{"title":"Veröld","description":"","products":[{"product_id":"i-koldu-stridi-baratta-og-vinatta-a-atakatimum","title":"Í köldu stríði – Barátta og vinátta á átakatímum","description":"\u003cp\u003eKalda stríðið skipti íslensku þjóðinni í tvær andstæðar fylkingar. Hér lýsir Styrmir Gunnarsson þeirri óvissu, ótta og tortryggni sem þjóðin bjó við og segir frá aðgerðum sem taldar voru réttlætanlegar við þær aðstæður sem þá ríktu en kunna nú að sýnast álitamál. Sumt af því er jafnvel eldfimt í pólitískri umræðu enn í dag.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStyrmir birtir hér kafla úr leyniskýrslum sem hann vann á sínum tíma og byggðust á upplýsingum sem fengust úr innsta hring í herbúðum „kommanna“. Þá fjallar hann um pólitískar rætur sínar en hluti af fjölskyldu hans var virkur í Flokki þjóðernissinna fyrir heimsstyrjöldina síðari.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn hér segir líka frá pólitískri og menningarlegri vegferð vina Styrmis sem komu úr ólíkum áttum en vinátta þeirra lifði kalda stríðið af.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHreinskiptin lýsing á veröld sem var.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ köldu stríði er 287 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir Hreinsson hannaði kápu og Eyjólfur Jónsson braut um. Oddi prentaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Styrmir Gunnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13661587767354,"sku":"sg5","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/I_koldu_stridi_-_frontur.jpg?v=1530040681"},{"product_id":"hallgerdur","title":"Hallgerður","description":"\u003cp\u003e„Allt líf Hallgerðar var storkandi stríð við mótlæti og niðurlægingu. Við sem nú lifum þekkjum afleiðingarnar af einelti, kynferðislegri misnotkun, óreglu og rógi í samtímanum. Hallgerður var og er misskilin kona og hér birtist saga hennar í nýju ljósi.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari stórfróðlegu og skemmilegu bók kemur Guðni Ágústsson til varnar Hallgerði langbrók. Þetta er óður Guðna til konunnar sem Íslendingar kusu að fyrirlíta um aldir en um leið er aðdáun Guðna á fornsögunum yfir og allt um kring.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað er óhætt að segja að hér sýni sagnamaðurinn Guðni Ágústsson á sér nýjar og óvæntar hliðar!\u003c\/p\u003e","brand":"Guðni Ágústsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13661624959034,"sku":"gá3","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hallgerdur_-_frontur.jpg?v=1529268543"},{"product_id":"dna","title":"DNA","description":"\u003cp\u003eUng kona er myrt á heimili sínu að nóttu til. Eina vitnið er sjö ára dóttir hennar. Skömmu síðar lætur morðinginn aftur til skarar skríða. Radíóamatör fær sérkennileg skilaboð á öldum ljósvakans sem tengja hann við bæði fórnarlömbin. Þó þekkir hann hvorugt þeirra. DNA var ein vinsælasta bók ársins 2014 og er hér gefin út í kilju.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa toppar þarna allt sem ég hef áður séð … Hörkuspennandi bók.“\u003cbr\u003eKolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hörkuspennandi og prýðilega skrifuð.“\u003cbr\u003eSigurður G. Valgeirsson, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa bregst ekki aðdáendum sínum.“ Friðrika Benónýs, Fréttablaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Erfitt að leggja bókina frá sér.“\u003cbr\u003eYngvi Þór Kormáksson, \u003ca href=\"http:\/\/bokmenntir.is\/\"\u003ebokmenntir.is\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa kann það sem mestu máli skiptir, að fylla lesandann spennu og óvissu.“ Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, Fréttatímanum\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Glæpasaga í hæsta gæðaflokki … besti glæpasagnahöfundur Norðurlanda heldur stöðu sinni … DNA er enn einn hörkukrimminn eftir Yrsu Sigurðardóttur – vel skrifuð, frumleg, frábært sögusvið, háspenna og glæsilegt persónugallerí.“ Adresseavisen í Noregi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa verður stöðugt betri og betri.“ Demokraten, Noregi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDNA er 476 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði bókarkápu og Eyjólfur Jónsson braut um. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13661655695418,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/DNA_-_frontur.jpg?v=1529266911"},{"product_id":"trollastrakurinn-eignast-vini","title":"Tröllastrákurinn eignast vini","description":"\u003cp\u003eTröllastráknum Vaka leiðist stundum að eiga enga vini. En dag nokkurn breytist það þegar hann kynnist Sögu sem er mannabarn. Hann hjálpar henni við að byggja kofa og þar þarf ýmislegt að gera: teikna, mæla, saga og negla. Það eru ekki allir jafnhrifnir af þessum tápmikla tröllastrák en Saga á gott ráð við því! Sérlega skemmtileg og þroskandi saga eftir Sigríði Arnardóttur – Sirrý – með gullfallegum og líflegum myndum Freydísar Kristjánsdóttur. Bókinni fylgir geisladiskur með lestri Kristjáns Franklíns Magnús leikara á sögunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrri bók Sirrýjar og Freydísar um tröllastrákin Vaka hlaut mikið og einróma lof gagnrýnenda og var á meðal söluhæstu barnabóka.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTröllastrákurinn eignast vini er 30 blaðsíður að lengd. Anna Cynthia Leplar sá um kápuhönnun og hönnun innsíðna. \u003c\/p\u003e","brand":"Sigríður Arnardóttir - Sirrý","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13661703503930,"sku":"sa4","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Trollastrakurinn_eignast_vini_frontur2.jpg?v=1529353171"},{"product_id":"lif-mitt","title":"Líf mitt","description":"\u003cp\u003eLuis Suárez er einn besti knattspyrnumaður samtímans en hann er gallagripur – og hann veit það manna best sjálfur. En hver er þessi hæfileikaríki maður?  Í sjálfsævisögu sinni segir Luis Suárez frá harðri lífsbaráttunni í æsku í Úrúgvæ. Hann segir frá árunum í Hollandi, fjallar ítarlega um veru sína hjá Liverpool, gerir upp dramatíska atburði heimsmeistaramótsins sumarið 2014 og greinir frá ástæðum þess að hann samdi við liðið sem hann hann hafði dreymt um frá því að hann var strákur – Barcelona. Og hann segir frá æskuástinni Sofi sem hann hefur elt síðan hann var táningur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓmissandi bók fyrir alla knattspyrnuáhugamenn!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLíf mitt er 276 blaðsíður að lengd. Arnar Matthíasson þýddi, Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda. Bókin kemur bæði út sem kilja og innbundin.\u003c\/p\u003e","brand":"Luis Suárez","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13662035017786,"sku":"","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Kilja","offer_id":16094147674170,"sku":"","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Lif_mitt_-_frontur.jpg?v=1529269797"},{"product_id":"hugraekt-og-hamingja","title":"Hugrækt og hamingja","description":"\u003cp\u003eVið viljum öll vera hamingjusöm. Það er bæði gott og eðlilegt markmið að stefna að því að öðlast hamingju í einkalífi og starfi og leggja rækt við huga sinn, sjálfum sér og öðrum til góðs. Í aðgengilegum og persónulegum texta fjallar Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur um vestræna sálarfræði og austræna visku sem fléttast saman í árangursríka og viðurkenndaleið sem stuðlar að meiri lífsgæðum, tilfinningagreind, hugarró og visku. Og þar er núvitund (mindfulness) í stóru hlutverki.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAnna Valdimarsdóttir er einn virtasti sálfræðingur þjóðarinnar. Áður hefur hún meðal annars skrifað metsölubækurnar \u003ci\u003eLeggðu rækt við sjálfan þig\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eLeggðu rækt við ástina\u003c\/i\u003e sem hlotið hafa mikið lof.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Skyldulesning fyrir alla sem vilja ná auknum árangri í lífi og starfi.“ Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur og fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHugrækt og hamingja er 314 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Anna Valdimarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13662144266298,"sku":"hugr","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hugraekt_og_hamingja_-_frontur.jpg?v=1529269173"},{"product_id":"halfsnert-stulka","title":"Hálfsnert stúlka","description":"\u003cp\u003eUng kona finnst illa til reika eftir ellefu ára dvöl í afskekktum skógi í Ástralíu. Sálgreinandi fær það flókna verkefni að komast að því hvað gerðist. Í samtölum þeirra hverfur hún inn í draumkennda frásögn sem hann þarf að túlka og vinna úr. Þegar í ljós kemur hvað gerðist í raun og veru fer af stað óvænt atburðarás\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHálfsnert stúlka er heillandi og margslungin saga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBjarni Bjarnason hefur hlotið mikið lof og fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldsögur sínar og meðal annars verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.  