{"title":"2026","description":"","products":[{"product_id":"myrkravald","title":"Myrkravald","description":"\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003e„Við þurfum að ræða það sem gerðist í Lyon. Ég verð í sendiráðinu í kvöld.“\u003cspan class=\"Apple-converted-space\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eV\u003cspan class=\"A4\"\u003e\u003cspan\u003eera stefnir hraðbyri í að verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur en póstur frá franskri blaðakonu neyðir hana til að horfast í augu við örlagaríka atburði sem áttu sér stað fyrir nálega tveimur áratugum. Veröld hennar fer á hvolf þegar blaðakonan hnígur niður í móttöku í sendiherrabústaðnum með hörmulegum afleiðingum. Skömmu síðar birtist óvænt franskur rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík ... \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan class=\"A5\"\u003e\u003cspan\u003eEva Björg Ægisdóttir og Jérôme Loubry eru bæði margverðlaunuð fyrir glæpasögur sínar. Þau leggja hér saman krafta sína að undirlagi glæpasagnahátíðarinnar \u003ci\u003eQuais du polar \u003c\/i\u003eí Lyon en hana sækja yfir 100.000 manns ár hvert. Bókin kemur út samtímis á Íslandi og í Frakklandi.\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003e\u003cspan lang=\"EN-US\"\u003e„Ef þú hefur aldrei lesið bók eftir Evu Björgu er kominn tími til að bæta úr því þegar í stað.“ The Times \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003e\u003cspan lang=\"EN-US\"\u003e„Jérôme Loubry skrifar hér átakanlega og æsispennandi glæpasögu þar sem draugar fortíðarinnar birtast á hverri blaðsíðu.“ Le Parisien (um Le douzième chapitre)\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Eva Björg Ægisdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45025214398664,"sku":"ebaejl","price":4800.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Myrkravaldfrontur.jpg?v=1773827670"},{"product_id":"hinn-aedsti-leyndardomur","title":"Hinn æðsti leyndardómur","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan class=\"A0\"\u003e\u003cspan\u003eRobert Langdon er kominn til Prag til að vera viðstaddur byltingarkenndan fyrirlestur kærustu sinnar, Katherine Solomon, en hún er vísindamaður í fremstu röð. Katherine er í þann mund að senda frá sér bók sem hefur að geyma stórmerkilegar uppgötvanir hennar um eðli mannlegrar vitundar – uppgötvanir sem munu kollvarpa aldagamalli trú. \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan class=\"A0\"\u003e\u003cspan\u003eKatherine hverfur skyndilega þegar hrottalegt morð er framið og handrit hennar sömuleiðis. Og allt í einu er Langdon staddur í æsilegu kapphlaupi í dularheimum borgarinnar sem er gömul og viðsjárverð, þrungin þjóðsögum og leyndardómum. \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan class=\"A0\"\u003e\u003ci\u003e\u003cspan\u003eHinn æðsti leyndardómur \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"A0\"\u003e\u003cspan\u003eer æsispennandi tryllir þar sem Robert Langdon þarf að taka á öllu sínu til að glata ekki hverju því sem er honum kært.\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan class=\"A1\"\u003e\u003cspan\u003e„Ógjörningur að leggja hana frá sér.“ \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"A2\"\u003e\u003cspan\u003eTHE NEW YORK TIMES \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan class=\"A1\"\u003e\u003cspan\u003e„Eftir meistara hinnar snjöllu spennusögu með óvæntum vendingum.“ \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"A2\"\u003e\u003cspan\u003eLOS ANGELES TIMES \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan class=\"A1\"\u003e\u003cspan\u003e„Fyrir alla sem vilja meiri heilaleikfimi en spennusögur hafa almennt upp á að bjóða.“ \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan class=\"A2\"\u003e\u003cspan\u003eSUNDAY TIMES\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Dan Brown","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45026035925192,"sku":"db10","price":4800.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Hinn_aedsti_leyndardomur_FRONT_jpg.jpg?v=1773828108"},{"product_id":"islensk-ondvegisljod-1","title":"Íslensk öndvegisljóð","description":"\u003cp\u003eGullöld íslenskrar ljóðagerðar má segja að hefjist á 17. öld, eftir að Hallgrímur Pétursson kom fram, og rís svo í hæstu hæðir á miðri 19. öld í kjölfar rómantísku stefnunnar með Jónas Hallgrímsson í broddi fylkingar. Næstu hundrað ár á eftir er ljóðlistin það bókmenntaform sem skáld nota framar öðru til þess að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og lífsviðhorf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessa glæsilegu bók hefur verið safnað saman ýmsum þeirra ljóða sem hæst ber á þessu blómaskeiði, eftir ástsælustu skáld þjóðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMörg ljóða bókarinnar, sem Páll Valsson hefur valið, eru einhver dýrmætasti menningararfur sem íslenska þjóðin á.