{"title":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","description":"","products":[{"product_id":"munadarleysinginn","title":"Munaðarleysinginn","description":"\u003cp\u003eLífssaga Matthíasar Bergssonar spannar allt frá dvöl á munaðarleysingjaheimili í Reykjavík á sjötta áratugnum til hörkulegrar herþjálfunar fyrir stríðið í Víetnam og daglegs lífs í glæpahverfi í miðríkjum Bandaríkjanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið sögu koma Marlene Dietrich, Alice Cooper, Axl Rose, Marlboro-maðurinn, morðingi Johns Lennon – og þrír Bandaríkjaforsetar, svo nokkur séu nefnd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ veraldarvolkinu tókst Matthías á við ótrúlegustu verkefni en sökk að lokum til botns í óreglu, niðurlægingu og eymd. Honum tókst að rífa sig upp úr ömurleikanum og tók stefnuna heim til Íslands – þar sem hann vissi af æskuástinni sinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSigmundur Ernir Rúnarson ritar örlagasögu munaðarleysingjans Matthíasar Bergssonar af innsæi og sagnalist – einhverja óvenjulegustu ævisögu síðari ára!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003ci\u003eMunaðarleysinginn \u003c\/i\u003eer 268 blaðsíður að lengd. Ólafur Unnar Kristjánsson hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð í Odda. \u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13664380682298,"sku":"se4","price":2999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Munadarleysinginn_-_frontur.jpg?v=1529350323"},{"product_id":"allt-mitt-lif-er-tilviljun","title":"Allt mitt líf er tilviljun","description":"\u003cp\u003eÞað er langur vegur frá verkamannabústöðum á Siglufirði eða saggafullum kjallara í Keflavík til þess að halda heimili í þremur heimsálfum og stunda milljarða viðskipti. En á þessari leið hefur Birkir Baldvinsson lent í ótrúlegum ævintýrum, jafnt á landi sem skýjum ofar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBirkir varð ungur að árum lykilmaður í starfsemi Loftleiða á meginlandi Evrópu, honum tókst með þrjóskunnni að bjarga lífi 30 flugfarþega, átti í háskalegum flugvélaviðskiptum við ættarhöfðingja í Nígeríu, tókst að koma Krústsjov á sögufrægan fund hjá Sameinuðu þjóðunum, stöðvaði yfirgang Donalds Trump í New York, setti íslenskt samfélag í uppnám með því að ætla að kaupa hlutabréf sem ríkið ætlaði öðrum – svo fátt eitt sé nefnt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari makalausu bók segir Birkir Baldvinsson loksins sögu sína. Hann er einlægur og opinskár, hér stíga ótrúlegustu persónur fram og hvert ævintýrið rekur annað. Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar stórbrotna sögu Birkis – um sára fátækt, gríðarlega velgengni og óþrjótandi baráttuvilja.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13702730154042,"sku":"se6","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Allt_mitt_lif_-_frontur.jpg?v=1529265813"},{"product_id":"allt-thetta-hugsafn-af-arum-sem-kvad-vera-aevi","title":"Allt þetta hugsafn af árum sem kvað vera ævi","description":"\u003cp\u003eAllt þetta hugsafn af árum sem kvað vera ævi eftir Sigmund Erni Rúnarsson.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLesandanum er boðið í heillandi ferðalag gegnum tíma og staði, öræfi hugans og landsins, svo og alla afkima ástarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAllt þetta hugsafn af árum sem kvað vera ævi er níunda ljóðabók Sigmundar Ernis. Sú fyrsta kom út árið 1980, en þess utan hefur hann sent frá sér sögur og minningar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er 70 blaðsíður að lengd. Ólafur Unnar Kristjánsson sá um kápuhönnun og Leturprent prentaði.