Útgáfuréttur á Hálfsnertri stúlku var seldur til  Bretlands áður en hún kom út hér á landi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Einn athyglisverðasti höfundur sinnar kynslóðar á Íslandi.“ World Literature Today\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHálfsnert stúlka er 248 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Bjarni Bjarnason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13662197088314,"sku":"hálfsn","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Halfsnert_stulka_-_frontur.jpg?v=1529269251"},{"product_id":"sveitasaela-godur-matur-gott-lif","title":"Sveitasæla. Góður matur – gott líf","description":"\u003cp\u003eGlæsileg bók úr smiðju matgæðinganna Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egils Hrafnssonar. Þessi gullfallega og girnilega bók er sannkölluð fróðleiksnáma um matargerð og gæði íslenskrar náttúru. Inga Elsa og Gísli Egill hafa komið sér fyrir í sveitasælunni með dætrum sínum og töfra fram klassíska rétti í óvæntum búningi sem og ýmsar spennandi nýjungar. Þau einbeita sér að innlendu hráefni, jafnvel úr næsta nágrenni, brugga bjór, búa til salt og osta og nota óvenjulegt hráefni á borð við fífla, grenitoppa og þörunga. Þau sækja sér innblástur í matargerð frá ýmsum heimshornum en leggja þó megináherslu á norræna matargerð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókina prýða glæsilegar ljósmyndir af réttunum sem og stórfenglegri náttúrunni norðan heiða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrri bækur Ingu Elsu og Gísla Egils hafa notið fádæma vinsælda og hlotið verðskuldað lof. Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Eldað og bakað í ofninum heima var tilnefnd til verðlauna Hagþenkis.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSveitasæla er 249 blaðsíður að lengd. Inga Elsa hannaði útlit bókarinnar og Gísli Egill er höfundur myndanna.\u003c\/p\u003e","brand":"Inga Elsa Bergþórsdóttir, Gisli Egill Hrafnsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13662229954618,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Sveitasaela_-_frontur.jpg?v=1529352687"},{"product_id":"draumaradningar-fra-a-o","title":"Draumaráðningar frá A-Ö","description":"\u003cp\u003eDraumaráðningar A-Ö er nýtt og aðgengilegt uppflettirit um efni sem allir hafa áhuga á og leiða hugann að. Bókin er í senn fræðandi og skemmtileg og höfðar jafnt til yngri sem eldri lesenda er áhuga hafa á draumspeki. Og öll dreymir okkur eitthvað! Hér er að finna ráðningar á hátt í fjögur þúsund draumtáknum sem raðað er í stafrófsröð. Táknin eru af öllu tagi, ýmist úr daglegu lífi eða sjaldgæfari tákn. Þau taka til ólíkra sviða mannlífsins, allt frá skartgripum til samfélagsmiðla og kirkju til kynlífs. Þá eru í bókinni upplýsingar um fjölda mannanafna og merkingu þeirra í draumum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSímon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur hefur ritað fjölda bóka um drauma og draumaráðningar sem notið hafa mikilla vinsælda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDraumaráðningar frá A-Ö er 379 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson hannaði innsíður og sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Símon Jón Jóhannsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13662361321530,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Draumaradningar_fra_a-o_-_frontur.jpg?v=1529266949"},{"product_id":"nattblinda","title":"Náttblinda","description":"\u003cp\u003eLögreglumaður á Siglufirði er skotinn með haglabyssu af stuttu færi um miðja nótt. Ung kona flýr þangað norður undan ofbeldisfullum sambýlismanni. Og sjúklingur er lagður inn á geðdeild í Reykjavík gegn vilja sínum. Þessir þræðir fléttast svo saman í magnaða spennusögu þar sem ræturnar liggja í átakanlegum veruleika undir fáguðu yfirborðinu. Glæpasögur Ragnars Jónassonar hafa vakið mikla athygli heima og erlendis og er Náttblinda enn ein staðfesting þess að það eru „engin takmörk fyrir því hve langt þessi snjalli höfundur getur náð á alþjóðavísu.“ (pressan.is). Útgáfurétturinn á Náttblindu var seldur til Englands áður en hún kom út á Íslandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Breskir aðdáendur norrænna glæpasagna þekkja tvo frábæra íslenska rithöfunda, Arnald Indriðason og Yrsu Sigurðardóttur. Hér kemur sá þriðji: Ragnar Jónasson.“ The Times\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Vel fléttuð glæpasaga um hluti sem snerta okkur öll … Ragnar kann þá list að vefa glæpasögu og miðlar upplýsingum í passlegum skömmtum, flækir rannsóknina og beinir grun að ýmsum eins og vera bera til að halda lesandanum við efnið. Sagan fær svo aukna vídd með brotum úr dagbók ungs manns sem lokaður er inni á geðsjúkrahúsi, en lesandinn hefur ekki hugmynd um hver sá maður er eða hvernig þessi brot tengjast morðmálinu sem er í forgrunni sögunnar fyrr en rétt á síðustu blaðsíðunum. Þessi óvissa eykur spennuna og frjóvgar hugarflug lesandans sem auðvitað er á fullu að leysa gátuna sjálfur á undan lögreglumönnunum.“ *** Friðrika Benónýs, Fréttablaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Óvænt endalok í bestu bók Ragnars Jónassonar.“ ***1\/2 Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Sagan er vel uppbyggð, persónurnar áhugaverðar og endirinn óvæntur. Enn ein frábær bók frá Ragnari.“ Gurrí á Vikunni\u003c\/p\u003e","brand":"Ragnar Jónasson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13662399856698,"sku":"rj6","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":16170448224314,"sku":"rj6k","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Nattblinda_-_frontur.jpg?v=1529350704"},{"product_id":"matargatid","title":"Matargatið","description":"\u003cp\u003eNýstárleg og glæsileg matreiðslubók fyrir börn á öllum aldri, skrifuð af höfundi sem samhliða því að vera mikill matgæðingur hefur eldað með og fyrir börnin á leikskólanum Laufásborg um árabil við miklar vinsældir barnanna og foreldra þeirra. Theodóra er óhrædd við að fá börnin með sér í að elda ýmsa framandi rétti en hún hefur ferðast víða um heim og kynnst matreiðslu af ýmsu tagi. Thodóra hefur sýnt og sannað að börn geta miklu meira en flestir halda þegar kemur að matreiðslu og að þeim finnst ekki bara hamborgarar, pítsa og pulsur spennandi réttir. Bókin er ríkulega myndskreytt ljósmyndum og teikningum og eru uppskriftirnar í bókinni af ýmsum toga, allt réttir sem Theodóra hefur matreitt með börnunum við góðar undirtektir. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eMatargatið \u003c\/i\u003eer 93 blaðsíður að lengd. Jón Ágúst Pálmason sá um bókarhönnun og teiknaði myndirnar í bókinni. Bókin er prentuð í Odda. \u003c\/p\u003e","brand":"Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13663080382522,"sku":"tjsb","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Matargatid_-_frontur.jpg?v=1529350106"},{"product_id":"amma-bidur-ad-heilsa","title":"Amma biður að heilsa","description":"\u003cp\u003eElsa er sjö ára og býr með mömmu sinni og ömmu í fjölbýlishúsi. Elsa er öðruvísi en flest önnur börn og amma hennar er engin venjuleg amma. Í ljós kemur að íbúarnir í húsinu búa yfir mögnuðum örlagasögum sem Elsa flækist inn í og átakanleg en um leið bráðfyndin atburðarás fer af stað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAmma biður að heilsa er einstök saga um ofurhetjur úr hversdagslífinu sem eiga erfitt með að fóta sig í veruleikanum eftir höfund metsölubókarinnar Maður sem heitir Ove sem sló rækilega í gegn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hittir beint í mark. Bækur sem fá mig bæði til að hlæja og gráta verðskulda hæstu einkunn.“ Expressen Söndag\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e***** Adlibris.se\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Með því besta sem ég hef lesið lengi.“ LitteraturMagazinet\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Fredrik Backman fær mann til að hlæja, syrgja og gleðjast – og fella tár.“ Svenska Dagbladet\u003c\/p\u003e","brand":"Fredrik Backman","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13663110365242,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Amma_-_frontur.jpg?v=1529266006"},{"product_id":"uggur","title":"Uggur","description":"Margreyndur rithöfundur fær óvænta höfnun sem leiðir til þess að hann missir fótanna. Lesandinn slæst í för með Úlfari Þormóðssyni þar sem hann berst við þetta mótlæti, rifjar upp bæði ljúfar og sárar minningar, auk þess sem honum er fylgt eftir í hringiðu samtímans. \u003ci\u003eUggur\u003c\/i\u003e er einlæg og ágeng bók þar sem Úlfar fléttar saman nútíð og fortíð af mikilli fimi og kaldri kímni. Síðustu bækur Úlfars Þormóðssonar, \u003ci\u003eFarandskuggar\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eBoxarinn\u003c\/i\u003e, fjölluðu um móður hans og föður. Þær vöktu mikla athygli og fengu einróma lof gagnrýnenda. Nú beinir hann kastljósinu að sjálfum sér. Úlfar hlaut viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins árið 2012 fyrir ritstörf sín.","brand":"Úlfar Þormóðsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13663814582330,"sku":"ulf5","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Uggur_-_frontur.jpg?v=1529353638"},{"product_id":"hamskiptin-thegar-allt-vard-falt-a-islandi","title":"Hamskiptin – Þegar allt varð falt á Íslandi","description":"\u003cp\u003eÍ bókinni Hamskiptin – Þegar allt varð fallt á Íslandi fjallar Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður um ótrúlegt tímabil í sögu þjóðarinnar, árin þegar allt varð falt. Hann afhjúpar hvernig stór hluti þjóðarinnar – þar á meðal fjölmiðlar, fræðimenn, listamenn og stjórnmálamenn – steig dans með íslenskum auðmönnum í blindri trú á endalaust góðæri á árunum fyrir hrun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIngi Freyr fer hér um ólík svið íslensks þjóðlífs og dregur fram óþægilegar sögur sem legið hafa í þagnargildi – og hlífir hvorki sjálfum sér né öðrum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHamskiptin – Þegar allt varð falt á Íslandi er ómissandi bók fyrir alla þá sem vilja að heiðarlegt uppgjör fari fram um ábyrgðina á hruninu og aðdraganda þess svo dreginn verði lærdómur af því til framtíðar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHamskiptin – Þegar allt varð falt á Íslandi er 288 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.