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍslensk öndvegisljóð er hönnuð af Ragnari Helga Ólafssyni og er kjörgripur öllum þeim er unna góðum skáldskap.\u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur \u0026 Veröld","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45078299214024,"sku":"ljóð","price":7500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/21Islenskondvegisljod.jpg?v=1778147939"},{"product_id":"islenskar-thjodsogur","title":"Íslenskar þjóðsögur","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan\u003eÞjóðsögur eru einhver dýrasti arfur hverrar þjóðar. Þær veita einstaka innsýn í hugarheim genginna kynslóða, líf þeirra, reynslu og örlög, trú og hjátrú. Þar birtist okkur að auki kynjaveröld hins dulúðuga og yfirnáttúrulega. Í þessari áhugaverðu bók er að finna ýmsar af þekktustu þjóðsögum Íslendinga, um álfa og huldufólk, drauga og galdramenn, tröll og útilegumenn, svo fátt eitt sé nefnt. Íslenskar þjóðsögur hefur að geyma úrval úr einstæðum sagnabrunni; sögurnar eru fjársjóður sem þjóðinni hefur áskotnast í aldanna rás og gera þarf aðgengilegar fyrir hverja nýja kynslóð.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur \u0026 Veröld","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45078301442248,"sku":"þjóð","price":7500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Islenskarthjodsogur.jpg?v=1778148201"},{"product_id":"islandische-geistergeschichten","title":"Isländische Geistergeschichten","description":"\u003cp\u003eSeit Jahrhunderten treiben Geister ihr Unwesen auf Island und verbreiten Angst und Schrecken. Sie haben furchtbare Gräueltaten begangen, sowohl in den beengten Torfhäusern als auch draußen in der Kälte und Finsternis der gnadenlosen Natur. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIn diesem Band sind die bekanntesten und eindrucksvollsten Geistergeschichten aus dem isländischen Volkssagenschatz versammelt. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eACHTUNG: GÄNSEHAUTGEFAHR!\u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur \u0026 Veröld","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45119297388744,"sku":"draugaþ","price":3000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/IslenskarDraugasogur_KAPA_ThYSK_FRONT_jpg.jpg?v=1781774184"},{"product_id":"icelandic-ghost-stories-1","title":"Icelandic Ghost Stories","description":"\u003cp\u003eThe presence of ghosts has been strong in Iceland throughout the centuries, causing fear and panic among the people. In the thick darkness and cold of Icelandic winters, ghosts have committed horrendous atrocities, both in the small and cramped houses and out in the harshness of the wild. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHere you will find the best known and most compelling ghost stories from Icelandic folktale collections. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBE AFRAID, VERY AFRAID!   \u003c\/p\u003e","brand":"Bjartur \u0026 Veröld","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45119297618120,"sku":"draugae","price":3000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/IslenskarDraugasogur_KAPA_ENSK_FRONT_jpg.jpg?v=1781774881"},{"product_id":"hladan-thankar-til-framtidar-1","title":"Hlaðan – Þankar til framtíðar","description":"\u003cp\u003eBergsveinn Birgisson ákveður að endurbyggja hlöðu forfeðra sinna á Ströndum sem er komin að hruni. Það fær hann til þess að hugsa um heiminn og stöðu mannsins í honum. Hann fer að skrifa bréf til dóttur sinnar, rifjar upp hugmyndir manna í fortíðinni um hvernig best sé að haga lífinu, um leið og hann tekst á við hin daglegu verkefni við endursmíð hlöðunnar, og freistar þess sömuleiðis að horfa til framtíðar. Þá fléttast Strandamenn, lífs og liðnir, inn í frásögnina, sumir koma í heimsókn en aðrir rétta hjálparhönd. Útkoman verður því ferðalag um tíma og rúm, andlegt sem raunverulegt, í bók sem er engri annarri lík. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBergsveinn Birgisson er einn vinsælasti og virtasti rithöfundur landsins og bækur hans koma út um allan heim. Meðal þeirra má nefna verðlaunabækurnar Leitin að svarta víkingnum, Þor­ móður Torfason, Landslag er aldrei asnalegt og Svar við bréfi Helgu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Stórmerkileg bók um afar hraða og afdrifaríka samfélagsþróun og enginn ætti að láta fram hjá sér fljóta ólesna, einkar lipurlega skrifuð.“ Sölvi Sveinsson, Morgunblaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Las af áfergju, skrifað af yfirvegun og ekki predik­ andi, hugsa að ég lesi ekki bók sem hefur meiri áhrif á mig í ár en þessi.“ Sverrir Norland, Kiljan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Rosalega skemmtilegur leiðangur.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Bókin er skrifuð af miklu mannviti og fádæma yfirsýn eins og vænta mátti, alvarleg tilraun um manninn, leit að mennskunni og því hvernig má á ný tjasla því saman sem brotið er og sundrað.“ Guðmundur Andri Thorsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Tvímælalaust áhugaverðasta bók þessa hausts.“ Þröstur Helgason, Bændablaðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Bók sem á erindi við okkur öll ... óskandi væri að allir ráðamenn þjóðarinnar fengju þessa bók og læsu.“ Gauti Kristmannsson, Rúv\u003c\/p\u003e","brand":"Bergsveinn Birgisson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45119299518664,"sku":"bb10k","price":5500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/HLADANkilja2026FRAMAN.jpg?v=1781775348"},{"product_id":"sagan-hefst-her","title":"Sagan hefst hér","description":"\u003cp\u003eSagan hefst hér – hjá Ben Foley. Hann er rekinn úr alþjóðlega menntaskólanum í Strassborg. Hann fer heim til sín með skottið á milli lappanna en þá eru foreldrar hans horfnir, blóð á eldhússkápnum og hans bíður miði með undarlegum skilaboðum frá móður hans sem lýkur á: Ekki hringja á lögregluna! \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBen veit ekki sitt rjúkandi ráð, hefur engan til að leita til og engan sem hann getur treyst. Til að bæta gráu ofan á svart er hann grunaður um að hafa myrt foreldra sína. Þeir sem eiga sök á því eru núna á eftir honum og vilja fá eitthvað sem hann hefur í fórum sínum. Ben veit aftur á móti ekki hvað það er. Það eina sem hann veit er að foreldrar hans voru ekki það fólk sem hann hélt að þau væru. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKevin Wignall hefur skrifað fjölmargar spennusögur sem selst hafa í milljónum eintaka. Sagan hefst hér er fyrsta bók hans sem kemur út á íslensku.  \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Frábær spennutryllir sem ég mæli sannarlega með; hröð atburðarás, áhugaverðar persónur og óvæntar vendingar.“ Yrsa Sigurðardóttir\u003c\/p\u003e","brand":"Kevin Wignall","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45119300141256,"sku":"kw","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/SaganhefstherFRAMAN_jpg.jpg?v=1781775787"},{"product_id":"ferdalok-skyrsla-handa-akademiu","title":"Ferðalok. Skýrsla handa akademíu","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eLaust eftir síðustu aldamót sá íslenskur bókmenntafræðingur fyrir sér að líkamsleifarnar sem hvíla í gröf Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum yrðu sendar til DNA-greiningar á danskri rannsóknarstofu. Hann samdi ótímabæra skýrslu til að tryggja að erfðafræðingurinn, sem annast myndi rannsóknina, gæti glöggvað sig á viðfangsefninu. Að baki bjó djúpstæð löngun höfundar til að fá botn í íslenska þjóðarsál. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eÍ tilefni þess að galgopalegur spádómur Jóns Karls Helgasonar gæti bráðlega ræst birtist skáldfræðirit hans Ferðalok. Skýrsla handa akademíu hér í nýrri útgáfu. En hvatki er missagt er í fræðum þessum þá er skylt að hafa það heldur er sannara reynist. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„Ferðalok er í raun og veru nokkurskonar falsfræðibók: Það er fræðibók sem ertir lesandann og gerir grín að honum og skilur hann eftir í óvissu um hvað hann eigi að halda og hvers hann hafi orðið vísari. Það má til sanns vegar færa að fá umfjöllunarefni eru jafnvel fallin til slíkrar meðhöndlunar og hið fræga beinamál og öll heimferð Jónasar Hallgríms sonar eftir heila öld í danskri mold — eða staðgengils hans.“ Jón Ólafsson, Ritið \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„Hér er því á ferðinni skáldfræðirit af bestu gerð. Með því að velja þetta form á umfjöll un sína kemur höfundur sér fyrir í írónískri fjarlægð og jafnvel yfirborðshlutleysi. Eigi að síður kemur hann lymskulega að þeim viðhorfum að í reynd snúist beinamál Jónasar meira um þátttakendurna og þörf þeirra til að baða sig í ljósi skáldsins.