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13703100923962,"sku":"se5","price":2990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Allt_thetta_hugsafn_-_frontur.jpg?v=1529265848"},{"product_id":"runa-orlagasaga","title":"Rúna – Örlagasaga","description":"\u003cp\u003eEngin íslensk kona hefur unnið jafn glæsta sigra á hestbaki heima og erlendis og Rúna Einarsdóttir – og hún kynnti Orra frá Þúfu til sögunnar, frægasta kynbótahest Íslands. Rúna lifði í vellystingum á glæsilegum hestabúgarði í Þýskalandi og ekkert lát virtist vera á velgengninni. En hér segir ekki einungis frá sigrum Rúnu heldur líka konunni á bak við glansmyndina, einsemd hennar og sorgum, konunni sem á tímabili fannst eins og öll sund væru lokuð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSigmundur Ernir Rúnarsson skrifar af alkunnu innsæi og snilld örlagasögu stúlkunnar sem ólst upp í fásinni og náttúrufegurð í Svínadal í Húnavatnssýslu, konunnar sem náði hæstu hæðum glæsilífs – en líka dýpstu dölum tilverunnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13703409631290,"sku":"se8","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Runa.jpg?v=1529351326"},{"product_id":"flokkusogur","title":"Flökkusögur","description":"\u003cp\u003eGömul hjón á strípibar í New Orleans, rottur og bækluð börn í Varanasi, himnesk stund með Sophiu Loren, elskendur í blóði sínu í Sarajevo, innmúraður maður í Palestínu, átta smokka nótt í Nata, skítafangari í París, maður sem tapaði fjalli í Armeníu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari stórskemmtilegu bók lýsir Sigmundur Ernir Rúnarsson ýmsum af skrýtnustu augnablikum sem hann hefur upplifað á flandri sínu um framandi slóðir. Hér fær frásagnargleði sagnameistarans að blómstra en líka innsæi ljóðskáldsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFlökkusögur er einstök og stílfögur bók um mannlífið í öllum sínum margbreytilegu myndum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFlökkusögur er 128 blaðsíður að lengd. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13703599915066,"sku":"se7","price":1999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Flokkusogur_-_frontur.jpg?v=1529267848"},{"product_id":"afviknir-stadir","title":"Afviknir staðir","description":"\u003carticle\u003e\n\u003cp\u003eNý ljóðabók eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Meitlað orðfæri, leiftrandi mælska og einstök og heillandi sýn á lífið og tilveruna einkennir ljóðin í bókinni. Bókin er tileinkuð minningu dóttur Sigmundar Ernis, Eydísar Eddu, sem lést árið 2009 og tekst höfundurinn á við dótturmissinn í mörgum ljóðanna. Hann yrkir einnig um dýrðardaga bernskunnar í sveitinni; volga mjólk, Tímann, rauðan Farmal en líka fjarlæga staði; hægt klifur fjallarútu þar sem lífið er hvað lygnast í heiminum, systur við ólívutré, litla freknótta konu sem hnussar yfir gestum kaffihússins. Og menn sem komu fyrrum af hafi og konur sem komu af landi, að sagt var.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAfviknir staðir er áttunda ljóðabók Sigmundar Ernis en sú fyrsta kom út árið 1980. Bókin er 106 blaðsíður að lengd. Ólafur Unnar Kristjánsson hannaði kápu.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":13890035712058,"sku":"se3","price":1990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Afviknir-stadir-frontur-600x920.jpg?v=1534507267"},{"product_id":"amagnea","title":"Magnea","description":"Magnea Guðmundsdóttir hefur mætt margs kyns mótlæti í lífinu, reynt ýmislegt en ekkialátið neitt stöðva sig – hvorki barnamissi né annað andstreymi.\u003cbr\u003e Í ævisögu Magneu fáum við innsýn í veruleika þar sem líf og dauði fá nýja merkingu. Þetta er áhrifamikil saga móður sem fórnar öllu fyrir börnin sín í von um að dag einn geti þau lifað venjulegu lífi; saga konu sem sýnir hvernig hægt er að yfirstíga það sem virðist óyfirstíganlegt og þola það sem ekki verður þolað; þetta er saga sigurvegara sem gefst aldrei upp, sama hvað á dynur. \u003cbr\u003e Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar einstaka sögu Magneu Guðmundsdóttur; ógleymanlega ævisögu sem lætur engan ósnortinn.","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Innbundin","offer_id":13928769880122,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Kilja","offer_id":16095584321594,"sku":"","price":0.