\u003c\/p\u003e","brand":"Ingi Freyr Vilhjálmsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13663844106298,"sku":"ifv","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hamskiptin_-frontur.jpg?v=1529268609"},{"product_id":"innri-rodd-ur-annars-hofdi","title":"Innri rödd úr annars höfði","description":"\u003cp\u003eInnri rödd úr annars höfði er sjöunda ljóðabók Ásdísar Óladóttur. Ljóðabækur hennar hafa vakið verðskuldaða athygli og hlotið jákvæðar viðtökur. „Rödd Ásdísar er einstök í ljóðaheiminum, hún er bæði frumleg, heit og litrík“ segir Vigdís Grímsdóttir um ljóð Ásdísar. „Ljóðin eru vönduð og fáguð“ segir m.a. í ritdómi Eiríks Arnar Norðdahl um ljóðbók Ásdísar, Einn en ekki tveir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eInnri rödd úr annars höfði er 48 blaðsíður að lengd og inniheldur 35 ljóð. Guðrún Vilmundardóttir braut um og hannaði innsíður og Ólafur Unnar Kristjánsson sá um kápuhönnun. Bókin er prentuð í Leturprenti.\u003c\/p\u003e","brand":"Ásdís Óladóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13663868878906,"sku":"ao1","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Innri_rodd_-_frontur.jpg?v=1529269419"},{"product_id":"hljodin-i-nottinni","title":"Hljóðin í nóttinni","description":"\u003cp\u003e„Eina nóttina vaknaði ég og kallaði á mömmu en það kom ekkert svar. Ég fór fram úr og inn í eldhús, þar var enginn. Samt var eins og einhver hefði verið þarna nýlega; tóbaksfnykur í loftinu, öskubakkinn fullur af stubbum sem sumir voru með varalit, flaska á borðinu með einhverjum vökva.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁtakanlegar örlagasögur sem mótuðu líf lítillar stúlku og foreldra hennar á sjöunda áratug síðustu aldar. Hörð lífsbarátta í eymd og niðurlægingu í Höfðaborginni í Reykjavík. Og sársaukafullt uppgjör við margt af því ljótasta sem lífið hefur upp á að bjóða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHljóðin í nóttinni er í senn saga um hyldjúpa sorg og óbilandi lífskraft. Saga sterkrar konu sem brýtur af sér hlekki fortíðarinnar og horfist í augu við það fegursta – en líka það hryllilegasta – í lífinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHljóðin í nóttinni er 252 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði kápuna. \u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Björg Guðrún er afskaplega sterk og hugrökk manneskja að segja okkur þessa áhrifamikllu sögu sem lætur engan ósnortinn.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Hljóðin í nóttinni er eftirminnileg og vel skrifuð sjálfsævisaga, full af grimmd og andstyggð sem sagt er frá af heiðarleika og einlægni. Hún er hetjusaga um vítahring angistar og örvæntingar og grýtta leið til sáttar og bata. Um leið er varpað ljósi á skömm í sögu þjóðarinnar sem hefur verið falin alltof lengi.\" \u003cspan\u003eSteinunn Inga Óttarsdóttir, Kvennablaðinu\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Björg er sönn hetja i hugum okkar allra.“ Mikael Torfason, Fréttablaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Ég las bókina í einum rykk og gat ekki hætt þó ég reyndi. Stundum var ég með kökk í hálsinum en upp úr stendur að Björg er sigurvegari.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️  Anna Kristín Halldórsdóttir, Pjatt.is\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Björg er svo vel skrifandi  ... Dáist að henni ... Gríðarlega sterk bók .. snertir mann djúpt.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Hún á skilið allt það lof sem hún er að fá.“ Egill Helgason, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Firnavel skrifuð.“ Þorgeir Tryggavson, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp style=\"font-weight: 400;\"\u003e„Bókin er gersemi – gat ekki lagt hana frá mér.“ Guðrún Ögmundsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Björg Guðrún Gísladóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13663894110266,"sku":"","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hljodin_i_nottinni_-_frontur.jpg?v=1529268856"},{"product_id":"eg-man-thig","title":"Ég man þig","description":"\u003cp\u003e\u003ci\u003eÉg man þig\u003c\/i\u003e kom fyrst út árið 2010 og var valin besta íslenska glæpasagan auk þess sem hún var ein mest selda bók ársins, bæði 2010 og 2011. Bókin hefur setið á metsölulistum víða um lönd og erlendir dómar verið afar lofsamlegir. Þess má geta að innan skamms kemur hún út í Bandaríkjunum en þaðan eru þegar farnir að berast mjög lofsamlegir dómar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUngt fólk sem er að gera upp hús á Hesteyri í Jökulfjörðum um miðjan vetur fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Á sama tíma dregst ungur læknir á Ísafirði inn í rannsókn á sjálfsmorði eldri konu. Hún virðist hafa verið hugfangin af syni hans sem hvarf fyrir þremur árum – og fannst aldrei.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Æsispennandi tryllir sem vekur taumlausa skelfingu hjá lesandanum.“ The Times\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa er jafnoki Stephens King þegar kemur að því að skapa óhugnað og ótta hjá lesandanum.“ Independent\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Snilldarlega fléttuð og með ókjörum af spennandi augnablikum.“ Guardian\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Óbærilega spennandi.“ Verdens Gang\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eÉg man þig \u003c\/i\u003eer 392 blaðsíður að lengd. Ólafur Unnar Kristjánsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13664010272826,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Kilja","offer_id":15789256507450,"sku":"ys11kb","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Eg_man_thig_biokilja_grande_9578a8f5-31a9-440b-be98-02f719000695.jpg?v=1535114478"},{"product_id":"thaer-ruddu-brautina","title":"Þær ruddu brautina","description":"\u003cp\u003eBarátta kvenna fyrir réttindum sem nú eru víðast talin sjálfsögð kostaði blóð, svita og tár, niðurlægingu og útskúfun. Í þessari stórfróðlegu bók er að finna æviágrip kvenna sem hófu baráttuna víða um heim og ruddu brautina fyrir kvenfrelsisbaráttu seinni ára. Kolbrún S. Ingólfsdóttir segir hér sögu kvenna sem stóðu í baráttunni framan af, einkum á 19. öld og fram yfir heimsstyrjöldina síðari. Einnig fjallar hún í stuttu máli um sögu kvenréttindabaráttu í ríkjum Evrópu, Ameríku og víðar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞær ruddu brautina er í senn heillandi og átakanleg örlagasaga fjölda kvenna sem heimurinn stendur í mikilli þakkarskuld við.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKolbrún S. Ingólfsdóttir er sagnfræðingur og lífeindafræðingur að mennt og eftir hana liggja bækur og greinar, m.a. bókin Merkiskonur sögunnar sem kom út árið 2009.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞær ruddu brautina er 291 blaðsíða að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um, Jón Ásgeir hannaði kápu en Prentmiðlun annaðist prentvinnslu. \u003c\/p\u003e","brand":"Kolbrún S. Ingólfsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664289783866,"sku":"ksi","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Thaer_ruddu_brautina.jpg?v=1530042199"},{"product_id":"stelpur-tiu-skref-ad-sterkari-sjalfsmynd","title":"Stelpur – Tíu skref að sterkari sjálfsmynd","description":"\u003cp\u003eKynþroski og bólur, foreldrar, vinkonur og vinir, heilsa og lífsstíll, ofbeldi og einelti, sjálfstraust og ást, útlit og heilbrigði, eyðsla og sparnaður …\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllt þetta og miklu fleira skiptir unglingsstelpur máli. Í þessari stórfróðlegu og skemmtilegu bók leggur metsöluhöfundurinn Kristín Tómasdóttir fram tíu leiðir fyrir þær að sterkari sjálfsmynd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKristín hefur skrifað fjórar bækur sem hafa selst í um 30.000 eintökum. Auk þess hefur hún haldið fjölda námskeiða fyrir unglinga um betri sjálfsmynd. Ómissandi bók fyrir allar unglingsstelpur!