{"title":"skáldsögur – íslenskar","description":"","products":[{"product_id":"blodengill-oskar-gudmundsson","title":"Blóðengill","description":"\u003cp\u003eÁ frosthörðum vetrardegi hringir kornung stúlka í Neyðarlínuna og tilkynnir að móðir hennar sé látin. Þegar lögreglan kemur á staðinn er það ekkert að finna nema blóðug ummerki. Rannsóknarlögreglukonan Hilma og félagar hennar mega engan tíma missa í leit sinni að mæðgunum – leit sem dregur þau inn á óvæntar slóðir og inn í myrkustu kima mannskepnunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHilma – frysta bók Óskars Guðmundssonar – fékk frábærar viðtökur og verðskuldaða athygli. Hún hlaut Blóðdropann árið 2016 sem besta glæpasagan og var tilnefnd til Glerlykilsins sem besta glæpasaga á Norðurlöndum. Þá hlaut hún einnig Tindabykkjuna sem besta glæpasaga ársins af Glæpafélagi Vestfjarða.\u003c\/p\u003e","brand":"Óskar Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":7469820051514,"sku":"óg","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Blodengill_-_frontur.jpg?v=1530045622"},{"product_id":"album","title":"Albúm","description":"","brand":"Guðrún Eva Mínervudóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12956473557050,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/alb_C3_BAm-120x180.jpg?v=1529007038"},{"product_id":"a-medan-hann-horfir-a-thig-ertu-maria-mey","title":"Á meðan hann horfir á þig ertu María mey","description":"","brand":"Guðrún Eva Mínervudóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12956674359354,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/download-120x180.jpg?v=1529006883"},{"product_id":"hjarta-mannsins","title":"Hjarta mannsins","description":"\u003cp\u003eÍ gamalli arabískri læknisbók segir að hjarta mannsins skiptist í tvö hólf, annað heitir hamingja, hitt örvænting. Hólfin eru tvö og þessvegna er hægt að elska tvær manneskjur á sama tíma, líffræðin býður upp á það, krefst þess myndu sumir segja, en samviskan, vitundin, segir okkur allt annað og hversdagurinn getur því verið óbærilega þungfær.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJón Kalman Stefánsson hlaut nýlega hin virtu norrænu bókmenntaverðlaun sem kennd eru við P.O. Enquist. Hann hefur þrisvar verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hann hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHjarta mannsins er sjálfstætt framhald bókanna Himnaríki og helvíti (2007) og Harmur englanna (2009)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e* * * * * \u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e„Í Hjarta mannsins leikur Jón Kalman Stefánsson á alla lífsins strengi af mikilli list og skapar stórkostlegt verk … Bókin er eins og lífið; sorgir og sigrar, draumar, ást og hamingja.“ \u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e–Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðið \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/www.ruv.is\/frett\/bokmenntir\/domur-um-hjarta-mannsins\"\u003eDÓMUR GAUTA KRISTMANNSSONAR Í VÍÐJSJÁ\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/www.dv.is\/menning\/2011\/10\/21\/dyrd-200-sidum\/\"\u003eDÝRÐ! – DÓMUR INGA FREYS Í DV\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/bjartur.is\/?i=2\u0026amp;f=2\u0026amp;o=2466\"\u003eDÓMUR INGVELDAR GEIRSDÓTTUR Í MORGUNBLAÐI\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/www.bokmenntir.is\/desktopdefault.aspx\/categories-1923\/tabid-4299\/7094_read-10215\/\"\u003eBÓKMENNTIR.IS\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Jón Kalman Stefánsson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":12957680992314,"sku":"jks9","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":16082496389178,"sku":"jks9k","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hjarta_mannsins.jpg?v=1529008177"},{"product_id":"jardnaedi","title":"Jarðnæði","description":"\u003cp\u003eFJÖRUVERÐLAUNIN 2011\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞriðja besta bók ársins að mati bóksala.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e„Hún hefur skemmtilega og frjóa hugsun … skemmtilega skrifuð bók og gaman að lesa hana.“\u003c\/strong\u003e– Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e„Mikil ástarsaga.“- \u003c\/strong\u003ePáll Baldvin Baldvinsson, Kiljan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e* * * *\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e“Sjálfsæviskrif Þórbergs Þórðarsonar koma einna helst upp í hugann við lestur Jarðnæðis. Yfir skrifunum svífur sama einlægnin og hnyttnin, andinn svolítið barnslegur þannig að minnir nokkuð á Ofvitann. Oddný er algerlega laus við allt sem heitir tilgerð, textinn er sannur og meitlaður og gríðarlega fyndinn á köflum. Hér er engu ofaukið og einskis vant og í heildina er þetta einlæg og bráðskemmtileg bók, sneisafull af skemmtilegum pælingum og fallegum setningum.” \u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAnna Lilja Þórisdóttir, Morgunblaðið 7. desember\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e“Ástarsagan í bókinni kemur með erótíska vídd inn í hana, vissan hversdagslegan hita. Þetta er á köflum volg bók, holdleg, og yfirleitt blíð og mjúk…. Oddný leikur sér mikið í þessari bók; leyfir sér að teygja tungumálið í margar áttir, nota slangurorð og skemmtilegt tal- og barnamál… Bókin er fjörlega stíluð og sérviskuleg, höfundurinn lætur flest flakka í belg og biðu, spurningar, stórar sem smáar og lætur sig flest mannlegt varða… Í tilfelli Oddnýjar tekst henni vel að skapa flæði í bókinni og textinn rennur áfram, án þess þó að hún fari yfir strikið og tapi sér og lesandandum í hugrenningum sínum.” \u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e**** DV, 9. desember, 2011, Ingi Freyr Vilhjálmsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e “Oddný Eir hefur nú þegar skapað sér sérstöðu meðal íslenskra höfunda. Texti hennar er bæði fallegur og stórfróðlegur í senn, stíllinn djarfur og einkennilegur. Það besta við Oddnýju við höfund þykir mér þó grallaraskapurinn í henni. Hún hikar ekki við að leika sér með orð og setningar, jafnvel búa til orð eftir hentugleikum- og texti hennar er svo sannarlega úr lífrænu efni.” \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e* * * * Fréttablaðið, 28. nóvember, 2011. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“Jarðnæði er eins og Heim til míns hjarta margt í senn; skopleg lýsing á sálinni a la Þórbergur, heimspekilegt spjall og kostuleg kistulagning með loforði um sprellandi upprisu. en mest er þó um vert að hún er einlæg og falleg tilraun til að ná tökum á verunni með orðum sem falla ekki að vananum heldur eru notuð til að byggja upp stóran vef með nýjum blöðum og blómum, sköpun sem er heillandi í fegurð og skörp í útlínum minnis og miða… Þetta er semsagt galdrabók og ratar þannig ekki alveg í formin á markaðnum.” \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e* * * * * Fréttatíminn, 2. desember, 2011. Páll Baldvin Baldvinsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“Nándin er hér eins og í fyrri verkum Oddnýjar til umfjöllunar. Einkum nándin við kærastann og bróðurinn í þetta sinn og hugleiðingar um hvers konar nánd sé eftirsóknarverð, ‚viðeigandi‘, bætandi en ekki tæmandi. Hún veltir fyrir sér sambandi sínu við bróður sinn á ýmsa vegu og finnur hliðstæður og andstæður í öðrum systkinasamböndum eins og hjá Dorothy og William Wordsworth…Oddný hefur pússað sitt form, jaðarform bókmenntanna, eins og hún kallar það og býður lesandanum uppá náin kynni og lesandinn þarf í raun að gangast inn á þau kynni til að njóta textans… Þótt gripurinn sjálfur sé fagur eins og við var að búast, þá er þetta að sjálfsögðu ekki líkamleg nánd heldur textaleg, sem með vísunum sínum fram og aftur í tíma, sögur, bókmenntir o.fl., skapar einnig næði fyrir lesandann til að finna sitt eigið rými og skrifa sína eigin sögu.” \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókmenntir.is desember, 2011. Gunnþórunn Guðmundsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“Eitthvað við þessa bók gerir það að verkum að allar greiningar á henni eru óþarfar og engin gífuryrði ríma við hið kyrrláta andrúmsloft hennar…Vanalega næ ég ekki nema rétt leggja höfuðið á koddann, opna bók og lesa örfáar línur áður en ég byrja að dotta. En eitthvað gerðist þegar ég las þessa bók. Í stað þess að rúlla strax út af las ég oft marga kafla í einu á kvöldin og var enn að lesa löngu eftir að allir aðrir voru sofnaðir. Og þarna, við litla ljóstýru í myrkrinu, með dumbrauða bók í höndunum og þungan andardrátt annarra fjölskyldumeðlima streymandi yfir mér fann ég óvænt mitt jarðnæði.” \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDruslubækur og doðrantar, desember, 2011. Guðný Lára\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“Umfram önnur verk sem ég hef lesið þetta árið mótast Jarðnæði nefnilega af rósemdarlegu en engu að síður magnþrungnu sambandi við tungumálið, þar sem frumleg og leikandi málvitund skapar frjálslegu vitundarvappi umgjörð og vettvang… Hér er á ferðinni ástarsaga, sögumaður tengist ástmanni sínum Fugla snemma í bókinni og frásögnin hverfist að mörgu leyti um það vandasama ferli sem í hönd fer þegar tvær manneskjur ákveða að deila sínu jarðnæði, eða leita í sameiningu að nýju.