{"product_id":"hladan-thankar-til-framtidar-1","title":"Hlaðan – Þankar til framtíðar","description":"\u003cp\u003eBergsveinn Birgisson ákveður að endurbyggja hlöðu forfeðra sinna á Ströndum sem er komin að hruni. Það fær hann til þess að hugsa um heiminn og stöðu mannsins í honum. Hann fer að skrifa bréf til dóttur sinnar, rifjar upp hugmyndir manna í fortíðinni um hvernig best sé að haga lífinu, um leið og hann tekst á við hin daglegu verkefni við endursmíð hlöðunnar, og freistar þess sömuleiðis að horfa til framtíðar. Þá fléttast Strandamenn, lífs og liðnir, inn í frásögnina, sumir koma í heimsókn en aðrir rétta hjálparhönd. Útkoman verður því ferðalag um tíma og rúm, andlegt sem raunverulegt, í bók sem er engri annarri lík. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBergsveinn Birgisson er einn vinsælasti og virtasti rithöfundur landsins og bækur hans koma út um allan heim. Meðal þeirra má nefna verðlaunabækurnar Leitin að svarta víkingnum, Þor­ móður Torfason, Landslag er aldrei asnalegt og Svar við bréfi Helgu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Stórmerkileg bók um afar hraða og afdrifaríka samfélagsþróun og enginn ætti að láta fram hjá sér fljóta ólesna, einkar lipurlega skrifuð.“ Sölvi Sveinsson, Morgunblaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Las af áfergju, skrifað af yfirvegun og ekki predik­ andi, hugsa að ég lesi ekki bók sem hefur meiri áhrif á mig í ár en þessi.“ Sverrir Norland, Kiljan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Rosalega skemmtilegur leiðangur.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Bókin er skrifuð af miklu mannviti og fádæma yfirsýn eins og vænta mátti, alvarleg tilraun um manninn, leit að mennskunni og því hvernig má á ný tjasla því saman sem brotið er og sundrað.“ Guðmundur Andri Thorsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Tvímælalaust áhugaverðasta bók þessa hausts.“ Þröstur Helgason, Bændablaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Bók sem á erindi við okkur öll ... óskandi væri að allir ráðamenn þjóðarinnar fengju þessa bók og læsu.“ Gauti Kristmannsson, Rúv\u003c\/p\u003e","brand":"Bergsveinn Birgisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45119299518664,"sku":"bb10k","price":5500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/HLADANkilja2026FRAMAN.jpg?v=1781775348","url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/products\/hladan-thankar-til-framtidar-1","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}