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/BJ-SE2-500x800.jpg?v=1534512664"},{"product_id":"gudni-af-lifi-og-sal","title":"Guðni – Af lífi og sál","description":"\u003carticle\u003e\n\u003cp\u003eGuðni Ágústsson hefur lifað dramatísku lífi. Hann ólst upp í frumstæðu bændasamfélagi en varð ráðherra á 21. öldinni, hann var feiminn piltur í Héraðsskólanum á Laugarvatni en varð einn vinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar; hann lenti í hringiðu mikils valdabrölts þar sem átti að koma honum út úr pólitík en stóð eftir sterkari en áður.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni Guðni – Af lífi og sál ræðir hann umbúðalaust um viðkvæm pólitísk deilumál liðinna ára, bæði innan Framsóknarflokksins og á vettvangi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar. Í henni er einnig fjallað um einkalíf Guðna, meðal annars sagðar skemmtilegar sögur frá uppreisn æskunnar á sjöunda áratugnum, greint frá kostulegum uppákomum í starfi hans sem þingmanns og ráðherra og dregnar upp lifandi myndir af uppvexti hans í sextán systkina hópi á Brúnastöðum um og upp úr miðri síðustu öld.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSigmundur Ernir Rúnarsson byggir bókina á samtölum sínum við Guðna og samferðamenn hans, birtum og áður óbirtum heimildum, meðal annars minnisblöðum Guðna, sem ekki hefur verið vitnað til áður.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHér leggur Guðni Ágústsson spilin á borðið og segir söguna eins og hún horfir við honum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSigmundur Ernir Rúnarsson á að baki glæstan feril sem rithöfundur og ljóðskáld. Þá er hann einn reyndasti fréttamaður landsins. Hann hefur sent frá sér margar ljóðabækur og má þar nefna Innbær útland (2002), Sögur af aldri og efa (2000) og Sjaldgæft fólk (1998). Þá skrifaði Sigmundur Ernir bókina Barn að eilífu (2004) þar sem hann fjallar um dóttur sína og baráttu hennar við óþekktan sjúkdóm og vakti hún þjóðarathygli. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAtli Már Hafsteinsson tók kápumynd af Guðna Ágústssyni en Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Eyjólfur Jónsson braut um en bókin er prentuð í Odda.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/article\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":14140849651770,"sku":"gá","price":2490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/images-1.jpg?v=1534509935"},{"product_id":"niu-lif","title":"Níu líf","description":"\u003cp\u003eÞað er vægast sagt ótrúlegt að einn og sami maðurinn skuli hafa lifað af hvert sjóslysið á fætur öðru, sloppið lifandi úr filippeysku fangelsi þar sem dauði og eymd eru daglegt brauð, þolað að týnast í brennheitri eyðimörk og bjargast fyrir tilviljun úr loftlausum skipstanki. Og þegar hann flutti loksins aftu rheim til Eyja byrjaði að gjósa í bakgarðinum hjá honum. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSaga Eyjapeyjans Gísla Steingrímssonra sýnir og sannar að veruleikinn getur verið lygilegri en nokkur skáldskapur. Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar sögu Gísla eins og honum einum er lagið; lesandinn sogast inn í magnþrungna og grípandi frásögnina og fylgir Gísla í gegnum hvern lífsháskann af öðrum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSprellfjörug ævintýrasaga!\u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":21564785590330,"sku":"se9","price":3999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Niu_lif_-_frontur.jpg?v=1542364461"},{"product_id":"skaldaleyfi","title":"Skáldaleyfi","description":"\u003cp\u003eUm þessar mundur eru fjörutíu ár síðan Sigmundur Ernir sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók en þær eru nú orðnar þrettán. Í Skáldaleyfi sýnir hann og sannar að þrátt fyrir að ljóð hans séu nú þroskaðri, dýpri og meitlaðri er alltaf stutt í lífsþyrsta unga ljóðskáldið.\u003cbr\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv title=\"Page 46\" class=\"page\"\u003e\n\u003cdiv class=\"layoutArea\"\u003e\n\u003cdiv class=\"column\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e„Skáldaleyfi Sigmundar Ernis Rúnarssonar er fengur fyrir ljóða- \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eunnendur. Hún hefur allt til að bera \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003esem góð ljóðabók á að hafa. Ljóðin eru hófstillt en meitluð. Þau kalla \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003etil lesandans í hógværð sinni. Miðla \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003ereynslu, lífssýn, tilfinningu og fegurð. Yndisleg bók.