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg held þó að sagan af Fugla sé ekki eina ástarsagan í sögunni. Sambandið við bróðurinn Ugla er afskaplega náið og einlægt, en stundum virðist það líka leika á mörkum hins transgressífa, og ganga vangaveltur um ástir systkina í gegnum bókina. Og þar komum við aftur að systkinunum William og Dorothy, en Dorothy bjó lungann af ævinni með bróður sínum og var samband þeirra skáldinu yrkisefni…. En þannig snýst bókin einnig á djúpstæðan hátt um sjálfræði og sjálfstæði og segja má að þessi leit, þessi þroskasaga sögumannsins, kallist á við hugmyndina um jarðnæði í sögulegu samhengi, jarðnæði var jú mikilvægasti og kannski eini frelsiskostur vinnumannsins sem vildi verða bóndi í íslensku sveitasamfélagi fyrri tíma. Þannig má segja að verkinu takist að skapa afskaplega áhrifamikið og þéttriðið merkingarnet þar sem hugleiðingar um breytileika tilverunnar og það hvar raunverulega kjölfestu í lífinu sé að finna – hvernig hin fullkomna heimvera, ef svo má að orði komast, lítur út – tengjast með táknrænum hætti áherslunni sem lögð er á fornleifa- og þjóðháttafræði í bókinni, sem vísar eins og áður segir til baráttu forfeðranna fyrir sjálfstæði og jarðnæði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVíðsjá, 15. desember, 2011. Björn Þór Vilhjálmsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“Oddný eir nýtir sér galdur dagbókarformsins sem felst í því að hversdagslegustu og persónulegustu upplifanir ná oft að kveikja í lesandanum óstjórnlega forvitni að vita meira… Það myndast því persónuleg nánd milli sögumanns og lesanda í þessari bók þótt höfundurinn flétti heimspekilegum og samfélagslegum vangaveltum saman við einkalífslýsingar. Tónninn er persónulegur og oft ljóðrænn, stutt í fantasíuna. Hver hugsunin stekkur upp úr annarri í hugmyndaflæði sem hefur þó þugan meginstraum. Og Oddný Eir bremsar alltaf áður en hún verður of háfleyg, kallar sjálfa sig niður á jörðina, stundum með hálfgerðum töfraþulum, orðarunum.” \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSpássían, desember, 2011. Auður Aðalsteinsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/bjartur.is\/D%C3%B3mur%20%C3%AD%20Sp%C3%A1ss%C3%ADu:%20http:\/\/spassian.is\/greinar\/2011\/12\/uppdr%C3%A1ttur-a%C3%B0-samf%C3%A9lagi\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\"\u003eDómur í Spássíu: http:\/\/spassian.is\/greinar\/2011\/12\/uppdráttur-að-samfélagi\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/bjartur.is\/D%C3%B3mur%20%C3%AD%20V%C3%AD%C3%B0sj%C3%A1:%20http:\/\/www.ruv.is\/frett\/bokmenntir\/ritdomur-um-jardnaedi\"\u003eDómur í Víðsjá: http:\/\/www.ruv.is\/frett\/bokmenntir\/ritdomur-um-jardnaedi\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ca href=\"http:\/\/bjartur.is\/D%C3%B3mur%20%C3%AD%20DV:%20%20http:\/\/www.dv.is\/menning\/2011\/12\/9\/farfugl-leitar-rota\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\"\u003eDómur í DV:  http:\/\/www.dv.is\/menning\/2011\/12\/9\/farfugl-leitar-rota\/\u003c\/a\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKápu hannaði Ragnar Helgi Ólafsson. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrentuð í Odda. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Oddný Eir Ævarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12957744037946,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Jardnaedi_kilja.jpg?v=1529008242"},{"product_id":"svar-vid-brefi-helgu","title":"Svar við bréfi Helgu","description":"\u003cp\u003eAldraður bóndi skrifar bréf til ástkonunnar sem honum bauðst að fylgja til borgarinnar forðum tíð. Gerði hann rétt í að taka sveitina fram yfir kærleikann? Hefði hann fremur átt að flytjast til Reykjavíkur til að moka skurð eða reisa bragga fyrir Ameríkana? Minningar úr sveitinni fléttast inn í safaríkar frásagnir af því sem hann kallar fengitíð lífs síns. Fornar ástir renna saman við sagnir af gleymdum líkum, lágfættum hrútum sem liggja afvelta milli þúfna og því þegar Farmallinn kom.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ tilefni frumsýningar leikgerðarinnar í Borgarleikhúsinu er bókin gefin út með leikhúskápu.\u003c\/p\u003e","brand":"Bergsveinn Birgisson","offers":[{"title":"Kilja","offer_id":12957857972282,"sku":"","price":2480.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Leikhúskápa","offer_id":16174898380858,"sku":"","price":2480.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/SVAR_vid_brefi_innb_10.jpg?v=1529008280"},{"product_id":"thad-kemur-alltaf-nyr-dagur","title":"Það kemur alltaf nýr dagur","description":"\u003cp\u003eÁsa hefur búið í New York síðan hún stakk af frá Íslandi forðum daga. Þegar maðurinn hennar yfirgefur hana fyrir aðra konu og faðir hennar deyr snýr hún heim á eyðibýlið sem einu sinni var æskuheimili hennar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ yfirgefnu húsinu ráða draugar liðinnar tíðar ríkjum og sleppa henni ekki lausri fyrr en hún hefur gert upp við fortíðina, fjölskylduna, og lífið sem hún eitt sinn lifði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eÞað kemur alltaf nýr dagur\u003c\/em\u003e er fyrsta skáldsaga Unnar Birnu Karlsdóttur, sagnfræðings.\u003c\/p\u003e","brand":"Unnur Birna Karlsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12957957849146,"sku":"ubk","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Thad_kemur_alltaf_nyr_dagur.jpg?v=1529008305"},{"product_id":"fyrir-lisu","title":"Fyrir Lísu","description":"\u003cp\u003eMartin Montag kynntist ungri stúlku, Lísu, þegar hann var læknanemi á geðdeild. Hann hefur aldrei getað gleymt sögu hennar. Dag einn ákveður hann að taka af skarið og hafa uppi á henni en það hrindir af stað atburðarás sem hann missir alla stjórn á. Úr verður reyfari, farsi, harmleikur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eFyrir Lísu\u003c\/em\u003e er sjálfstætt framhald skáldsögunnar \u003cem\u003eJójó\u003c\/em\u003e, sem kom út hjá Bjarti árið 2011. Bóksalar völdu hana bók ársins, hún hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og einróma lof gagnrýnenda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e***** ,,\u003cem\u003eMjög flott – reyndar mjög, mjög flott\u003c\/em\u003e.“ Kristján Hrafn Guðmundsson, DV (um Jójó)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e*****,, … \u003cem\u003enálgast fullkomnun\u003c\/em\u003e,“ Friðrika Benónýsdóttir, Fbl. (um Jójó)\u003c\/p\u003e","brand":"Steinunn Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12958386978874,"sku":"steinunn17","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Fyrir_Lisu.jpg?v=1529008329"},{"product_id":"athena-ad-eilifu-kumen","title":"Aþena – að eilífu, kúmen!","description":"\u003cp\u003eAð fermast eða ekki fermast, það er spurningin. En Aþena hefur ekkert val, hún á óuppgerða skuld við Guð sem hún þarf að gangast við. Að öðru leyti stefnir allt í rólegan vetur en þegar hún kynnist Snæju, fjörugum ofurhuga, tekur lífið skyndilega nýja stefnu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOg spurningin verður: Ræður Aþena við hraðann? Er hún tilbúin fyrir stráka með bílpróf, telpur með kjaft og foreldralaus partí?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð samviskuna á annarri öxlinni og púkann á hinni reynir Aþena að fóta sig í þessum nýja og ögrandi heimi. Og svo er það þessi blessaða spurning sem hún bara finnur ekkert svar við: Hver er ég?\u003c\/p\u003e","brand":"Margrét Örnólfsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":12958420369466,"sku":"mö4","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Athena_-_ad_eilifu_kumen.jpg?v=1529009728"},{"product_id":"undantekningin-de-arte-poetica","title":"Undantekningin – de arte poetica","description":"\u003cp\u003eSagan hefst á gamlárskvöld, þegar Flóki, eiginmaður söguhetjunnar kemur út úr skápnum og flytur til nafna síns og samstarfsmanns. Báðir eru þeir stærðfræðisnillingar og sérfræðingar í óreiðukenningunni. Í kjallaranum býr dvergurinn Perla sem leggur stund á hjónabandsráðgjöf og ritstörf þótt hún hafi hvorki veri gift né sent frá sér bók.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUndantekningin er 4. skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur. Afleggjarinn og Rigning í nóvember hafa farið sigurför um Evrópu, setið á metsölulistum, verið tilnefndar til virtra verðlauna og eru væntanlegar á yfir 20 tungumálum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e„Auður Ava hefur firnagott vald á þeim stíl að segja flókna hluti á einfaldan hátt, sem ekki mörgum er gefinn (…) Undantekningin er án efa með betri bókum sem ég hef lesið.“\u003cbr\u003e\u003cem\u003e- Ásta Gísladóttir, Spássían\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Undantekningin er fjórða skáldsaga Auðar Övu og á eflaust eftir að fara svipaða sigurför og hinar fyrri. Þetta er algjörlega mögnuð bók og öðruvísi, fallega skrifuð og auðlesin, eða ætti ég kannski að segja fljótlesin því maður verður að fá að vita meira og meira þar til yfir lýkur og þá vill maður samt fá að vita meira.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eIngveldur Geirsdóttir, \u003c\/em\u003e\u003cem\u003eMorgunblaðið, 19. desember 2012\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Auður Ava Ólafsdóttir","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":12958595481658,"sku":"aaó4","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":16405137981498,"sku":"aaó4k","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Undantekningin.jpg?v=1529008744"},{"product_id":"fiskarnir-hafa-enga-faetur","title":"Fiskarnir hafa enga fætur","description":"\u003cp\u003e\u003ci\u003e            „Það eru til fleiri heimar en við getum talið, og enginn þeirra er sá rétti.“\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er sviðið:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAustfirsk fjöll og Keflavík sem kölluð hefur verið svartasti staður landsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér er sögð saga ættar allt frá byrjun tuttugustu aldar og fram til okkar daga. Sagan teygir sig frá Norðfirði til Keflavíkur, hún nær yfir allt landið, yfir fjöllin sem eru fornar rósir færðar guðum og hraunið sem lítur stundum út eins og blótsyrði djöfulsins. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er saga fólks sem elskar og þjáist, sem leitar og flýr, saga um sársauka og söknuð, ofbeldi og kvótalaust haf. Saga um Kanaskip, Bítlana og Pink Floyd, um bjarta og dimma daga á Norðfirði þar sem kona breytist í lifandi múmíu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e***** – Fréttablaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e***** – Morgunblaðið\u003c\/p\u003e","brand":"Jón Kalman Stefánsson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13408353124410,"sku":"jks11","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Kilja","offer_id":15793346445370,"sku":"jks11k","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Fiskarnir.jpg?v=1529007811"},{"product_id":"1983","title":"1983","description":"\u003cp\u003eÁ hjara veraldar er tólf ára gamall drengur á hraðri ferð inn í heim hinna fullorðnu. Á einu ári uppgötvar hann ekki aðeins ástina heldur einnig hverfulleikann, um leið og hann vígist inn í heim orðanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér er sögð nýstárleg saga úr íslensku þorpi á fyrri hluta níunda áratugarins, heimi sem er í senn framandi og kunnuglegur. Þetta er bók um þrá eftir hinu óljósa, leitina að sjálfum sér, draumkennd skip, og gamla loftbelgi sem líða um hugarheima ungmenna mjög ofarlega á slönguspilinu. Síðast en ekki síst er þetta ástarsaga sem gerist fjarri öllum kastljósum úti við ysta haf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003e1983 \u003c\/i\u003eer fjórða skáldsaga Eiríks Guðmundssonar, en sú síðasta, \u003ci\u003eSýrópsmáninn\u003c\/i\u003e, var tilnefnd til menningarverðlauna DV.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003ca href=\"http:\/\/ruv.is\/bokmenntir\/afstaedi-tilverunnar-timans-og-minninganna\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\"\u003e\n\u003cp\u003eHér má sjá umfjöllun Fríðu Bjarkar um bókina, í Víðjsá.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/a\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003ca href=\"http:\/\/www.ruv.is\/sarpurinn\/virkir-morgnar\/17122013-1\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\"\u003e\n\u003cp\u003eHér fjallar Auður Haralds um bókina í Virkum morgnum\u003c\/p\u003e\n\u003c\/a\u003e","brand":"Eiríkur Guðmundsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13408384843834,"sku":"","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/1983.jpg?v=1529007865"},{"product_id":"hlustad","title":"Hlustað","description":"\u003cp\u003e\u003cb\u003eHLUSTAÐ\u003c\/b\u003e eftir Jón Óttar Ólafsson. Lögreglusaga af algerlega nýju kaliberi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUng kona finnst látin í gömlum grásleppuskúr við Ægisíðu í desember 2009. Margt bendir til þess að hún hafi tekið of stóran skammt, en lögreglumaðurinn Davíð er sannfærður um að hún hafi verið myrt. Eina vísbending hans er óskráð símanúmer. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAf tilviljun kemst hann yfir hljóðupptöku af heimili efnaðs fíkniefnasala, sem lögreglan fylgist með. Upptakan rennir stoðum undir grun hans. En hann þarf að berjast fyrir því að fá að rannsaka málið – um leið og hann reynir að bjarga starfi sínu. Og hjónabandinu. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eValdamiklir menn vernda hver annan. Og þá skiptir morðrannsókn litlu. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJón Óttar Ólafsson er doktor í afbrotafræðum frá Cambridge-háskóla. Hann hefur starfað innan lögreglunnar, í fjárfestingabanka og hjá Sérstökum saksóknara. Þetta er hans fyrsta skáldsaga.\u003c\/p\u003e","brand":"Jón Óttar Ólafsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13408407978042,"sku":"jóó","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hlustad.jpg?v=1529007901"},{"product_id":"undantekningin-i-kilju","title":"Undantekningin – í kilju","description":"\u003cp\u003eSagan hefst á gamlárskvöld, þegar Flóki, eiginmaður söguhetjunnar kemur út úr skápnum og flytur til nafna síns og samstarfsmanns. Báðir eru þeir stærðfræðisnillingar og sérfræðingar í óreiðukenningunni. Í kjallaranum býr dvergurinn Perla sem leggur stund á hjónabandsráðgjöf og ritstörf þótt hún hafi hvorki veri gift né sent frá sér bók.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUndantekningin er 4. skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur. Afleggjarinn og Rigning í nóvember hafa farið sigurför um Evrópu, setið á metsölulistum, verið tilnefndar til virtra verðlauna og eru væntanlegar á yfir 20 tungumálum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Auður Ava hefur firnagott vald á þeim stíl að segja flókna hluti á einfaldan hátt, sem ekki mörgum er gefinn (…) Undantekningin er án efa með betri bókum sem ég hef lesið.“\u003cbr\u003e\u003cem\u003e- Ásta Gísladóttir, Spássían\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Undantekningin er fjórða skáldsaga Auðar Övu og á eflaust eftir að fara svipaða sigurför og hinar fyrri. Þetta er algjörlega mögnuð bók og öðruvísi, fallega skrifuð og auðlesin, eða ætti ég kannski að segja fljótlesin því maður verður að fá að vita meira og meira þar til yfir lýkur og þá vill maður samt fá að vita meira.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eIngveldur Geirsdóttir, \u003c\/em\u003e\u003cem\u003eMorgunblaðið, 19. desember 2012\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Auður Ava Ólafsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13408869679162,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Undantekning_kilja.jpg?v=1529008143"},{"product_id":"chineasy-thad-er-leikur-ad-laera-kinversku","title":"Chineasy – það er leikur að læra kínversku","description":"\u003cp\u003e\u003ci\u003eChineasy er\u003c\/i\u003e ný sjónræn aðferð sem búin var til að í því skyni að gera kínverskunám létt og skemmtilegt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMyndirnar í bókinni eru ægifagrar. Augnayndi sem veitir dýrmæta innsýn í kínverska tungu og menningu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003e \u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e978-9935-454-36-2\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e192 bls\u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13409202798650,"sku":"chi","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Chineasy.jpg?v=1529010364"},{"product_id":"okyrrd","title":"Ókyrrð","description":"\u003cp\u003eKvöld eitt fær lögreglumaðurinn Davíð Arnarson beiðni í SMS um að koma til Cambridge. Hann þekkir ekki númerið og það er hvergi á skrá. Morguninn eftir berst lögreglunni í Reykjavík hjálparbeiðni vegna morðs á íslenskum eðlisfræðistúdent sem var að rannsaka ókyrrð í lofti – við  Cambridge-háskóla. Æsileg atburðarás fer í gang þar sem Davíð reynir að aðstoða bresk yfirvöld við komast til botns í morðmálinu en hverjum getur hann treyst? Og áður en hann veit af er lífi hans sjálfs ógnað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJón Óttar Ólafsson kvaddi sér hljóðs á íslenskum glæpasagnamarkaði með bókinni Hlustað sem út kom 2013. Hún hefur þegar komið út í Noregi og Frakklandi. Ókyrrð sýnir svo ekki verður um villst að Jón Óttar er glæpasagnahöfundur í fremstu röð!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e978-9935-454-38-6\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e292\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hugsun höfundar að plottinu er ágæt, sérstaklega með tenginguna við Ísland, og frásögnin er spennandi,“ skrifar Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðið, 27.11.2014\u003c\/p\u003e","brand":"Jón Óttar Ólafsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13409233698874,"sku":"","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/OkyrrdFrontHighRes.jpg?v=1529007605"},{"product_id":"astarmeistarinn","title":"Ástarmeistarinn","description":"\u003cp\u003eAnna og Fjölnir hafa bæði beðið skipbrot í ástinni. Þau leggja allt í sölurnar í leit að meistara sem getur kennt þeim að elska á nýjan leik. Þau tefla blindskák við ástina í þeirri von að máta sjálf sig og leikurinn litast af skömm, sælu, goðsögum, kynlífi og þrám. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eÁstarmeistarinn \u003c\/i\u003eer þriðja skáldsaga Oddnýjar Eirar, en hún var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut Fjöruverðlaunin fyrir \u003ci\u003eJarðnæði\u003c\/i\u003e (2011) og var tilnefnd til Menningarverðlauna DV fyrir \u003ci\u003eHeim til míns hjarta\u003c\/i\u003e (2009).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e315 bls\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e978-9935-454-40-9\u003c\/p\u003e","brand":"Oddný Eir Ævarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13409248804922,"sku":"astar","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Astarmeistarinn.jpg?v=1529007645"},{"product_id":"gaedakonur","title":"Gæðakonur","description":"\u003cp\u003eEldfjallafræðingurinn María Hólm er á leið í flugvél til Parísar. Hinum megin við ganginn situr kona sem gefur henni auga. Daginn eftir sér hún sömu konu á kaffihúsi þar sem hún fær sér morgunverð. Hver er hún þessi Donna með rödd sem er í senn suðandi þýð og raspandi gróf? Og hvað vill hún Maríu – konunni sem jökullinn skilaði?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ skáldsögunni \u003ci\u003eGæðakonur\u003c\/i\u003e kemur Steinunn Sigurðardóttir að lesandanum úr óvæntri átt. Hún sýnir hér allar sínar bestu hliðar: ískrandi kaldhæðni, flugbeittur stíll, leiftrandi húmor og einstök innsýn í heim alls kyns ásta og erótíkur. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e230 bls\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e978-9935-454-39-3\u003c\/p\u003e","brand":"Steinunn Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13409278689338,"sku":"steinunn18","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/GaedaKonurHighRes.jpg?v=1529007687"},{"product_id":"geirmundar-saga-heljarskinns","title":"Geirmundar saga heljarskinns","description":"\u003cp\u003e\u003cem\u003e«Geirmundr heljarskinn sté nú til slíkra virðinga at svá er sagt at hverr maðr á Vestfjörðum vildi sitja eðr standa svá sem hann fyrir sagði.»\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGeirmundur heljarskinn var sagður göfgastur allra landnámsmanna á Íslandi. Þó hefur sögu hans aldrei verið haldið á lofti – fyrr en nú. Enda má segja að hann sé, þegar öllu er á botninn hvolft, 21. aldar maður, þótt hann hafi verið uppi fyrir 1100 árum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBergsveinn Birgisson vakti mikla athygli í Noregi árið 2013 fyrir fræðirit sitt um Geirmund heljarskinn sem hann ritaði á norsku og nefndi Svarta víkinginn. Hér er hins vegar loks hægt að lesa stórbrotna sögu Geirmundar sjálfs. Og kominn tími til.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003e„Meistaraverk.“\u003c\/em\u003e\u003cbr\u003e– Aftenposten um Svarta víkinginn\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBergsveinn Birgisson hefur rannsakað sögu landnámsmannsins Geirmundar heljarskinns um árabil. Hann hefur leitað fanga víða, í fornum ritum, munnmælum og örnefnum, stuðst við fornleifarannsóknir, málfræði og erfðafræði.  \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHér er komin Íslendingasagan sem fékk ekki að vera með.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBergsveinn Birgisson er höfundur bókanna Landslag er aldrei asnalegt, Handbók um hugarfar kúa og \u003ca title=\"Svar við bréfi Helgu\" href=\"http:\/\/www.bjartur.is\/baekur\/svar-vid-brefi-helgu\/\"\u003eSvar við bréfi Helgu\u003c\/a\u003e, sem var besta bók ársins 2010 að mati bóksala, hlaut tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bergsveinn er fræðimaður í Noregi, þar sem hann kennir norrænar miðaldabókmenntir.\u003c\/p\u003e","brand":"Bergsveinn Birgisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13410080522298,"sku":"bb5","price":3699.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/GeirmundarSagaFrontur.jpg?v=1528747782"},{"product_id":"eitthvad-a-staerd-vid-alheiminn","title":"Eitthvað á stærð við alheiminn","description":"\u003cp\u003eÚtgáfudagur: 21.10.2015\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTíminn líður ekki í eilífðinni, þar verður tillitslaust afl hans að engu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér lýkur ættarsögunni sem hefst í bókinni \u003ca href=\"http:\/\/www.bjartur.is\/baekur\/fiskarnir-hafa-enga-faetur\/\"\u003e\u003cem\u003eFiskarnir hafa enga fætur\u003c\/em\u003e\u003c\/a\u003e (2013) og teygir sig frá Norðfirði forðum til Keflavíkur dagsins í dag, með viðkomu á Miðnesheiðinni. Hér er sagt frá ástinni, sem er í senn fórn og jafnvægislist, frá lífi og dauða, krepptum hnefa, Elvis Presley sem kann að opna hjörtun og stjörnum himinsins sem hverfa í eldi sólarinnar. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTILNEFND TIL ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA\u003c\/p\u003e","brand":"Jón Kalman Stefánsson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13410169126970,"sku":"jks12","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15790586593338,"sku":"jks12k","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Eitthvad_a_staerd_vid_alheiminn_-kilja.jpg?v=1528747246"},{"product_id":"blatt-blod","title":"Blátt blóð","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e,,Ég reyndi kannski ekki allt, kannski of lítið. Kannski og mikið?“\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKona leitar að nógu kátu sæði til að frjóvga örvæntingarfull egg, sem fer óðum fækkandi. Hún lætur sig jafnvel dreyma um aðstoð kynskiptings, drykkjurúts eða nasista með blá augu. Eftir misheppnaðar tilraunir endurskoðar hún væntingarnar til móðurhlutverksins í sárri sorg og veikri von.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOddný Eir segir hér ögrandi og persónulega sögu um ævintýralega viðureign við djúpa þrá.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSúperglimrandi stjörnudómur í Fréttablaðinu, 11. maí 2015\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eViðtal við Oddnýju í DV, 12. maí 2015\u003c\/p\u003e","brand":"Oddný Eir Ævarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13410603302970,"sku":"oeæ3","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/blattblodFrontur.jpg?v=1529007483"},{"product_id":"gott-folk","title":"Gott fólk","description":"\u003cp\u003eSölvi og Sara kynntust við ofbeldisfullar aðstæður. Þau kysstust fyrst á Austurvelli með lungun full af gasi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTveimur árum síðar banka tveir vinir Sölva upp á og birta honum bréf. Þar ber Sara hann þungum sökum og krefst þess að hann taki ábyrgð á framferði sínu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSölvi, sem áleit sig góðan og gildan þjóðfélagsþegn – hann hefur margoft starfað sem sjálfboðaliði – áttar sig á því að kannski er hann ekki hetjan heldur illmennið í sögunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEr hægt að beita ofbeldi án þess að átta sig á því? Er hægt að rétta yfir tilfinningalífinu? Og kannski er mikilvægasta spurningin þessi: Er hann góður?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eValur Grettisson er blaðamaður í Reykjavík. Þetta er hans fyrsta skáldsaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003ca title=\"Í Guðanna bænum! Fréttablaðið í maí 2015\" href=\"http:\/\/www.visir.is\/ast-er-ekki-ofbeldi,-eda-hvad-\/article\/2015705159925\"\u003e\n\u003cp\u003eÍ Guðanna bænum lesið þessa bók! \u003c\/p\u003e\n\u003c\/a\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003ca href=\"http:\/\/issuu.com\/bjarturbooks\/docs\/gottfolk\"\u003e\n\u003cp\u003eHér má nálgast fyrsta kaflann úr bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/a\u003e","brand":"Valur Grettisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13410628829242,"sku":"vg","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Gott_folk.jpg?v=1529007559"},{"product_id":"skegg-rasputins","title":"Skegg Raspútíns","description":"\u003cp\u003e\u003cem\u003e,,Einhvern tíma rakst ég á samanburð á enskum og spænskum farsa. Í þeim enska eru allir í örvæntingu að reyna að losna úr pínlegum aðstæðum; í þeim spænska eru allir á barmi taugaáfalls en hafa lúmskt gaman af því. Nú rann upp fyrir mér að líf okkar Ljúbu var spænskur farsi.“\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEva og Matti hafa nýlega umbylt lífi sínu og flutt úr miðborginni til smábæjar utan borgarmarkanna, en sitja samt uppi með sjálf sig og hvort annað. Vandamálin vaxa og óveðurský hrannast upp. Þá kynnist Eva rússneskumælandi garðyrkjubónda, Ljúbu, sem segir henni litríka sögu sína og fjölskyldunnar.\u003cbr\u003e Sögur kvennanna tveggja spegla hvor aðra og vinátta þeirra hefur mikil áhrif á líf beggja. Úr verður einstök frásögn, skrifuð af þeim hlýja mannskilningi sem einkennir verk Guðrúnar Evu – um hlutskipti kvenna, samskipti kynjanna, örlög, frumkvæði, nánd og þau sannindi sem draumar geyma.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðrún Eva Mínervudóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2011 fyrir \u003cem\u003eAllt með kossi vekur\u003c\/em\u003e og Menningarverðlaun DV í bókmenntum fyrir \u003cem\u003eYosoy\u003c\/em\u003e árið 2006 og Englaryk árið 2014.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Guðrún Eva Mínervudóttir bregst ekki lesendum í nýútkominni bók sinni Skegg Raspútíns. Þar sýnir hún enn og aftur hvað hún er frábær höfundur og mikill grúskari, eins og sést hefur á öllum skáldsögum hennar.“ ****1\/2 Jóhanna María Einarsdóttir, DV\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Skegg Raspútíns er einstaklega falleg og djúp saga sem dregur fram hið skáldlega í raunveruleikanum og gerir sannleikann að skáldskap.“ Guðrún Baldvinsdóttir, Rás 1\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Frábærlega skemmtileg bók … Maður fær næstum því einhvers konar Ferrante-tilfinningu … hún gengur miklu nær sér en ég hélt. … Dásamleg lesning.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Algjörlega mögnuð bók. Mér finnst þetta vera bók um hugrekki.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hvernig er hægt að vera svona ljóðrænn og um leið svona töff og hitta naglann á höfuðið? … Dásamleg bók.“ Jórunn Sigurðardóttir, Orð um bækur\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hvar sem á Skegg Raspútíns er litið þá er þetta firnasterk skáldsaga. Vel skrifuð, vel stíluð, með sterkri persónusköpun og heildstæðum söguheimi. Heildstæð og falleg skáldsaga sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.“ ***** Magnús Guðmundsson, Fréttablaðinu\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Eva Mínervudóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13411204464698,"sku":"gem6","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Skegg_Rasputins.jpg?v=1529007087"},{"product_id":"perurnar-i-ibudinni-minni","title":"Perurnar í íbúðinni minni","description":"Perurnar í íbúðinni minni er fyrsta bók Kött Grá Pje hjá Bjarti.