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStelpur er 407 blaðsíður að lengd. Hrafn Gunnarsson hannaði bókarkápuna og Anna Cynthia Leplar sá um umbrot og hönnun innsíðna. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Kristín Tómasdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664317243450,"sku":"stelpur4","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Stelpur_frontur.png?v=1530046230"},{"product_id":"endurkoman","title":"Endurkoman","description":"\u003cp\u003eSímtal frá Bretlandi kemur róti á huga hálfíslensks læknis í New York.  Hefur Magnús Colin lifað í blekkingu frá barnæsku? Hefur hann aldrei séð foreldra sína í réttu ljósi?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUm leið og Magnús þarf að horfast í augu við fortíð sína fær hann til rannsóknar óþekkta konu sem finnst í dái eftir slys á afskekktum vegi. Þegar hann fer að gruna að hún sé með meðvitund en læst inni í eigin líkama vakna áleitnar spurningar um hver hún er, um sjálfan hann – og ekki síst um Malenu, konuna sem hann elskar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEndurkoman er seiðmögnuð skáldsaga um ástina og leitina að hamingjunni, einsemd og söknuð, brotthvarf ­– og endurkomu. Ólafur Jóhann Ólafsson hefur hlotið margháttaða viðurkenningu fyrir verk sína víða um lönd en þau hafa komið út á yfir tuttugu tungumálum. \u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Afar grípandi samtímasaga sem er skrifuð af mikilli snerpu.“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Skapar stemmningu og heim sem manni finnst seiðandi.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þetta nær manni. Mann langar til að vita hvernig þetta fer allt saman.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Framvindan er fumlaus og örugg …  Allt er þetta ákaflega vel gert. … Falleg og vel skrifuð bók sem varpar fram stórum spurningum og lætur lesandanum eftir að leita svara.“ Magnús Guðmundsson, Fréttablaðinu \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Ein besta skáldsaga Ólafs Jóhanns.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir, Morgunblaðinu \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Ólafur Jóhann Ólafsson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13664338018362,"sku":"ójó2","price":3699.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15792332537914,"sku":"ójó2k","price":3899.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Endurkoman.jpg?v=1530046153"},{"product_id":"munadarleysinginn","title":"Munaðarleysinginn","description":"\u003cp\u003eLífssaga Matthíasar Bergssonar spannar allt frá dvöl á munaðarleysingjaheimili í Reykjavík á sjötta áratugnum til hörkulegrar herþjálfunar fyrir stríðið í Víetnam og daglegs lífs í glæpahverfi í miðríkjum Bandaríkjanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið sögu koma Marlene Dietrich, Alice Cooper, Axl Rose, Marlboro-maðurinn, morðingi Johns Lennon – og þrír Bandaríkjaforsetar, svo nokkur séu nefnd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ veraldarvolkinu tókst Matthías á við ótrúlegustu verkefni en sökk að lokum til botns í óreglu, niðurlægingu og eymd. Honum tókst að rífa sig upp úr ömurleikanum og tók stefnuna heim til Íslands – þar sem hann vissi af æskuástinni sinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSigmundur Ernir Rúnarson ritar örlagasögu munaðarleysingjans Matthíasar Bergssonar af innsæi og sagnalist – einhverja óvenjulegustu ævisögu síðari ára!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eMunaðarleysinginn \u003c\/i\u003eer 268 blaðsíður að lengd. Ólafur Unnar Kristjánsson hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda. \u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664380682298,"sku":"se4","price":2999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Munadarleysinginn_-_frontur.jpg?v=1529350323"},{"product_id":"dimma","title":"Dimma","description":"\u003cp\u003eLögreglufulltrúinn Hulda rannsakar síðasta sakamálið sitt áður en henni er gert að hætta störfum fyrir aldurs sakir, 64 ára gömul. Ung kona, hælisleitandi frá Rússlandi, finnst látin á Vatnsleysuströnd og bendir ýmislegt til þess að hún hafi verið myrt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEngum er hægt að treysta og enginn segir allan sannleikann. Hörmulegir atburðir úr fortíð Huldu sækja á hana og hún gerir afdrifarík mistök við rannsóknina sem hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRagnar Jónasson er einn fremsti spennusagnahöfundur þjóðarinnar og hefur hann vakið mikla athygli erlendis. Meðal annars sat bók hans, Snjóblinda, í efsta sæti metsölulista í Bretlandi og Ástralíu, fyrst íslenskra skáldsagna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Dimma heldur manni frá fyrstu blaðsíðu til þeirrar síðustu.“  \u003cbr\u003e– Katrín Jakobsdóttir \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e „Endirinn hittir lesandann eins og spark í magann.“ **** Friðrika Benónýs, Fréttatímanum\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDimma er 263 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu en Eyjólfur Jónsson braut um. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Ragnar Jónasson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13664456572986,"sku":"rj7","price":3699.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15786280615994,"sku":"rj7k","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Dimma.jpg?v=1529266822"},{"product_id":"sunnudagsbiltur","title":"Sunnudagsbíltúr","description":"\u003cp\u003eÁrið 1995 kom út fyrsta ljóðabók Ásdísar Óladóttur. Í tilefni af tuttugu ára skáldafmæli hennar er nú gefið út úrval úr sjö ljóðabókum hennar. Bækurnar eru um margt ólíkar en bera allar vott um sérstaka og djúpstæða skynjun Ásdísar á veruleikanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Rödd Ásdísar Óladóttur er einstök í ljóðaheiminum, hún er bæði frumleg, heit og litrík.“ – Vigdís Grímsdóttir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eSunnudagsbíltúr \u003c\/i\u003eer 143 blaðsíður að lengd. Ólafur Unnar Kristjánsson hannaði kápu, Eyjólfur Jónsson hannaði innsíður og braut um. Bókin er prentuð hjá Leturprenti.\u003c\/p\u003e","brand":"Ásdís Óladóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664480591930,"sku":"ao2","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Sunnudagsbiltur_-_frontur.jpg?v=1529352374"},{"product_id":"fljot-er-nottin-dag-ad-deyfa","title":"Fljót er nóttin dag að deyfa","description":"\u003cp\u003eFljót er nóttin dag að deyfa hefur að geyma úrval vísna Sigurðar Óskarssonar í Krossanesi (1905-1995). Hann var landskunnur hagyrðingur og hestamaður á sinni tíð. Hér hefur loksins verið safnað saman völdum lausavísum hans frá ýmsum tímum. Sumar hafa birst í bókum og tímaritum en fæstar hafa áður komið á prent heldur vaðveist meðal vina og vandamanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFljót er nóttin dag að deyfa\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003edimma færist yfir geim.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUndir Blesa skröltir skeifa\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eskyldi hún ekki tolla heim?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfuna önnuðust Sigurður Þorsteinsson og Pétur Már Ólafsson sem einnig ritar formála að bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFljót er nóttin dag að deyfa er 74 blaðsíður að lengd. Kápan var hönnuð hjá Dynamo Reykjavík, Eyjólfur Jónsson braut bókina um en hún er prentuð í Leturprenti.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigurður Óskarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664531480634,"sku":"só","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Fljot_er_nottina_dag_ad_deyfa.jpg?v=1529267805"},{"product_id":"nyja-tilvitnanabokin","title":"Nýja tilvitnanabókin","description":"\u003cp\u003eNýja tilvitnanabókin inniheldur á fimmta þúsund tilvitnanir víða að úr heiminum og frá umliðnum 3000 árum – frá Grikkjum fornaldar til stjarnanna í dægurheimi samtímans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTilvitnanirnar eru af ýmsum toga – úr ræðum og ritum, íslenskum og erlendum bókmenntum, popplögum og Íslendingasögunum, svo nokkuð sé nefnt. Þeim er raðað upp í aðgengilega efnisflokka sem auðvelda lesandanum að finna tilvitnun fyrir sérhvert tilefni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ snjallyrðunum er fólgin lífsspeki aldanna, jafnt sem kaldhæðni nútímans; í stuttri setningu býr oft meiri viska, hvassari ádeila eða dýpri mannúð en í langri ræðu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eNýja tilvitnanabókin\u003c\/i\u003e er handhægt uppflettirit sem gott er að grípa til við öll tækifæri. Bókin hefur nú mjög verið aukin og endurbætt – því ekkert lát er á frumlegri og skapandi hugsun í veröldinni. Kolbrún Bergþórsdóttir safnaði spakyrðunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eNýja tilvitnanabókin \u003c\/i\u003eer 409 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði kápu, Eyjólfur Jónsson hannaði innsíður og braut um. Bókin er prentuð í Finnlandi.