{"product_id":"jorunn-vidar-aevisaga","title":"Jórunn Viðar – ævisaga","description":"\u003cdiv class=\"book-description mb-5 bt-5 overflow-hidden\"\u003e\n\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eJórunn Viðar var fyrsta íslenska konan sem sótti háskólamenntun í tónsmíðum, hún braut blað sem tónskáld og átti glæstan feril sem píanóleikari. Þó var henni margt mótdrægt. Viðtökur á verkum hennar lituðust oft af því að hún var kona og í hjónabandinu fann hún sjaldan þá hvatningu eða skilning sem hefði getað fleytt henni lengra á listabrautinni.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eJórunn Viðar var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi á 20. öld. Hér er saga hennar sögð í fyrsta sinn og byggir Árni Heimir Ingólfsson verkið að miklum hluta á óprentuðum gögnum sem aldrei hefur verið vitnað til áður, meðal annars fjölda sendibréfa. Fjallað er um æskuárin í Reykjavík, námsár í Berlín rétt fyrir síðari heimsstyrjöld og í New York á stríðsárunum og þá glímu sem við tók eftir að heim til Íslands var komið. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem hvergi hafa birst opinberlega.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁrni Heimir Ingólfsson er tónlistarfræðingur og píanóleikari. Hann hefur þrívegis verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir verk sín og sömuleiðis í þrígang verið tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJórunn Viðar – ævisaga er tímamótaverk um eina af merkustu tónlistarkonum Íslands á 20. öld.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003caside id=\"book-binding-types\"\u003e\u003c\/aside\u003e","brand":"Árni Heimir Ingólfsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45228561170632,"sku":"ahi2","price":7500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/JorunnVidarFRAMAN_jpg.jpg?v=1791292381","url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/products\/jorunn-vidar-aevisaga","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}