\u003cbr\u003e Í bókinni eru textar. Ekki ljóð. Ekki prósar. Textar.","brand":"Bjartur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13411239821370,"sku":"","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Perurnar_i_ibudinni_minni.jpg?v=1529007146"},{"product_id":"aevintyri-um-daudann-og-saga-af-venjulegu-folki","title":"Ævintýri um dauðann og saga af venjulegu fólki","description":"\u003cp\u003eUngur maður deyr af slysförum frá konu og syni. Hvernig takast þau sem eftir lifa á við þetta áfall? Og hvernig á hann sjálfur að komast burt frá þessu lífi og öðlast frið?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÆvintýri um dauðann og saga af venjulegu fólki er hjartnæm skáldsaga um sorg og missi – og það sem skiptir mestu máli í lífinu. Mannbætandi og falleg saga sem snertir hverja taug í lesandanum!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUnnur Birna Karlsdóttir sló í gegn með skáldsögu sinni Það kemur alltaf nýr dagur. Bókin sat vikum saman á metsölulistum og hlaut mikið lof gagnrýnenda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Vel skrifuð og skemmtileg bók um vandmeðfarið efni.“ **** Anna Lilja Þórisdóttir, Morgunblaðinu (um Það kemur alltaf nýr dagur)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Vel skrifuð saga um þekkt stef. Seiðandi texti og skemmtilegar bókmenntavísanir gera lesturinn að óvenjulegri og hressandi upplifun.“ Friðrika Benónýs, Fréttablaðinu (um Það kemur alltaf nýr dagur)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Vel heppnuð frumraun.“ Ingi Freyr Vilhjálmsson, DV (um Það kemur alltaf nýr dagur)\u003c\/p\u003e","brand":"Unnur Birna Karlsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13411656695866,"sku":"ubk2","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/AEvintyri_um_daudann_-_frontur.jpg?v=1529007200"},{"product_id":"saga-borgaraettarinnar","title":"Saga Borgarættarinnar","description":"\u003cp\u003eGunnar Gunnarsson fæddist á Valþjófsstöðum í Fljótsdal árið 1889. Hann hélt ungur til Danmerkur þar sem hann gekk á lýðháskóla en það var eina leiðin sem fátækur piltur frá Austfjörðum sá til að mennta sig.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGunnar ákvað snemma að gerast rithöfundur á danska tungu vegna þess að íslenskan var töluð af fámennri þjóð. En frægð og frami komu ekki fyrirhafnarlaust. Hann sendi frá sér skáldsögu og ljóðabók en hvorug vakti athygli en á nýársdag árið 1912 flutti hann í lítið kvistherbergi í Kaupmannahöfn og skrifaði á fáum mánuðum fyrsta bindið af Sögu Borgarættarinnar. Um vorið tók hið fornfræga forlag Gyldendal bókina til útgáfu. Þar með var ísinn brotinn og glæstur ferill Gunnars hófst.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVinsældir Borgarættarinnar voru slíkar að sagan var fljótlega þýdd á önnur tungumál og Nordisk Film gerði kvikmynd eftir henni sem tekin var upp á Íslandi 1919. Hún var á þeim tíma ein dýrasta mynd sem sá framleiðandi hafði ráðist í.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNæstu áratugi var Gunnar einn vinsælasti höfundur Evrópu og þóttu tök hans á danskri tungu með ólíkindum. Verk hans voru þýdd á fjölmörg tungumál og seldust í stórum upplögum. Samkvmt Stóru dönsku alfræðibókinni var hann einn fárra höfunda sem rituðu á danska tungu á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar sem sköpuðu sér umtalsverðar tekjur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeðal vinsælustu verka Gunnars má nefna Fjallkirkjuna, Aðventu, Sælir eru einfaldir, Svartfugl – og Sögu Borgarættarinnar. Höfundarferillinn spannar um tvo tugi skáldsagna, óteljandi smásögur, fáein leikrit, töluvert af kvæðum og ógrynni greina og fyrirlestra.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞó að Gunnar hafi búið í Danmörku og skrifað á dönsku um áratuga skeið var hugur hans ætíð bundinn föðurlandinu. Sögur hans gerðust á Íslandi og hann vildi veg Íslands sem mestan. Hann flutti heim árið 1939 og settist að á Skriðuklaustri. Nokkrum árum síðar, þegar forsendur fyrir stórbúrekstri var brostinn, gaf hann íslenska ríkinu jörðina og flutti til Reykjavíkur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSaga Borgarættarinnar fékk mikið lof þegar hún kom út og naut gífurlegra vinsælda. Í sögunni dregur Gunnar upp lifandi mynd af íslensku samfélagi um aldamótin 1900 en umfram allt er þetta dramatísk ástar- og örlagasaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSaga Borgarættarinnar kom fyrst út á íslensku á árunum 1915-18. Hún var þrívegis endurútgefin, síðast árið 1973. Nú, rúmlega fjörutíu árum síðar, ræðst Bjartur í að gefa söguna út á ný – og fannst mörgum kominn tími til.\u003c\/p\u003e","brand":"Gunnar Gunnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13411751166010,"sku":"gg4","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Saga_Borgaraettarinnar_Gunnar_Gunnarsson.jpg?v=1529007229"},{"product_id":"the-good-shepherd-adventa-a-ensku","title":"The Good Shepherd – Aðventa á ensku","description":"\u003cp\u003eAðventa er nú fáanleg á ensku.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOriginally published in 1936, Gunnar Gunnarsson’s novella has sold more than one million copies worldwide. Gunnar Gunnarsson (1889-1975) is one of Iceland’s most esteemed writers. His legacy includes more than twenty novels, short stories, plays, poetry and essays. \u003c\/p\u003e","brand":"Gunnar Gunnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13411780952122,"sku":"GG3","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/TheGoodShepherd_KAPA_NY_mai23_OK_FRONT.jpg?v=1687434038"},{"product_id":"modurlifid-blondud-taekni","title":"Móðurlífið, blönduð tækni","description":"\u003cp\u003eSirrí var róttækur framúrstefnulistamaður á síðari hluta 20. aldar, sem lést fyrir aldur fram. Sirrí var ekki einungis umdeild sem listamaður, heldur einnig fyrir líferni sitt, ekki síst eftir að hún yfirgaf ung börn sín til að sinna listinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar dóttir hennar, Kamilla, felst á að liðsinna Listasafni Reykjavíkur við undirbúning yfirlitssýningar um móður hennar, lendir hún í vanda, því ekki hefur gróið um heilt í fjölskyldunni og ekki minnkar hugarangistin þegar bréf Sirríar til elskhuga hennar koma í leitirnar. Hvers konar mynd mun þjóðin fá af henni? Á einkalíf listamanns erindi við aðra? Á sannleikurinn erindi á sýninguna?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eYrsa Þöll Gylfadóttir hefur hér skrifað spennandi og áhrifamikla sögu um siðferðileg álitamál tengd listinni og lífinu, um skyldur foreldra við börn, um erfingja og ábyrgð þeirra – og hvað frjalsleg umgengni við sannleikann getur haft í för með sér.\u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Þöll Gylfadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474130624570,"sku":"yþg","price":2999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Modurlifid.jpg?v=1529181059"},{"product_id":"handbok-um-minni-og-gleymsku","title":"Handbók um minni og gleymsku","description":"\u003cp\u003eÍ Handbók um minni og gleymsku renna húmor og heimspeki, fegurðarþrá og frásagnagleði saman í frumlegan seið. Bréfaskipti fyrrverandi elskenda, furðuleg ökuferð um úthverfi Reykjavíkur, harðar deilur í húsfélagi, flóttatilraun drengs úr sveit, kjarnorkusprengjur og engiferrætur …\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandbók um minni og gleymsku vekur bæði kátínu, óvæntar spurningar og óþægilegar tilfinningar. Þetta er bók sem lesandinn mun ekki gleyma svo auðveldlega.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRagnar Helgi Ólafsson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar haustið 2015. Handbók um minni og gleymsku er fjórða bók hans og kemur út samhliða á Íslandi og í Frakklandi en allar bækur hans hafa verið þýddar á erlendar tungur.\u003c\/p\u003e","brand":"Ragnar Helgi Ólafsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474200223802,"sku":"rhó2","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Handbok_um_minni_og_gleymsku.jpg?v=1529097405"},{"product_id":"ferdin-til-mars","title":"Ferðin til Mars","description":"\u003cp\u003eÁsta er nýbúin að halda upp á 14 ára afmælið. Hún er heilluð af geimvísindum og á sér draum um að ferðast til Mars þegar fyrsta mannaða geimfarið verður sent til plánetunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn dag einn breytist allt og Ásta þarf að takast á við erfiðasta verkefni ævinnar. Mamma Ástu er alvarlega veik og biður dóttur sína að gera hlut sem flestum þætti óhugsandi. Við tekur æsispennandi atburðarás.\u003cbr\u003e Loforð er loforð en hversu langt getur Ásta gengið til að uppfylla ósk móður sinnar?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFerðin til mars er hjartnæm, skemmtileg og áleitin saga um lífið og dauðann, óvissuferðir og það sem við leggjum á okkur fyrir þá sem við elskum.\u003c\/p\u003e","brand":"Eyrún Ósk Jónsdóttir, Helgi Sverrisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474223390778,"sku":"eoj2","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Ferdin_til_Mars.jpg?v=1529094344"},{"product_id":"bieber-og-botnrassa","title":"Bieber og Botnrassa","description":"\u003cp\u003eAndrea, Elsa Lóa, Tandri og Stjúri komast heldur betur í feitt þegar þau sjá auglýsta hljómsveitarkeppni í Hörpu. Sigurvegarinn á möguleika á að fylgja sjálfum Justin Bieber á alheimstúr. Vandamálið er að krakkarnir í hljómsveitinni Botnrössu eru bara 12 og 13 ára – og svo situr mamma Andreu í fangelsi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞau fjögur eru staðráðin í að semja algjöran hittara fyrir keppnina – og líka að fá mömmu Andreu leysta úr haldi!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBieber og Botnrassa er stórskemmtileg og hörkuspennandi saga um fríska krakka sem láta ekki smáatriðin vefjast fyrir sér!