\u003c\/p\u003e","brand":"Kolbrún Bergþórsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664566509626,"sku":"tilv2","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Nyja_tilvitnanabokin_-_frontur.jpg?v=1529350869"},{"product_id":"tharmar-med-sjarma","title":"Þarmar með sjarma","description":"\u003cp\u003eÞarmar með sjarma kom út fyrir fáeinum misserum og seldist upp. Nú höfum við endurútgefið hana vegna fjölda áskorana! Lykillinn að hamingjuríkara og heilbrigðara lífi býr innra með okkur. Þarmarnir eru ekki síður mikilvægir en heilinn og hjartað – samt veit fólk almennt lítið um starfsemi þeirra. Nú eru vísindamenn hins vegar að átta sig  á því að það sem gerist í meltingarveginum getur skipt máli varðandi fjölmarga þætti í lífi okkar, allt frá offitu og ofnæmi til þunglyndis.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGiulia Enders, sem stundar doktorsnám í læknisfræði í Frankfurt, er óhrædd við að fara inn á svið þar sem fordómar, feimni og fliss hafa verið ráðandi. Skilaboðin eru skýr: Ef við sinnum meltingarveginum af alúð uppskerum við hamingju og vellíðan. En hvernig förum við að því? Þú kemst að því í þessari stórfróðlegu og skemmtilegu bók sem farið hefur sigurför um heiminn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Enginn hefur skrifað jafn spennandi og skemmtilega um meltinguna.“  Die Stern\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Afar fyndin, blátt áfram og upplýsandi bók.“ taz\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Með ríkulegum húmor og af mikilli ástríðu útskýrir Enders allt sem lesandann langaði og langaði ekki að vita um meltinguna … bráðskemmtileg bók.“ Publishers Weekly\u003c\/p\u003e","brand":"Giulia Enders","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664612778042,"sku":"þarmar","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Tharmar_med_sjarma_-_frontur.jpg?v=1530042021"},{"product_id":"hendingskast","title":"Hendingskast","description":"\u003cp\u003eUngur maður fær óvænt upp í hendurnar 30 milljónir króna. Miðaldra hjón verða fyrir því að húsið þeirra er málað appelsínugult í skjóli nætur. Þessir óvæntu atburðir koma miklu róti á líf persónanna, ekki síst aðalpersónunnar þar sem allt fer á hvolf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHendingskast er fyrsta skáldsaga Sigurjóns Bergþórs Daðasonar. Undir lygnu yfirborði kraumar ólga og togstreita – og ísmeygileg kímni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHendingskast er 191 blaðsíða að lengd, kilja. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigurjón Bergþór Daðason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13701966954554,"sku":"sbd","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hendingskast_-_frontur.jpg?v=1529268649"},{"product_id":"erfid-samskipti","title":"Erfið samskipti","description":"\u003cp\u003eHvernig biður maður um launahækkun? Slítur löngu sambandi? Biðst afsökunar?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDaglega reynum við að sneiða hjá erfiðum samskiptum, bæði í einkalífi og starfi. Við forðumst að vekja máls á því sem okkur finnst óþægilegt. En oftar en ekki eru þetta þýðingarmestu samtölin sem við eigum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari áhugaverðu bók er að finna aðgengilegar  og velígrundaðar leiðir til að taka þátt í erfiðum samtölum með það að markmiði að finna lausnir sem allir geta verið sáttir við.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundarnir, Douglas Stone, Bruce Patton og Sheila Heen, eru kennarar við Harvard-háskóla og hafa sérhæft sig í samskiptum, sáttaumleitunum og lausn deilumála. Jóhann G. Ásgrímsson þýddi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eErfið samskipti er 258 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.\u003c\/p\u003e","brand":"Douglas Stone, Bruce Patton og Sheila Heen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13701980160058,"sku":"","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Erfid_samskipti_-_frontur.jpg?v=1529267738"},{"product_id":"islenski-vegaatlasinn","title":"Íslenski vegaatlasinn","description":"\u003cp\u003eÍslenski vegaatlasinn er glæsileg kortabók, byggð á nýjustu upplýsingum. Hér er að finna vegi landsins, aðgengileg þéttbýliskort, kort með upplýsingum um golfvelli, sundlaugar og tjaldsvæði – og fjölmargt fleira. Og síðast en ekki síst: Bókinni fylgir aðgangur að rafrænu Íslandskorti sem hægt er hlaða niður í símann og spjaldtölvuna. Þegar ferðast er um landið er svo hægt að fylgjast með ferðum sínum á kortinu sem má stækka og minnka eftir þörfum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er gefin út í samvinnu við Loftmyndir sem hefur komið sér upp sérlega vönduðum kortagrunni af Íslandi. Kortin í bókinni eru í mælikvarðanum 1:250.000. Textinn í bókinni er á íslensku, ensku, þýsku og frönsku.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13701996445754,"sku":"kort2015","price":4990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Islenski_vegaatlasinn_-_frontur.jpg?v=1530046096"},{"product_id":"auga-fyrir-auga","title":"Auga fyrir auga","description":"Dægurlagasöngvarinn John Schwarz er handtekinn eftir að hafa misþyrmt manni á ferju á leið frá Finnlandi til Svíþjóðar. Þegar lögreglan fer að grennslast fyrir um fortíð hans kemur í ljós að John lést á dauðadeild í fangelsi í Ohio í Bandaríkjunum allnokkrum árum fyrr.\u003cbr\u003e \u003cbr\u003eMögnuð saga um það hvernig þráin eftir því að sjá réttlætinu fullnægt getur leikið fólk. En umfram allt er Auga fyrir auga framúrskarandi spennusaga sem rígheldur lesandanum og kemur stöðugt á óvart.\u003cbr\u003e \u003cbr\u003eAnders Roslund er fyrrverandi blaðamaður og Börge Hellström er fyrrverandi glæpamaður. Saman mynda þeir vinsælasta höfundatvíeyki Norðurlanda. Bók þeirra Ófreskjan hlaut Glerlykilinn, norrænu glæpasagnaverðlaunin, og sögur þeirra eru tíðir gestir á metsölulista New York Times.\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e„Kraftmikil og margslungin.“ Guardian\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e„Spennuþrungin.“ Sunday Times\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e„Hrikalega spennandi og vel skrifuð glæpasaga.“ Aftonbladet\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e***** Jyllands-Posten\u003cbr\u003e \u003cbr\u003eAuga fyrir auga er 473 blaðsíður að lengd. Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.","brand":"Roslund \u0026 Hellström","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702018760762,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Auga_fyrir_auga_-_frontur.jpg?v=1529266109"},{"product_id":"tapad-fundid","title":"Tapað fundið","description":"\u003cp\u003eLögfræðingurinn Halla Bryndís fær í hendurnar ranga ferðatösku þegar hún lendir í London og mikilvægir fundir framundan. Hvað gerir kona sem situr uppi með allt annan fataskáp en sinn eigin? Samhliða því sem við fylgjumst með Höllu Bryndísi leita út fyrir þægindaramma sinn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum er skyggnst inn í dramatískt líf eiganda ferðatöskunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGrípandi og spennandi saga af tveimur ólíkum konum og leit þeirra að lífsfyllingu og hamingju.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTapað–fundið er fyrsta skáldsaga Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur en áður hafa komið út eftir hana fræðibækur af ýmsu tagi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTapað-fundið er 220 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Árelía Eydís Guðmundsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702037897274,"sku":"aeg2","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Tapad-fundid_-_frontur.jpg?v=1529352805"},{"product_id":"almanakid","title":"Almanakið","description":"\u003cp\u003eAlmannakið er fyrsta ljóðabók Ólafs Jóhanns Ólafssonar og jafnframt fysta bók hans sem kemur út undir merkjum Veraldar. Bókina prýða vatnslitamyndir eftir son hans og alnafna, Ólaf Jóhann. Á kápu er vitnað til Þorsteins frá Hamri sem segir: „Almanakið er yfirtak fallegur og vel saminn ljóðaflokkur, áhrifamikill í látleysi sínu og innileik.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÓlafur Jóhann hefur áður sent frá sér skáldsögur og smásögur og hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Aldingarðinn árið 2006.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eAlmanakið \u003c\/i\u003eer 80 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson sá um bókarhönnun. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Ólafur Jóhann Ólafsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702054346810,"sku":"ójó","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Almanakid_-_frontur_lettur.jpg?v=1529265941"},{"product_id":"nordur","title":"Norður","description":"\u003cp\u003eEyþór Árnason hefur vakið mikla athygli fyrir ljóðabækur sínar en hann hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabók sína, Hundgá úr annarri sveit. Í Norður leitar Eyþór í sveitirnar norðan heiða – með nokkrum útúrdúrum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNorður er 104 blaðsíður að lengd. Aðalsteinn Svanur Sigfússon sá um kápuhönnun. Bókin er prentuð í Leturprenti.