Dansað við björninn
Roslund & Thunberg

Dansað við björninn

Fullt verð 1.990 kr 0 kr

rír bræður bindast órjúfanlegum böndum eftir að móðir þeirra flýr ofbeldisfullan föðurinn. Líf piltanna tekur óvænta stefnu þegar þeir ásamt æskuvini sínum ræna vopnabúr sænska hersins og fara að fremja hin fullkomnu bankarán – bankarán sem lögreglan í Svíþjóð stóð ráðþrota gagnvart fyrir um 20 árum.

 

Nú hefur fjórði bróðirinn skrifað söguna í samvinnu við metsöluhöfundinn Anders Roslund úr tvíeykinu fræga Roslund & Hellström. Og Spielberg tryggt sér kvikmyndaréttinn.

 

Dansað við björninn er frábærlega fléttaður og spennandi tryllir en um leið áhrifamikil fjölskyldusaga; saga um bræðrabönd, flókið samband föður og þriggja sona –  og móður sem þráir að komast burt.

„Gallalaus tryllir.“ Femina, Svíþjóð

„Sagan er svo áhrifamikil að maður hættir að velta fyrir sér hvað er sannleikur og hvað skáldskapur.“ Litteraturmagazinet, Svíþjóð

„Undraverð spennusaga.“ de Volkskrant, Hollandi

„Ótrúlega mögnuð glæpasaga … spennandi og vel skrifuð.“ Brabants Dagblad, Hollandi

„Slær út hvaða spennumynd sem er.“ Aftonbladet, Svíþjóð

****1/2 Thrillerlovers, Hollandi

 Dansað við björninn er 697 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.


Fleiri bækur