Úti
Ragnar Jónasson

Úti

Fullt verð 3.500 kr Tilboðsverð 6.000 kr

Óveðursnótt í nóvember.
Fjórir vinir leita skjóls í litlum veiðikofa uppi á heiði.
Margt er þó hættulegra en stórhríð um vetur.
Og ekki munu allir komast lífs af.


Ragnar Jónasson er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur samtímans.
Árið 2020 átti hann í einni og sömu vikunni þrjár bækur á
þýska bóksölulistanum sem er nánast óþekkt.
Verk hans hafa selst í milljónum eintaka um allan heim.
 
Hér sýnir Ragnar á sér nýja hlið í sannkölluðum sálfræðitrylli
sem heldur lesandanum á tánum allt til enda.

„... geirneglir lesandann frá fyrstu síðu. Engin leið að leggja bókina frá sér.“ Björn Þorláksson, Fréttablaðinu

⭐️⭐️⭐️⭐️ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu

„... minn tebolli ... Ragnari tekst mjög vel að draga upp ógnvekjandi andrúmsloft.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni

„Spennandi og vel unnin sakamálasaga.“ Steingerður Steinarsdóttir, Vikunni

„Ekkert skrítið að bóksalar hafi valið þessa sem eina af bestu skáldsögum ársins – flaug í gegnum hana.“ Sverrir Norland


Fleiri bækur