“ Skapti Þ. Halldórsson, Morgunblaðið  \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eJón Karl Helgason er bókmenntafræðingur. Meðal rita hans um íslenska menningarsögu seinni alda eru Hetjan og höfundurinn (1998), Ferðalok (2003), Mynd af Ragnari í Smára (2009), Ódáinsakur (2013) og Sögusagnir (2020).  \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Jón Karl Helgason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45132172787912,"sku":"jkh3","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/FerdalokFRAMAN_70__jpg.jpg?v=1783330709"},{"product_id":"flaerdarsol-odur-til-daudans","title":"Flærðarsól – Óður til dauðans","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„...fortíðarminnið er þeirrar náttúru að það flysjast utan af því með árunum og gamlar minningar skapast upp á nýtt um sama atburð, samtal, upplifun sem eitt sinn var. Þess vegna urðum vér fjölradda og þess vegna er það margsaga sem á eftir fer, þess vegna kemur saga á eftir sögu innan úr öðrum sögum rétt eins og þær bylta sér og uppljómast.“\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eÚlfar Þormóðsson var djúpt sokkinn í að setja saman marglaga minningar þegar hann var skyndilega úrskurðaður dauðvona. Það bætti nýrri vídd við verkið – lífið breytist þegar dauðinn er afhjúpaður þar sem hann liggur í leyni.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eÚlfar úrskurðaði sig meira lifandi en dauðvona og hélt sínu daglega lífi áfram með dauðann sem ferðafélaga. Það glæðir þessa óvenjulegu bók lífi – en hún er um leið óður til dauðans.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eEftir Úlfar liggja fjöldamargar bækur af ýmsum toga. Flærðasól er líklega síðasta bók Úlfars.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfar Þormóðsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45143772070088,"sku":"ulf11","price":4800.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Flaerdarsol_KAPA_FRONT_jpg.jpg?v=1784284334"},{"product_id":"kistan-og-fleiri-sogur","title":"Kistan – og fleiri sögur","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eKistan — og fleiri sögur hefur að geyma safn smásagna eftir Ragnar Jónasson og kemur út í tilefni af stórafmæli hans. Sögurnar átján hafa orðið til á löngum tíma og skrifaðar af ýmsum tilefnum. Allar hafa þær birst erlendis og um helmingur á íslensku í blöðum og tímaritum. Tvær af sögunum skrifaði Ragnar í samstarfi við aðra, Yrsu Sigurðardóttur og Víking Heiðar Ólafsson.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003eTitilsagan Kistan var tilnefnd til Gullrýtingsins sem besta glæpasmásaga ársins 2026 í Bretlandi. Sögurnar draga vel fram helstu styrkleika Ragnars sem rithöfundar og ráðgátumeistarinn fer á kostum í knöppum sögum með óvæntum endalokum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„Jólin koma snemma í ár.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðið\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„Heimsklassa glæpasagnahöfundur.“ Sunday Times\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„Enginn venjulegur rithöfundur.“ The Times\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e„Einhver besti glæpasagnahöfundur heims nú um stundir.“ Daily Mail\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Ragnar Jónasson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45145028755656,"sku":"rj18","price":4800.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/KistanFRAMAN.jpg?v=1784536726"},{"product_id":"harry-potter-og-blendingsprinsinn-myndskreytt","title":"Harry Potter og blendingsprinsinn - myndskreytt","description":"\u003cp\u003eStórglæsileg myndskreytt útgáfa af sjöttu bókinni í ritröðinni um Harry Potter, stútfull af töfrum úr pensli Levi Pinfold.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þarna sveif það uppi á himninum fyrir ofan skólann; skærgræn hauskúpan með höggormstungunni, merki dráparanna sem þeir skildu eftir sig þar sem þeir höfðu komið … þegar þeir höfðu myrt …”\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar Dumbledore kemur á Runnaflöt eitt sumarkvöldið til að sækja Harry Potter er hönd hans svört og skrælnuð en hann segir ekki af hverju. Leyndarmál og tortryggni breiðast út um galdraheiminn og Hogwartskóli sjálfur er ekki öruggur. Harry er sannfærður um að Malfoy sé með myrkratáknið: það er drápari á meðal þeirra. Harry þarf á kröftugum göldrum og sönnum vinum að halda þegar hann kannar myrkustu leyndarmál Voldemorts og Dumbledore undirbýr hann undir að mæta örlögum sínum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Myndskreytingar Levi Pinfold eru heillandi. Hann er afar hæfileikaríkur listamaður sem hefur endurskapað heim Harry Potter á einstakan og dásamlegan hátt.