“ ⭐️\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e⭐️\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e⭐️\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e⭐️ Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Fréttablaðinu\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":32026699595834,"sku":"se10","price":2300.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Skaldaleyfi-frontur.jpg?v=1600958860"},{"product_id":"spitalastelpan","title":"Spítalastelpan","description":"\u003cp\u003eSpítalastelpan var hún kölluð stelpan sem veiktist af berklum í hrygg á Ströndum Norður og var fyrstu ár sín að mestu reyrð niður í rúm á Sjúkrahúsinu á Ísafirði. Hún byrjaði ekki að ganga fyrr en á sjöunda ári, sigldi heim þar sem faðir hennar var dáinn og móðirin búin að yfirgefa hana í huganum. En hún bjó yfir einstökum lífsþorsta og vongleði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppvaxtarsaga Sigurvinu Guðmundu Samúelsdóttur, Vinsýjar eins og hún er alltaf kölluð, er í senn sársaukafull og þrungin von og gleði yfir því smáa – en um leið er hún afhjúpandi um samfélag síðustu aldar. Vinsý þurfti oft að bíta á jaxlinn – en upplifði einnig djúpa hamingju og gleði.\u003c\/p\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42418418909384,"sku":"se11","price":3800.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/products\/Spitalastelpan-frontur.jpg?v=1667401588"},{"product_id":"nokkur-ord-um-notagildi-lifsins-og-adur-othekkt-ljod","title":"Nokkur orð um notagildi lífsins og áður óþekkt ljóð","description":"\u003cdiv class=\"book-description mb-5 bt-5 overflow-hidden\"\u003e\n\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÁleitin ljóðabók eftir eitt af okkar helstu skáldum.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eDóttur mína,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003edána\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003edreymir mig ekki veika,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ealdrei örkumla,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ehröra\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003een þannig er huganum\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003efarið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eí fastasvefninum\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003emildi hans\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003emáir burtu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003emiskunnarleysið,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eþjáninguna\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eþar til maður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003evaknar.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cblockquote class=\"medium citation\"\u003e\n\u003cp\u003e„„Hún hefur allt til að bera sem góð ljóðabók á að hafa. Ljóðin eru hófstillt en meitluð. Þau kalla til lesandans í hógværð sinni. Miðla reynslu, lífssýn, tilfinningu og fegurð. Yndisleg bók.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️\u003cbr\u003e“\u003c\/p\u003e\n\u003ccite\u003eÓlína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Fréttablaðinu (um Skáldaleyfi)\u003c\/cite\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003caside id=\"book-binding-types\" aria-labelledby=\"book-binding-types-heading\"\u003e\u003c\/aside\u003e","brand":"Sigmundur Ernir Rúnarsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44795222720712,"sku":"978-9935-30-414-8","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/NokkurordumnotagildilifsinsFrontur_jpg.jpg?v=1761325728"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/collections\/Sigmundur_Ernir_portrett.jpg?v=1530303640","url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/collections\/sigmundur-ernir-runarsson-1\/2017.oembed","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}