFAÐIR SEM HJÁLPAÐI MÖRG HUNDRUÐ BÖRNUM Í HEIMINN. LANGALANGALANGAFI MINN.“ Í skugga trjánna, Guðrún Eva Mínervudóttir (2024).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Enn einu sinni sannar Guðrún Eva sig sem einn besti stílisti landsins ... ein magnaðasta bók síðari ára.“ MENNINGARVEFUR RÚV\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þetta er svo vel skrifað og af mannskilningi og visku.“ EGILL HELGASON, KILJUNNI\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Eva Mínervudóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45233340317896,"sku":"gem11","price":7000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Ljosfadir.jpg?v=1792097080","url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/products\/ljosfadir","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}