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHaraldur F. Gíslason stekkur hér fram sem frábær barna- og unglingabókahöfundur, en hann er þekktari sem trommuleikari í Botnleðju og Pollapönki\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHlustaðu á lagið með Botnrössu á \u003ca title=\"Youtube\" href=\"https:\/\/www.youtube.com\/watch?v=7myIuibHFUs\"\u003eYouTube\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Haraldur F. Gíslason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474235744314,"sku":"hfg","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Bieber_Botnrassa_FRONT.jpg?v=1529009899"},{"product_id":"undirferli","title":"Undirferli","description":"\u003cp\u003eÍris er framúrskarandi veirufræðingur sem stundar rannsóknir við Rannsóknarstofuna Surtsey í Vestmannaeyjum. Þar rannsakar hún áhrif umhverfis á óþekkta veiru sem fannst í hinni ungu og óbyggðu Surtsey. Þegar Smári, æskuvinur hennar og æskuást, er ráðinn aðstoðarmaður hennar á tilraunastofunni verður yfirmaðurinn Aron, fyrrverandi eiginmaður Írisar, órólegur og loft verður lævi blandið. Smári hefur í fórum sínum óvenjulegt mælitæki, eins konar lygamæli, sem hann er að þróa til þess að mæla heilindi og manngildi. Hann fær að gera tilraunir með tækið á tilraunastofunni og þegar veiran hættir að bæra á sér af óútskýranlegum ástæðum, kvikna hugmyndir um að tæki Smára sé um að kenna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUndirferli er ástarsaga sem á frumlegan hátt fjallar um heilindi og svik, fornan vísdóm og nýjan, vítahringi ofbeldis – og verndun ósnortinnar eyju gagnvart yfirgangi og undirferli.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOddný Eir Ævarsdóttir hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli fyrir bækur sínar, sem hlotið hafa ýmsar viðurkenningar og komið út víða um heim.\u003c\/p\u003e","brand":"Oddný Eir Ævarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474298560570,"sku":"oeæ4","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Undirferli_OddnyEir.jpg?v=1529183891"},{"product_id":"perlan","title":"Perlan","description":"\u003cp\u003ePerla Sveinsdóttir var á unglingsárum vinsælasta stelpan í bekknum, sætust og sú sem allir dönsuðu í kringum. En eftir að hafa átt erfitt með að fóta sig á sínum fyrstu fullorðinsárum flyst hún til New York og fer að blogga um hið ljúfa líf sitt þar, mest um djamm og gellugang. Bloggið verður vinsælt, Perla verður umsvifalaust fræg fyrir að vera fræg, og í andstreymi bankahrunsins styttir þjóðin sér stundir við að brosa að fréttum af henni – hún verður táknmynd yfirborðsmennsku og hégómleika.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar nafni Perlu skýtur skyndilega aftur upp haustið 2017 á vitnalista í réttarhöldum vegna stríðsglæpa, taka fjölmiðlar aftur við sér. En þá er sjónarhornið annað og annarra spurninga spurt. Hver er hin raunverulega Perla? Passar ímyndin við veruleikann? Hvernig bregst kona sem þekkti ekkert nema aðdáun umhverfisins við því að vera ýtt til hliðar?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBirna Anna Björnsdóttir, einn höfunda metsölubókarinnar Dís, hefur hér skrifað bráðskemmtilega sögu Perlu Sveinsdóttur, um ímyndir og yfirborð, um heilindi og svik, frægð og fall, og hlutgervingu kvenna í nútímasamfélagi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePerlan er 215 blaðsíður að lengd, Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu og Eyjólfur Jónsson braut um.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Hnyttin, fersk og stórskemmtileg saga – um konur þjakaðar af týpuskilgreiningarþörf samfélags á efnahagslegum krossgötum … Sagan um Perlu er feminískt ákall skrifað með eldrauðum varalit.“ Auður Jónsdóttir, rithöfundur\u003c\/p\u003e","brand":"Birna Anna Björnsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474319532090,"sku":"bab","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Perlan.jpg?v=1529006567"},{"product_id":"adventa","title":"Aðventa","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eAðventa ljómar af þeim dimma og bjarta eldi sem kviknar af neistafluginu þegar veruleika og skáldskap er slengt saman, því að aðalpersónan Benedikt og leit hans að kindum uppi á öræfum í grimmasta mánuði íslensks vetrar eiga rætur sínar í veruleikanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eEngin bók Gunnars Gunnarssonar hefur farið jafn víða um lönd og \u003ci\u003eAðventa\u003c\/i\u003e sem hefur verið þýdd á um 20 tungumál. Sagan virðist einföld en býr yfir mikilli dýpt þegar betur er að gáð. Stíll Gunnars er hvergi jafn látlaus og blátt áfram fallegur eins og í \u003ci\u003eAðventu\u003c\/i\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eVerk Gunnars Gunnarssonar (1889-1975) nutu fádæma vinsælda á öldinni sem leið um víða veröld. Bækur hans voru þýddar á tungur stórþjóða um leið og þær komu út.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️ \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eAMAZON.DE\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„Þessi fallega saga er svo sjálfsprottin, mannleg og algild í sannleika sínum að hún höfðar til allra – um alla tíð.“ \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eTHE NEW YORK TIMES\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Gunnar Gunnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474421276730,"sku":"gg5","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Adventa_2017.jpg?v=1529006633"},{"product_id":"timathjofurinn-kilja","title":"Tímaþjófurinn – kilja","description":"\u003cp\u003eTímaþjófurinn kom fyrst út 1986. Nú sýnir Þjóðleikhúsið leikrit í uppsetningu Unu Þorleifsdóttur, byggt á bókinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHin vel ættaða, sjálfsörugga og glæsilega Alda Ívarsen, tungumálakennari við Menntaskólann í Reykjavík, sem ætíð hefur boðið heiminum byrginn, reynist varnarlaus þegar ástin loks grípur hana fyrir alvöru, óvænt og miskunnarlaust.\u003cbr\u003e Einstakt skáldverk um leynilegt ástarævintýri, höfnun og missi, og þá sársaukafullu þráhyggju sem ást í meinum getur orðið. Verk sem er skrifað af djúpum mannskilningi og meitluðum húmor.\u003c\/p\u003e","brand":"Steinunn Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474567880762,"sku":"steinunn21","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Timathjofurinn_2017_framan.jpg?v=1529006683"},{"product_id":"nordlingabok-1-og-2","title":"Norðlingabók 1 og 2","description":"\u003cp\u003eHannes Pétursson er löngu landskunnur sem eitt helsta ljóðskáld þjóðarinnar og hefur stundum verið kallaður síðasta þjóðskáldið. Jafnhliða ljóðlistinni hefur Hannes samið fræðirit og greinar, ferðasögur og fengist við þýðingar. Ekki síst hefur Hannes lyft hinum þjóðlegu sagnaþáttum upp á nýtt listrænt stig. Úr heimildum og sögnum hefur hann glætt minnisverðar frásagnir nýju lífi með orðsnilld sinni og stílfimi.\u003cbr\u003e Hannes hefur síðustu misserin endurskoðað alla sagnaþætti sína, yfirfarið þá og leiðrétt og fært ,,textann nær þeim stílsmekk, eða sérvizku, sem ég bý við núna þegar ég kveð til fulls þessi fræði“, eins og skáldið skrifar sjálft að bókarlokum.\u003cbr\u003e Í Norðlingabók birtast þættir í endanlegri mynd skáldsins. Fyrra bindið geymir frásagnir sem áður birtust í þriggja binda safninu \u003cem\u003eMisskipt er manna láni\u003c\/em\u003e og í síðara bindinu má finna hið magnaða \u003cem\u003eRauðamyrkur\u003c\/em\u003e og heimildaþætti og fróðleiksgreinar úr bókinni \u003cem\u003eFrá Ketubjörgum til Klaustra\u003c\/em\u003e og þar hefur Hannes bætt talsverðu við, sem ekki hefur áður birst á einum stað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBjartur gefur Norðlingabók út í samvinnu við \u003ca title=\"Opnu\" href=\"http:\/\/opna.is\"\u003eOpnu\u003c\/a\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Hannes Pétursson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13474700689466,"sku":"hpét","price":9990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Nordlingabok.jpg?v=1529181348"},{"product_id":"piltur-og-stulka","title":"Piltur og stúlka","description":"\u003cp\u003eFá íslensk skáldverk hafa náð annarri eins hylli hjá þjóðinni og Piltur og stúlka. Á þeirri ríflega hálfri annarri öld sem liðin er síðan bókin kom fyrst út hefur hún líklega selst í tugþúsundum eintaka og lesendurnir eru orðnir margfalt fleiri. Piltur og stúlka skipar þann heiðurssess í íslenskri bókmenntasögu að vera almennt talin fyrsta íslenska skáldsagan. En það eitt og sér útskýrir ekki vinsældir bókarinnar. Þessi rómantíska saga með raunsæisblæ er sprottin úr rammíslenskum veruleika og náðu persónur hennar þvílíkum tökum á landsmönnum að þær lifa sumar hverjar enn góðu lífi í hugum manna – hver þekkir t.a.m. ekki Gróu á Leiti? Í sögunni er á áhrifaríkan hátt dregnar upp andstæður sem síðar áttu eftir að verða ríkjandi í íslenskum bókmenntum langt fram eftir 20. öld: sveitasælan og sollurinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSigríður Rögnvaldsdóttir ritar formála.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er 223 bls., prentuð í Danmörku.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókarkápu hannaði Ásta S. Guðbjartsdóttir.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVerð: 1.980 kr.