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg sæki hunang í bækur\u003cbr\u003esmjör í snemmsprottnar sléttur\u003cbr\u003eeld í ókleifa kletta\u003cbr\u003eog ást í koldimma hella\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVín djúpt í brunna\u003cbr\u003evatn í dökkgræna skóga\u003cbr\u003efótspor í kvöldbláa dali\u003cbr\u003eog heimþrá í gáskafull stef\u003c\/p\u003e","brand":"Eyþór Árnason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702069616698,"sku":"ea","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Nordur_-_frontur.jpg?v=1529350593"},{"product_id":"i-fangabudum-nazista","title":"Í fangabúðum nazista","description":"\u003cp\u003eHaustið 1942 handtók Gestapó 22 ára íslenskan námsmann í Ósló, Leif H. Muller að nafni. Honum var gert að sök að hafa ætlað að yfirgefa landið með ólöglegum hætti. Við tók hjá Leifi einhver hryllilegasta fangelsisvist sem Íslendingur hefur þurft að þola, fyrst í Grini-fangelsinu í Noregi og síðar í hinum alræmdu Sachsenhausen-fangabúðum í Þýskalandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Sachsenhausen var hver dagur barátta upp á líf og dauða undir járnhæl nasista þar sem hungur, sjúkdómar, pyntingar og dauði voru daglegt brauð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ apríl 2015 voru  70 ár síðan Leifur losnaði úr fangabúðunum og var bókin Í fangabúðum nazista endurútgefin af því tilefni. Hann skrifaði um þetta skelfilega tímabil í lífi sínu þegar eftir heimkomuna til Íslands í stríðslok og kom bókin út í september 1945. Samkvæmt Wiesenthal-stofnuninni er þessi einstaka bók ein sú fyrsta sem rituð var í heiminum um Helförina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSagnfræðingarnir Hallur Örn Jónsson og Jón Ingvar Kjaran skrifa inngang að bókinni sem og eftirmála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ fangabúðum nazista er 239 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.\u003c\/p\u003e","brand":"Leifur H. Muller","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702085181498,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/C3_8D-fangab_C3_BA_C3_B0um-nazista-frontur-120x180.jpg?v=1530040513"},{"product_id":"britt-marie-var-her","title":"Britt-Marie var hér","description":"\u003cp\u003eEftir 40 ára hamingjusnautt hjónaband leitar Britt-Marie út á vinnumarkaðinn. Umfangsmikil þekking hennar á skipulagi og snyrtimennsku í heimilishaldi, smámunasemi og þrjóska eru veganestið út í kaldan veruleikann í niðurníddu úthverfi þar sem hún fær starf á frístundaheimili fyrir börn og unglinga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFjarri þægindaramma sínum tekst Britt-Marie á við sérkennileg viðfangsefni í þessu framandi samfélagi og byrjar nýtt líf sem tekur óvænta stefnu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGrátbrosleg saga eftir höfund Maður sem heitir Ove.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBritt-Marie var hér er 413 blaðsíður að lengd. Jón Daníelsson þýddi, Nils Olsson hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Fredrik Backman","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702120603706,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Britt-Marie_-_frontur.jpg?v=1529266741"},{"product_id":"dansad-vid-bjorninn","title":"Dansað við björninn","description":"\u003cp\u003erír bræður bindast órjúfanlegum böndum eftir að móðir þeirra flýr ofbeldisfullan föðurinn. Líf piltanna tekur óvænta stefnu þegar þeir ásamt æskuvini sínum ræna vopnabúr sænska hersins og fara að fremja hin fullkomnu bankarán – bankarán sem lögreglan í Svíþjóð stóð ráðþrota gagnvart fyrir um 20 árum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNú hefur fjórði bróðirinn skrifað söguna í samvinnu við metsöluhöfundinn Anders Roslund úr tvíeykinu fræga Roslund \u0026amp; Hellström. Og Spielberg tryggt sér kvikmyndaréttinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDansað við björninn er frábærlega fléttaður og spennandi tryllir en um leið áhrifamikil fjölskyldusaga; saga um bræðrabönd, flókið samband föður og þriggja sona –  og móður sem þráir að komast burt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Gallalaus tryllir.“ Femina, Svíþjóð\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Sagan er svo áhrifamikil að maður hættir að velta fyrir sér hvað er sannleikur og hvað skáldskapur.“ Litteraturmagazinet, Svíþjóð\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Undraverð spennusaga.“ de Volkskrant, Hollandi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Ótrúlega mögnuð glæpasaga … spennandi og vel skrifuð.“ Brabants Dagblad, Hollandi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Slær út hvaða spennumynd sem er.“ Aftonbladet, Svíþjóð\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****1\/2 Thrillerlovers, Hollandi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e Dansað við björninn er 697 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.\u003c\/p\u003e","brand":"Roslund \u0026 Thunberg","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702134366266,"sku":"","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Dansad_vid_bjorninn_-_frontur.jpg?v=1529266783"},{"product_id":"hrakningar-a-heidavegum","title":"Hrakningar á heiðavegum","description":"\u003cp\u003eHið rómaða stórvirki Hrakningar og heiðavegir eftir þá Pálma Hannesson og Jón Eyþórsson er fyrir löngu orðið sígilt verk um öræfi Íslands og ótrúlega baráttu landsmanna við óblíða náttúru. Bækurnar hafa verið ófáanlegar um langt árabil en nú hefur verið safnað saman úrvali af hrakningasögum úr verkinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér er að finna magnaðar frásagnir af hrakningum manna víðs vegar á landinu og frá ýmsum tímum. Í sumum tilfellum eru þetta sögur af hreystimennum, oftar þó af venjulegu fólki – körlum og konum – sem þurfti að takast á við vægðarlaus náttúruöflin fjarri mannabyggð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGrípandi og átakanlegar frásagnir sem kalla fram ískaldan spennuhroll, undrun og aðdáun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHrakningar á heiðavegum er 282 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og hönnun innsíðna, Jón Ásgeir hannaði kápuna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þjóðlegur fróðleikur eins og hann gerist æsilegastur.“ Egill Helgason í Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Maður lifir sig gríðarlega inn í þetta, ég komst við á tveimur stöðum.“ Kolbrún Bergþórsdótti, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hér er að finna hreint magnaða lesningu af grimmri náttúru íslenskra öræfa (…) án efa með því besta og merkasta úr menningar- og útgáfusögu Íslendinga.“ Björgvin G. Sigurðsson, \u003ca href=\"http:\/\/pressan.is\/\"\u003epressan.is\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****1\/2\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Útgáfa bókarinnar Hrakningar á heiðavegum er þarfaverk.“ Reynir Traustason, DV\u003c\/p\u003e","brand":"Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13702328942650,"sku":"","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Kilja","offer_id":16084522074170,"sku":"hrakk","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hrakningar_-_frontur.jpg?v=1529269075"},{"product_id":"eg-sef-ekki-i-draumheldum-nattfotum","title":"Ég sef ekki í draumheldum náttfötum","description":"\u003cp\u003eHér ferðast Eyþór Árnason um lendur hugans og draumanna og ekki síst um Ísland þar sem hann meðal annars heimsækir fólk sem orðið hefur að styttum. Eyþór sló eftirminnilega í gegn með ljóðabók sinni Hundgá úr annarri sveit en fyrir hana hlaut Eyþór Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ brotinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003emilli svefns og vöku\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003egríp ég í tómt\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞá lýsa engir vitar\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ehalda engir garðar\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ehrífa engin rök \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Vel lukkað og persónulegt verk, bók sem án efa kætir unnendur ljóða Eyþórs en rödd hans verður sífellt persónulegri og betur unnið úr því sem gerir hana sérstaka, eins og ljúfsárum stemningum, endurliti og næmri tilfinningu fyrir umhverfi og náttúru.“ **** Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu\u003c\/p\u003e","brand":"Eyþór Árnason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702648627258,"sku":"ea2","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Eg_sef_ekki_i_draumheldum_nattfotum_-_frontur.jpg?v=1530040453"},{"product_id":"drungi","title":"Drungi","description":"\u003cp\u003eHaustið 1987 fer ungt par í rómantíska ferð í sumarbústað á Vestfjörðum\u2028 – ferð sem fær óvæntan endi og hefur skelfilegar afeiðingar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTíu árum síðar ákveður lítill vinahópur að verja helgi í gömlum veiðikofa í Elliðaey, nánast sambandslaus við umheiminn. Í lok dvalarinnar lætur kona úr hópnum lífið og margt bendir til þess að hún hafi verið myrt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLögreglukonan Hulda Hermannsdóttir, sem lesendur kynntust í metsölubókinni Dimmu, rannsakar andlát konunnar og fyrr en varir fer málið að vinda upp á sig.