“ J.K. Rowling\u003c\/p\u003e","brand":"J.K. Rowling","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45209211175112,"sku":"hp6m","price":10400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/HP6_Blendingspr_myndskr_ISL_FRONT.jpg?v=1788950532"},{"product_id":"potterkverin-ron-weasly-litlu-leidarvisarnir-um-sogurnar-eftir-j-k-rowling","title":"Potterkverin – Ron Weasly. Litlu leiðarvísarnir um sögurnar eftir J.K. Rowling","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHvað á Ron marga eldri bræður? Hvar býr Weasley-fjölskyldan og hvernig afdvergar þú garð? Lærðu allt þetta og miklu meira um Ron Weasley!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003ePotterkverin eru ritröð lítilla leiðarvísa um sögurnar um Harry Potter. Vertu klár í Weasley-grín, íþróttir galdramanna, hátíðir í Hogwarts og fullt af ógleymanlegum gæludýrum ... Töfrar og hrekkjabrögð bíða þín í þessari bók.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"J.K. Rowling","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45228556452040,"sku":"hppron","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/PK_Ron_Weasley_FRONT_C_OK.jpg?v=1791291215"},{"product_id":"potterkverin-hermione-granger-litlu-leidarvisarnir-um-sogurnar-eftir-j-k-rowling","title":"Potterkverin – Hermione Granger. Litlu leiðarvísarnir um sögurnar eftir J.K. Rowling","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHvert er uppáhaldsnámsefni Hermione? Hvernig urðu hún, Ron og Harry vinir og hvernig lyktar Fjallatröll? Lærðu allt þetta og miklu meira um Hermione Granger!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003ePotterkverin eru ritröð lítilla leiðarvísa um sögurnar um Harry Potter. Búðu þig undir sérstaka töfragripi, galdra, töfradrykki, og fullt af heimavistarstigum til Gryffindor ... Töfrar og hrekkjabrögð bíða þín í þessari bók.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"J.K. Rowling","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45228556681416,"sku":"hppher","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/PK_Hermione_Granger_ISL_FRONT_C_OK.jpg?v=1791291395"},{"product_id":"potterkverin-harry-potter-litlu-leidarvisarnir-um-sogurnar-eftir-j-k-rowling","title":"Potterkverin – Harry Potter. Litlu leiðarvísarnir um sögurnar eftir J.K. Rowling","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHvað var Harry gamall þegar hann byrjaði í Hogwarts? Hver gaf honum Ræningjakortið og hversu stór er Gullna eldingin? Lærðu allt þetta og meira um Harry Potter!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003ePotterkverin eru ritröð lítilla leiðarvísa um sögurnar um Harry Potter. Búðu þig undir ævintýri með drekum, æsispennandi Quidditch-leiki, leynileg aðgangsorð og töfrasprota frá Ollivander. Töfrar og hrekkjabrögð bíða þín í þessari bók.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"J.K. Rowling","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45228558123208,"sku":"hpphp","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/PK_Harry_Potter_ISL_FRONT_C_OK.jpg?v=1791291554"},{"product_id":"loi-draumarnir-raetast","title":"Lói - Draumarnir rætast","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eLói verður eftir þegar mamma hans og langbesti vinur hans, Lóa, fljúga til heitu landanna að hausti. Til þess að lifa veturinn af verður hann að komast á Paradísarvelli þar sem er alltaf hlýtt – og skjól fyrir illfyglinu Skugga. Það gengur þó ekki þrautalaust því að hann þarf að takast á við vetrarstorma og margvíslegar hættur á leiðinni.