\u003cbr\u003e ISBN 978-9979-657-16-3\u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13597584228410,"sku":"jt1k","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/piltur_og_stulka_cover.jpg?v=1529007722"},{"product_id":"afleggjarinn","title":"Afleggjarinn","description":"\u003cp\u003eRúmlega tvítugur karlmaður heldur út í heim með þrjá rósaafleggjara. Heima skilur hann eftir þroskaheftan tvíburabróður, aldraðan föður, og barn á fyrsta ári sem hann eignaðist með vinkonu vinar síns. Stefnan er tekin á fornan rósagarð í óræðu þorpi sunnar í álfunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAfleggjarinn er margverðlaunuð bók sem gerði Auði Övu Ólafsdóttur að stórstjörnu í evrópskum bókmenntaheimi. Hún hefur hlotið ein tólf virt bókmenntaverðlaun í Frakklandi og notið gífurlegra vinsælda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFjöruverðlaunin 2008\u003cbr\u003e Menningarverðlaun DV 2008\u003cbr\u003e Tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs\u003c\/p\u003e","brand":"Auður Ava Ólafsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13599255035962,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Afleggjarinn.jpg?v=1529008585"},{"product_id":"rigning-i-november","title":"Rigning í nóvember","description":"\u003cp\u003eKona fer í ferðalag austur á land eftir að maðurinn hennar yfirgefur hana vegna annarrar konu. Með í för er fimm ára heyrnarlaus sonur vinkonu hennar en tilgangur ferðarinn er að finna stað fyrir sumarbústað sem hún hefur unnið í happdrætti.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRigning í nóvember kom fyrst út 2004.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTilnefnd til Menningarverðlauna DV í bókmenntum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003e\u003cstrong\u003e,,Rigning í nóvember er bók sem mann langar til að taka upp aftur að lestri loknum, þar er margt sem gaman er að íhuga, skemmta sér yfir og þræða í þeim textavef sem hér er spunninn – af konu.“\u003c\/strong\u003e\u003c\/em\u003e\u003cbr\u003e Kristín Viðarsdóttir, desember 2004, bokmenntir.is\u003c\/p\u003e","brand":"Auður Ava Ólafsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13599319392314,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Rigning.jpg?v=1529008691"},{"product_id":"halfsnert-stulka","title":"Hálfsnert stúlka","description":"\u003cp\u003eUng kona finnst illa til reika eftir ellefu ára dvöl í afskekktum skógi í Ástralíu. Sálgreinandi fær það flókna verkefni að komast að því hvað gerðist. Í samtölum þeirra hverfur hún inn í draumkennda frásögn sem hann þarf að túlka og vinna úr. Þegar í ljós kemur hvað gerðist í raun og veru fer af stað óvænt atburðarás\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHálfsnert stúlka er heillandi og margslungin saga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBjarni Bjarnason hefur hlotið mikið lof og fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldsögur sínar og meðal annars verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.  Útgáfuréttur á Hálfsnertri stúlku var seldur til  Bretlands áður en hún kom út hér á landi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Einn athyglisverðasti höfundur sinnar kynslóðar á Íslandi.“ World Literature Today\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHálfsnert stúlka er 248 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Bjarni Bjarnason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13662197088314,"sku":"hálfsn","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Halfsnert_stulka_-_frontur.jpg?v=1529269251"},{"product_id":"endurkoman","title":"Endurkoman","description":"\u003cp\u003eSímtal frá Bretlandi kemur róti á huga hálfíslensks læknis í New York.  Hefur Magnús Colin lifað í blekkingu frá barnæsku? Hefur hann aldrei séð foreldra sína í réttu ljósi?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUm leið og Magnús þarf að horfast í augu við fortíð sína fær hann til rannsóknar óþekkta konu sem finnst í dái eftir slys á afskekktum vegi. Þegar hann fer að gruna að hún sé með meðvitund en læst inni í eigin líkama vakna áleitnar spurningar um hver hún er, um sjálfan hann – og ekki síst um Malenu, konuna sem hann elskar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEndurkoman er seiðmögnuð skáldsaga um ástina og leitina að hamingjunni, einsemd og söknuð, brotthvarf ­– og endurkomu. Ólafur Jóhann Ólafsson hefur hlotið margháttaða viðurkenningu fyrir verk sína víða um lönd en þau hafa komið út á yfir tuttugu tungumálum. \u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Afar grípandi samtímasaga sem er skrifuð af mikilli snerpu.“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Skapar stemmningu og heim sem manni finnst seiðandi.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þetta nær manni. Mann langar til að vita hvernig þetta fer allt saman.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljunni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Framvindan er fumlaus og örugg …  Allt er þetta ákaflega vel gert. … Falleg og vel skrifuð bók sem varpar fram stórum spurningum og lætur lesandanum eftir að leita svara.“ Magnús Guðmundsson, Fréttablaðinu \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Ein besta skáldsaga Ólafs Jóhanns.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir, Morgunblaðinu \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Ólafur Jóhann Ólafsson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13664338018362,"sku":"ójó2","price":3699.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15792332537914,"sku":"ójó2k","price":3899.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Endurkoman.jpg?v=1530046153"},{"product_id":"dimma","title":"Dimma","description":"\u003cp\u003eLögreglufulltrúinn Hulda rannsakar síðasta sakamálið sitt áður en henni er gert að hætta störfum fyrir aldurs sakir, 64 ára gömul. Ung kona, hælisleitandi frá Rússlandi, finnst látin á Vatnsleysuströnd og bendir ýmislegt til þess að hún hafi verið myrt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEngum er hægt að treysta og enginn segir allan sannleikann. Hörmulegir atburðir úr fortíð Huldu sækja á hana og hún gerir afdrifarík mistök við rannsóknina sem hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRagnar Jónasson er einn fremsti spennusagnahöfundur þjóðarinnar og hefur hann vakið mikla athygli erlendis. Meðal annars sat bók hans, Snjóblinda, í efsta sæti metsölulista í Bretlandi og Ástralíu, fyrst íslenskra skáldsagna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Dimma heldur manni frá fyrstu blaðsíðu til þeirrar síðustu.“  \u003cbr\u003e– Katrín Jakobsdóttir \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e „Endirinn hittir lesandann eins og spark í magann.“ **** Friðrika Benónýs, Fréttatímanum\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDimma er 263 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu en Eyjólfur Jónsson braut um. Bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Ragnar Jónasson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13664456572986,"sku":"rj7","price":3699.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15786280615994,"sku":"rj7k","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Dimma.jpg?v=1529266822"},{"product_id":"hendingskast","title":"Hendingskast","description":"\u003cp\u003eUngur maður fær óvænt upp í hendurnar 30 milljónir króna. Miðaldra hjón verða fyrir því að húsið þeirra er málað appelsínugult í skjóli nætur. Þessir óvæntu atburðir koma miklu róti á líf persónanna, ekki síst aðalpersónunnar þar sem allt fer á hvolf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHendingskast er fyrsta skáldsaga Sigurjóns Bergþórs Daðasonar. Undir lygnu yfirborði kraumar ólga og togstreita – og ísmeygileg kímni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHendingskast er 191 blaðsíða að lengd, kilja. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Ísafoldarprentsmiðju.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigurjón Bergþór Daðason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13701966954554,"sku":"sbd","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Hendingskast_-_frontur.jpg?v=1529268649"},{"product_id":"drungi","title":"Drungi","description":"\u003cp\u003eHaustið 1987 fer ungt par í rómantíska ferð í sumarbústað á Vestfjörðum\u2028 – ferð sem fær óvæntan endi og hefur skelfilegar afeiðingar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTíu árum síðar ákveður lítill vinahópur að verja helgi í gömlum veiðikofa í Elliðaey, nánast sambandslaus við umheiminn. Í lok dvalarinnar lætur kona úr hópnum lífið og margt bendir til þess að hún hafi verið myrt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLögreglukonan Hulda Hermannsdóttir, sem lesendur kynntust í metsölubókinni Dimmu, rannsakar andlát konunnar og fyrr en varir fer málið að vinda upp á sig.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfurétturinn á Drunga hefur þegar verið seldur til hins virta breska útgáfufyrirtækis Penguin og þarlendur framleiðandi undirbýr nú þáttaröð byggða á bókum Ragnars. Náttblinda hlaut verðlaun sem besta þýdda spennusagan í Bretlandi árið 2015.\u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003eDrungi hlaut tilnefningu til íslensku glæpasagnaverðlaunanna, Blóðdropans, 2016. \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cp\u003e„Besta bók Ragnars“. KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, KILJUNNI \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 1\"\u003e\n\u003cp\u003e**** \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Best skrifaða bók Ragnars, full af sálrænum hryllingi og undirliggjandi heift.“ FRIÐRIKA BENÓNÝSDÓTTIR, FRÉTTABLAÐINU\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Flott flétta hjá Ragnari.