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfurétturinn á Drunga hefur þegar verið seldur til hins virta breska útgáfufyrirtækis Penguin og þarlendur framleiðandi undirbýr nú þáttaröð byggða á bókum Ragnars. Náttblinda hlaut verðlaun sem besta þýdda spennusagan í Bretlandi árið 2015.\u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003eDrungi hlaut tilnefningu til íslensku glæpasagnaverðlaunanna, Blóðdropans, 2016. \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cp\u003e„Besta bók Ragnars“. KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, KILJUNNI \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cp\u003e**** \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Best skrifaða bók Ragnars, full af sálrænum hryllingi og undirliggjandi heift.“ FRIÐRIKA BENÓNÝSDÓTTIR, FRÉTTABLAÐINU\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Flott flétta hjá Ragnari.“ STEINDÓR GUÐBJARTSSON, MORGUNBLAÐINU \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Ragnar Jónasson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13702674120762,"sku":"rj8","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15787571314746,"sku":"rj8k","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Drungi_-_frontur.jpg?v=1529267061"},{"product_id":"tvisaga-modir-dottir-fedur","title":"Tvísaga – móðir, dóttir, feður","description":"\u003cp\u003e\u003ci\u003eÞótt ég ég grátbæði hana var ég ekki viss um að mamma segði mér sannleikann um hver raunverulegur faðir minn væri. En hvort sem henni líkaði betur eða verr þá var kominn tími til að feluleiknum lyki eftir áratuga þögn.\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFjölskyldusaga Ásdísar Höllu Bragadóttur er í meira lagi dramtísk. Hér segir frá ungri, einstæðri móður í Höfðaborginni í baráttu við barnaverndarnefnd, bræðrum sem sendir eru í fóstur á Silungapoll og bíða þess aldrei bætur. Við sögu koma líka unglingsstúlka sem smyglar læknadópi inn á Litla Hraun, menn sem hún heldur að séu feður hennar, amma og stjúpafi sem búa í torfkofa uppi á Hellisheiði, berfætt telpa sem stendur ein undir vegg í snjó og myrkri og kona sem verður tvísaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVel skrifuð, opinská og einlæg frásögn þar sem Ásdís Halla Bragadóttir segir einstaka sögu móður sinnar – og þeirra mæðgna. Saga þeirra er full af gleði en líka djúpum harmi, vonum og vonbrigðum og sannleika sem aldrei er einhlítur. \u003ci\u003eTvísaga\u003c\/i\u003e er bók sem kemur á óvart og lætur engan ósnortinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEyjólfur Jónsson braut bókina um en Jón Ásgeir Hreinsson hannaði kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Ásdís Halla Bragadóttir hefur skrifað ævisögu sem kannski er einsdæmi í íslenskum bókmenntum … Þar tekst hún á við sögu móður sinnar, fjölskyldu sinnar og um leið sína eigin sögu af miklum heiðarleika og skilar sterkri sögu úr íslenskri nærfortíð, sem á köflum fær lesandann til að grípa andann á lofti og velta því fyrir sér hvers konar þjóðfélag þetta sé sem við búum í. … Vel unnin, vel skrifuð og firnasterk saga sem spilar á alla tilfinningastrengi lesenda.“ **** Friðrika Benónýs, Fréttablaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cp\u003e„Hugrekki er það sem stendur upp úr, hugrekki Ásdísar Höllu og móður hennar, að deila erfiðri sögu sorgar, harms, kærleika, ástar og átaka. Þær draga ekkert undan, eru berskjaldaðar og sannar í sinni frásögn.“ Þórey Vilhjálmsdóttir, Smartlandi á mbl.is\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cdiv\u003e\n\u003cp\u003e„Sláandi, merkileg og frábærlega skrifuð … snertir mann.“ Gísli Marteinn Baldursson\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Ásdís Halla Bragadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702699647034,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Tvisaga_-_frontur.jpg?v=1529353581"},{"product_id":"aflausn","title":"Aflausn","description":"\u003cp\u003eRáðist er á unglingsstúlku á salerni í kvikmyndahúsi. \u2028Á óhugnanlegum myndskeiðum sem send eru vinum hennar á Snapchat sést þessi vinsæla stelpa ítrekað biðjast fyrirgefningar – en á hverju og af hverju?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLögreglan er ráðalaus í leit sinni að ofbeldismanninum og stúlkunni, sem er horfin. Og þá tekur málið ískyggilega stefnu. Í \u003ci\u003eAflausn \u003c\/i\u003estíga fram á sviðið sömu aðalpersónur og í \u003ci\u003eSoginu \u003c\/i\u003eog \u003ci\u003eDNA\u003c\/i\u003e, bestu íslensku glæpasögunni árið 2014. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEyjólfur Jónsson braut bókina um en Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Vel uppbyggð, fléttan góð og þræðirnir falla saman í lokin (…) spennandi saga.“ STEINÞÓR GUÐBJARTSSON, MORGUNBLAÐINU\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa er gríðarlega fær glæpasagnahöfundur.“ VERA KNÚTSDÓTTIR, BOKMENNTIR.IS\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þessi bók finnst mér eiga heima með allra bestu spennusögum … Einkar góð glæpasaga þar sem efnistök, plott og persónusköpun koma saman í sögu sem heldur lesandanum fram á rauðanótt.“ BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR, FRÉTTBLAÐINU \u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13702715080762,"sku":"ys17","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15638131015738,"sku":"ys17k","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Aflausn_-_frontur.jpg?v=1529265459"},{"product_id":"allt-mitt-lif-er-tilviljun","title":"Allt mitt líf er tilviljun","description":"\u003cp\u003eÞað er langur vegur frá verkamannabústöðum á Siglufirði eða saggafullum kjallara í Keflavík til þess að halda heimili í þremur heimsálfum og stunda milljarða viðskipti. En á þessari leið hefur Birkir Baldvinsson lent í ótrúlegum ævintýrum, jafnt á landi sem skýjum ofar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBirkir varð ungur að árum lykilmaður í starfsemi Loftleiða á meginlandi Evrópu, honum tókst með þrjóskunnni að bjarga lífi 30 flugfarþega, átti í háskalegum flugvélaviðskiptum við ættarhöfðingja í Nígeríu, tókst að koma Krústsjov á sögufrægan fund hjá Sameinuðu þjóðunum, stöðvaði yfirgang Donalds Trump í New York, setti íslenskt samfélag í uppnám með því að ætla að kaupa hlutabréf sem ríkið ætlaði öðrum – svo fátt eitt sé nefnt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari makalausu bók segir Birkir Baldvinsson loksins sögu sína. Hann er einlægur og opinskár, hér stíga ótrúlegustu persónur fram og hvert ævintýrið rekur annað. Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar stórbrotna sögu Birkis – um sára fátækt, gríðarlega velgengni og óþrjótandi baráttuvilja.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702730154042,"sku":"se6","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Allt_mitt_lif_-_frontur.jpg?v=1529265813"},{"product_id":"ploey-you-never-fly-alone","title":"Ploey – You never fly alone","description":"\u003cp\u003ePloey – You never fly alone er ensk útgáfa bókarinnar Lói – Þú flýgur aldrei einn. Óvænt atvik verða til þess að lóunginn Lói verður eftir þegar langbesta vinkona hans, Lóa Vera, flýgur suður um höf með hinum farfuglunum um haustið. Lói er staðráðinn í að berjast fyrir lífi sínu og hitta Lóu Veru aftur um vorið. Hann lendir í ýmsum hremmingum og þarf að kljást við ótal ógnir; fálkann Skugga og fleiri rándýr sem vilja koma honum fyrir kattarnef og ekki síst ískaldan heimskautaveturinn. Með hjálp nýrra vina tekst honum hið ómögulega – og meira en það!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ framleiðslu er alþjóðleg stórmynd eftir þessari spennandi og hugljúfu sögu. Hún kemur úr smiðju þeirra sömu og gerðu Þór – Hetjur Valhallar sem er mest sótta íslenska kvikmyndin utan landsteinanna. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePloey – You never fly alone er 64 blaðsíður að lengd. Bókin er prentuð í Slóveníu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702751879226,"sku":"lóie","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/L_C3_B3i-ensk-frontur-120x180.jpg?v=1529351038"},{"product_id":"baldursbra","title":"Baldursbrá","description":"\u003cp\u003eBaldursbrá vex og dafnar í gróinni lautu en fyllist mikilli löngun til að sjá sólarlagið sem blasir við ofan af ásnum. Með hjálp Spóa og Rebba kemst hún þangað – en lendir í miklum háska á þessum nýju slóðum. Fjörugir yrðlingar koma við sögu og Hrúturinn hræðilegi sem má ekkert aumt sjá án þess að vilja éta það.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSagan byggist á ævintýraóperunni vinsælu Baldursbrá og er skreytt myndum eftir Freydísi Kristjánsdóttur. Bókinni fylgir mynddiskur með upptöku frá sýningunni í Hörpu með texta á íslensku, ensku, þýsku, dönsku, frönsku og ungversku.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBaldursbrá er 31 blaðsíða að lengd. Anna Cynthia Leplar sá um kápuhönnun og hönnun innsíðna. Bókin er prentuð í Slóveníu.