“ STEINDÓR GUÐBJARTSSON, MORGUNBLAÐINU \u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Ragnar Jónasson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13702674120762,"sku":"rj8","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15787571314746,"sku":"rj8k","price":2499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Drungi_-_frontur.jpg?v=1529267061"},{"product_id":"aflausn","title":"Aflausn","description":"\u003cp\u003eRáðist er á unglingsstúlku á salerni í kvikmyndahúsi. \u2028Á óhugnanlegum myndskeiðum sem send eru vinum hennar á Snapchat sést þessi vinsæla stelpa ítrekað biðjast fyrirgefningar – en á hverju og af hverju?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLögreglan er ráðalaus í leit sinni að ofbeldismanninum og stúlkunni, sem er horfin. Og þá tekur málið ískyggilega stefnu. Í \u003ci\u003eAflausn \u003c\/i\u003estíga fram á sviðið sömu aðalpersónur og í \u003ci\u003eSoginu \u003c\/i\u003eog \u003ci\u003eDNA\u003c\/i\u003e, bestu íslensku glæpasögunni árið 2014. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEyjólfur Jónsson braut bókina um en Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Vel uppbyggð, fléttan góð og þræðirnir falla saman í lokin (…) spennandi saga.“ STEINÞÓR GUÐBJARTSSON, MORGUNBLAÐINU\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa er gríðarlega fær glæpasagnahöfundur.“ VERA KNÚTSDÓTTIR, BOKMENNTIR.IS\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e****\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þessi bók finnst mér eiga heima með allra bestu spennusögum … Einkar góð glæpasaga þar sem efnistök, plott og persónusköpun koma saman í sögu sem heldur lesandanum fram á rauðanótt.“ BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR, FRÉTTBLAÐINU \u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13702715080762,"sku":"ys17","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Kilja","offer_id":15638131015738,"sku":"ys17k","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Aflausn_-_frontur.jpg?v=1529265459"},{"product_id":"baldursbra","title":"Baldursbrá","description":"\u003cp\u003eBaldursbrá vex og dafnar í gróinni lautu en fyllist mikilli löngun til að sjá sólarlagið sem blasir við ofan af ásnum. Með hjálp Spóa og Rebba kemst hún þangað – en lendir í miklum háska á þessum nýju slóðum. Fjörugir yrðlingar koma við sögu og Hrúturinn hræðilegi sem má ekkert aumt sjá án þess að vilja éta það.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSagan byggist á ævintýraóperunni vinsælu Baldursbrá og er skreytt myndum eftir Freydísi Kristjánsdóttur. Bókinni fylgir mynddiskur með upptöku frá sýningunni í Hörpu með texta á íslensku, ensku, þýsku, dönsku, frönsku og ungversku.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBaldursbrá er 31 blaðsíða að lengd. Anna Cynthia Leplar sá um kápuhönnun og hönnun innsíðna. Bókin er prentuð í Slóveníu.\u003c\/p\u003e","brand":"Gunnsteinn Ólafsson og Freydís Kristjánsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702778716218,"sku":"baldur","price":1490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Baldursbra_-_frontur.jpg?v=1529266226"},{"product_id":"draumrof","title":"Draumrof","description":"\u003cp\u003eMiðaldra maður uppgötvar að vinur hans frá fyrri tíð hefur skrifað bók þar sem hann notar atvik úr lífi mannsins og gerir þau að sínum. Hann ákveður að brjótast inn í tölvu rithöfundarins og upplýsa lesandann um hvað hann finnur þar. Samhliða því segir maðurinn sögu sína og konu sinnar af mikilli einlægni – sögu um velgengni og fall, óbærilegan harm og djúpstæða sátt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFimmtíu ár eru síðan fyrsta skáldsaga Úlfars Þormóðssonar kom út en eftir hann liggur fjöldi skáldsagna og verka af ýmsu tagi. Hann hlaut viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins 2012 fyrir ritstörf sín.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDraumrof er 157 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og hönnun innsíðna, Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð hjá ScandBook, Svíþjóð.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfar Þormóðsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702865780794,"sku":"ulf6","price":3490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Draumrof_-_frontur.jpg?v=1529267015"},{"product_id":"gatid","title":"Gatið","description":"\u003cdiv\u003eUmsvifamikill fjárfestir finnst látinn í Gálgahrauni, á hinum forna aftökustað sem blasir við frá Bessastöðum. Barnaverndaryfirvöldum í Reykjavík er tilkynnt um lítinn dreng sem er aleinn og yfirgefinn í ókunnugri íbúð. Og fjórir vinir óttast að leyndarmál þeirra verði afhjúpað. Þessir ólíku þræðir fléttast saman í magnaðri glæpasögu hjá Yrsu Sigurðardóttur.\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003eVið lausn málsins leggja saman krafta sína Huldar lögreglumaður og sálfræðingurinn Freyja sem lesendur þekkja úr fyrri sögum Yrsu; Aflausn, Soginu og DNA en hún var valin besta íslenska glæpasagan 2014 og besta glæpasagan í Danmörku 2016.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eGatið \u003c\/i\u003eer 350 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa er með puttann á púlsinum … Gatið er vel skrifuð og úthugsuð glæpasaga og um leið glettin ádeila á hvernig tekið er á málefnum sem brenna á fólki um þessar mundir.“ **** Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Dásamleg mennska og daglegt líf í bland við spennandi ráðgátu gera Gatið að sérdeilis vel  heppnaðri spennusögu og ekki má gleyma launfyndninni sem aldrei er langt undan. … … Spennandi, vel fléttu› og skrifu› glæpasaga sem tæpir á knýjandi málum í samtímanum.“ **** Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðinu\u003c\/p\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Kilja","offer_id":13703309819962,"sku":"ys18k","price":3999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Innbundin","offer_id":19712042139706,"sku":"ys18","price":3899.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Gatid.jpg?v=1529268304"},{"product_id":"benjamin-dufa","title":"Benjamín dúfa","description":"\u003cp\u003eSagan um Benjamín dúfu og vini hans er ein vinsælasta barnabók síðari tíma og hefur skilið eftir sig djúp spor hjá nokkrum kynslóðum íslenskra lesenda. Hér segir frá viðburðaríku sumri í lífi fjögurra vina. Þeir stofna reglu Rauða drekans og Róland dreki, Andrés örn, Baldur hvíti og Benjamín dúfa hafa nóg fyrir stafni í baráttu sinni gegn ranglæti. Lífið virðist óslitið ævintýri en það koma brestir í vináttuna og kaldur raunveruleikinn ryðst inn í líf þeirra.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFyrir utan Íslensku barnabókaverðlaunin 1992 hlaut Friðrik Erlingsson ýmsar aðrar viðurkenningar fyrir \u003cem\u003eBenjamín dúfu\u003c\/em\u003e. Bókin hefur komið út á fjölda tungumála og hlotið afar lofsamlega dóma. Gerð var kvikmynd eftir sögunni sem sýnd hefur verið víða um lönd og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e Meðal umsagna gagnrýnenda á sínum tíma má nefna að Sigrún Klara Hannesdóttir ritaði í Morgunblaðinu: „Sagan er æsispennandi frá upphafi til enda. Atburðirnir reka hver annan, söguþræðirnir fléttast snilldarlega saman og persónusköpunin er skýr og glögg þar sem enginn er málaður í svart-hvítu. í sögunni er engin miskunn, ekkert dregið undan, en unnið úr vandamálum af djúpum skilningi og mannlegri hlýju. Benjamín dúfa ber ekki með sér neinn byrjendabrag. Þetta er einstök saga, heilsteypt og leiftrandi, sem lætur engan ósnortinn.“\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e Benjamín dúfa var að mati Jóhönnu Margrétar Einarsdóttur, gagnrýnanda DV, „með betri barnabókum sem komið hafa út í langan tíma“ og Jón Hallur Stefánsson ritaði í vikublaðið Pressuna: „Friðrik gerir úr efniviðnum bráðlifandi fólk og sjálf sagan er óvenjuleg og spennandi.“ \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBenjamín dúfa er 134 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápu en hún er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e","brand":"Friðrik Erlingsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13704484421690,"sku":"fek","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/BenjaminDufa_-_frontur.jpg?v=1529266265"},{"product_id":"aska","title":"Aska","description":"\u003carticle\u003e\n\u003carticle\u003e\n\u003cp\u003eEin vinsælasta glæpasaga Yrsu Sigurðardóttur. Líkamsleifar finnast við uppgröft húss sem fór undir ösku í eldgosinu í Eyjum árið 1973. Grunsamlegt andlát konu í Reykjavík sumarið 2007. Og Þóra Guðmundsdóttir lögmaður, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum Yrsu, glímir við spurninguna: Hvernig tengjast þessi voðaverk?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003c\/article\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003carticle\u003e\n\u003cp\u003e„Frábærlega fléttuð – hrollvekjandi tryllir.“ **** – Daily Mirror\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Svar Íslands við Stieg Larsson.“ Daily Telegraph\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Yrsa Sigurðardóttir skapar alveg jafn hrollvekjandi andrúmsloft á eyju undir glóandi hrauni og á dimmum íslenskum vetrum eins og hún gerði í tveimur fyrri bókum sínum.“ The Times\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Heillandi sögusvið og trúverðugar persónur grípa lesandann föstum tökum – og Yrsu Sigurðardóttur tekst að halda athygli lesandans allt þar til úthugsuð fléttan leysist.“ Metro\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Yrsa Sigurðardóttir","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13888195919930,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Kilja","offer_id":15639701749818,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Aska.jpg?v=1534507859"}],"url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/collections\/skaldsogur-islenskar.oembed?page=10","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}