\u003c\/p\u003e","brand":"Gunnsteinn Ólafsson og Freydís Kristjánsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702778716218,"sku":"baldur","price":1490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Baldursbra_-_frontur.jpg?v=1529266226"},{"product_id":"trollastrakurinn-laeknar-hrekkjusvin","title":"Tröllastrákurinn læknar hrekkjusvín","description":"\u003cp\u003eTröllastráknum Vaka og Sögu vinkonu hans finnst fátt skemmtilegra en að smíða kofa og það er alltaf eitthvað spennandi að gerast í litla kofaþorpinu þeirra. Hrekkjusvín vinna skemmdarverk á kofunum í skjóli nætur og Vaki og Saga fyllast reiði og örvæntingu. Óvæntur atburður verður síðan til þess að allir þurfa að standa saman og hjálpast að.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTröllastrákurinn læknar hrekkjusvín er í senn spennandi og lærdómsrík bók eftir Sigríði Arnardóttur, Sirrý, skreytt líflegum og grípandi myndum Freydísar Kristjánsdóttur. Bókinni fylgir geisladiskur þar sem Kristján Franklín Magnús leikari les söguna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTröllastrákurinn læknar hrekkjusvín er 29 blaðsíður að lengd. Anna Cynthia Leplar sá um kápuhönnun og hönnun innsíðna. Bókin er prentuð í Slóveníu.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigríður Arnardóttir - Sirrý","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702804602938,"sku":"sa5","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Trollastrakurinn_laeknar_-_frontur.jpg?v=1529353296"},{"product_id":"hulduthjodir-evropu","title":"Hulduþjóðir Evrópu","description":"\u003cp\u003eEvrópa er samfélag fjölda þjóða sem margar hverjar búa í sambýli við stærri og voldugri þjóðir. Sumar af þessum þjóðum þekkja flestir, t.d. Sama. Færri vita um tilvist margra þeirra, eins og t.d. Rútena, Husula og Bojka. Í gegnum aldirnar hafa landamæri færst til á meðan þessar þjóðir hafa lifað áfram, oft í skugga fjandsamlegra yfirvalda eins og óhreinu börnin hennar Evu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér er lesendum boðið í heillandi ferðalag um Evrópu þar sem hátt í fjörutíu hulduþjóðir eru heimsóttar og fjallað á aðgengilegan og lifandi hátt um sögu þeirra, sem oft og tíðum er allt að því reyfarakennd, og menningu sem stundum er gjörólík því sem ríkir í viðkomandi löndum. Yfir og allt um kring er svo átakamikil saga Evrópu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞorleifur Friðriksson er doktor í sagnfræði og eftir hann liggja ýmis rit, m.a. saga Verkmannafélagsins Dagsbrúnar. Þorleifur hefur í áraraðir ferðast um slóðir hulduþjóða í Evrópu og kynnst menningu þeirra og sögu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHulduþjóðir Evrópu er 405 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og hönnun innsíðna, Jón Ásgeir hannaði kápuna. Bókin er prentuð hjá ScandBook, Svíþjóð.\u003c\/p\u003e","brand":"Þorleifur Friðriksson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702844809274,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hulduthjodir_-_frontur.jpg?v=1529269208"},{"product_id":"draumrof","title":"Draumrof","description":"\u003cp\u003eMiðaldra maður uppgötvar að vinur hans frá fyrri tíð hefur skrifað bók þar sem hann notar atvik úr lífi mannsins og gerir þau að sínum. Hann ákveður að brjótast inn í tölvu rithöfundarins og upplýsa lesandann um hvað hann finnur þar. Samhliða því segir maðurinn sögu sína og konu sinnar af mikilli einlægni – sögu um velgengni og fall, óbærilegan harm og djúpstæða sátt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFimmtíu ár eru síðan fyrsta skáldsaga Úlfars Þormóðssonar kom út en eftir hann liggur fjöldi skáldsagna og verka af ýmsu tagi. Hann hlaut viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins 2012 fyrir ritstörf sín.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDraumrof er 157 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og hönnun innsíðna, Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð hjá ScandBook, Svíþjóð.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfar Þormóðsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702865780794,"sku":"ulf6","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Draumrof_-_frontur.jpg?v=1529267015"},{"product_id":"vigholar","title":"Víghólar","description":"\u003cp\u003eVinnuvélar verktakafyrirtækis eru stórskemmdar í skjóli nætur. Illa útleikin lík finnast á nokkrum stöðum á landinu. Margt bendir til að þarna séu að verki aðilar úr öðrum heimi. Lögreglan fær Bergrúnu Búadóttur huldumiðil til að aðstoða við rannsókn málsins. Fljótlega kemur í ljós að myrk og máttug öfl seilast til aukinna valda bæði í Mannheimi og Hulduheimi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBergrún og Brá, tvítug dóttir hennar, leggja af stað í ferðalag sem fljótlega umbreytist í háskaför þar sem þær þurfa að kljást við óútreiknanlega og máttuga andstæðinga. Samhliða því myndast mikil spenna í sambandi mæðgnanna sem verður til þess að leiðir þeirra skilja. Emil Hjörvar Petersen er helsti frumkvöðull á sviði furðusagna hér á landi. Hann hlaut mikið lof fyrir þríleik sinn \u003ci\u003eSaga eftirlifenda\u003c\/i\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Dúndurgóð íslensk fantasía.“ \u003ci\u003eMorgunblaðið\u003c\/i\u003e, um \u003ci\u003eSögu eftirlifenda\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hörkuspennandi frá fyrstu blaðsíðu … Söguheimurinn er stórsniðugur og Emil á hrós skilið fyrir heimshönnunina.“ \u003ci\u003eBjarni Ólafsson, Morgunblaðinu\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Heimurinn er sannfærandi sem Emil býr til og frásögnin er skemmtileg.“ Illugi Jökulsson, \u003ci\u003eKiljunni\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Emil spinnur þessar sögur af alveg ótrúlegri hugmyndauðgi og maður bara sogast inn í þennan sagnaheim.“ \u003ci\u003eDagný Kristjánsdóttir, Rás 1\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Emil Hjörvar Petersen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702888161338,"sku":"ehp","price":2999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Vigholar-frontur-600x852.jpg?v=1535381175"},{"product_id":"astarsogur-islenskra-kvenna","title":"Ástarsögur íslenskra kvenna","description":"\u003cp\u003eAldrei áður hefur önnur eins bók komið út. Í fyrsta sinn hefur verið safnað saman reynslusögum íslenskra kvenna af ástinni. Hér er að finna safn af sönnum ástarsögum af öllu tagi eftir konur sem koma hvaðanæva að. Ástarævintýri á Tinder, ástarsaga úr sveit frá síðustu öld, ástarsaga úr miðborg Reykjavíkur – og allt þar á milli.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSögurnar eru rómantískar og fyndnar, einfaldar og flóknar, harmrænar og gleðilegar; stundum gerast þær á örfáum dögum, stundum á nokkrum áratugum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaría Lilja Þrastardóttir og Rósa Björk Bergþórsdóttir söfnuðu sögunum saman og bjuggu til útgáfu í samráði við konurnar sem hér segja frá.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er 227 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónnson sá um umbrot og hönnun innsíðna, Krista Hall hannaði kápuna og Oddi prentaði.\u003c\/p\u003e","brand":"María Lilja Þrastardóttir, Rósa Björk Bergþórsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702969131066,"sku":"","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Astarsogur_islenskra_kvenna_-_frontur.jpg?v=1530039946"},{"product_id":"konan-i-myrkrinu","title":"Konan í myrkrinu","description":"\u003cp\u003eÍris er ungur lögfræðingur og einstæð móðir sem reynir að fóta sig á framabrautinni samhliða því að sjá um erfiðan son sinn. Ray, sem er ekki eins og fólk er flest, er lokaður inni á stofnun eftir að hafa verið dæmdur fyrir hrottalegt morð á ungri konu og dóttur hennar. Leiðir Írisar og Rays liggja óvænt saman sem verður til þess að af stað fer atburðarás sem gjörbreytir lífi þeirra.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKonan í myrkrinu er djúp og grípandi spennusaga þar sem ekkert er sem sýnist og skyggnst er inn í hugarheim sem flestum er framandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMarion Pauw er drottning hollenskra spennusagna og hlaut hin virtu spennusagnaverðlaun Gullnu snöruna fyrir bókina. Nú þegar hefur verið gerð kvikmynd eftir sögunni sem hlotið hefur fjölda verðlauna og bandarísk stórmynd byggð á bókinni er í burðarliðnum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Áhrifamikil og grípandi spennusaga. Hugvitsamlega samansett, hrollurinn smýgur inn að beini. Frumleg, engar klisjur og málfarið hlaðið perlum.“ *****\u003cbr\u003e Crimezone\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þessi læsilega og hraða spennusaga mun halda lesendum sem voru hrifnir af Hún er horfin og Konan í lestinni föngnum fram á síðustu blaðsíðu.“\u003cbr\u003e Library Journal\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKonan í myrkrinu er 338 blaðsíður að lengd. Ragna Sigurðardóttir þýddi. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Marion Pauw","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13703009534010,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Konan_i_myrkrinu_-_frontur.jpg?v=1529269497"}],"url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/collections\/verold.oembed?page=18","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}