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eBækurnar um Lóa eru byggðar á íslensku kvikmyndinni Lói – þú flýgur aldrei einnsem hefur farið sigurför um heiminn. Framhaldsmyndin, Lóa – goðsögn vindanna, er væntanleg í kvikmyndahús árið 2027\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Bjartur \u0026 Veröld","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45228560187592,"sku":"loi3","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Loi.jpg?v=1791292076"},{"product_id":"falmandi-hendur-i-fjoru","title":"Fálmandi hendur í fjöru","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eBjarni M. Bjarnason hefur sent frá sér á þriðja tug bóka og hafa þær meðal annars hafa komið út á færeysku, arabísku, þýsku og ensku. Verk hans eru margverðlaunuð og nú síðast var \u003cem\u003eDúnstúlkan í þokunni\u003c\/em\u003etilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÓþreytandi öldurnar,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eeins og verið sé að hrista sæng í fjörunni,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003etil að breiða hana yfir rúmið,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eþað bara tekst ekki,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eog þess vegna er reynt aftur,\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eog aftur\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Bjarni M. Bjarnason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45228560941256,"sku":"bjarni4","price":5500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/FalmandihendurifjoruFRAMAN.jpg?v=1791292267"},{"product_id":"jorunn-vidar-aevisaga","title":"Jórunn Viðar – ævisaga","description":"\u003cdiv class=\"book-description mb-5 bt-5 overflow-hidden\"\u003e\n\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eJórunn Viðar var fyrsta íslenska konan sem sótti háskólamenntun í tónsmíðum, hún braut blað sem tónskáld og átti glæstan feril sem píanóleikari. Þó var henni margt mótdrægt. Viðtökur á verkum hennar lituðust oft af því að hún var kona og í hjónabandinu fann hún sjaldan þá hvatningu eða skilning sem hefði getað fleytt henni lengra á listabrautinni.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eJórunn Viðar var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi á 20. öld. Hér er saga hennar sögð í fyrsta sinn og byggir Árni Heimir Ingólfsson verkið að miklum hluta á óprentuðum gögnum sem aldrei hefur verið vitnað til áður, meðal annars fjölda sendibréfa. Fjallað er um æskuárin í Reykjavík, námsár í Berlín rétt fyrir síðari heimsstyrjöld og í New York á stríðsárunum og þá glímu sem við tók eftir að heim til Íslands var komið. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem hvergi hafa birst opinberlega.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁrni Heimir Ingólfsson er tónlistarfræðingur og píanóleikari. Hann hefur þrívegis verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir verk sín og sömuleiðis í þrígang verið tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eJórunn Viðar – ævisaga er tímamótaverk um eina af merkustu tónlistarkonum Íslands á 20. öld.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003caside id=\"book-binding-types\"\u003e\u003c\/aside\u003e","brand":"Árni Heimir Ingólfsson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45228561170632,"sku":"ahi2","price":7500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/JorunnVidarFRAMAN_jpg.jpg?v=1791292381"},{"product_id":"uppreisn-skordyranna","title":"Uppreisn skordýranna","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eKata könguló, Gummi geitungur, Flosi fiðrildi, Margeir maur og öll skordýrin vinir þeirra eru orðin þreytt á því hvað mennirnir eru grimmir og tillitslausir. Þeir kremja skordýrin og kasta í klósett, ryksuga og sprauta á þau eitri. Loks ákveða skordýrin að gera uppreisn og flytja til Surtseyjar. Hvað skyldi þá verða um mannfólkið?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eBráðskemmtileg og fróðleg bók um heim skordýranna með óvenjulegum og fallegum teikningum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNanna Hlíf Ingvadóttir er tónlistarkennari. Edda Liv Guðmundsdóttir teiknar myndir í bókina.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Nanna Hlíf Yngvadóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45231424831688,"sku":"nanna","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/UppreisnskordyrannaFRAMAN.jpg?v=1791885953"},{"product_id":"thad-kemur-alltaf-nyr-skafl-i-fjallid","title":"Það kemur alltaf nýr skafl í fjallið","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eEyþór Árnason hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabók sína árið 2009. \u003cem\u003eÞað kemur alltaf nýr skafl í fjallið\u003c\/em\u003eer áttunda ljóðabók hans.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eÍ glugganum stendur\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ehvít símakúla sem Jónas frá Hriflu skrúfaði í\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ebaðstofuþilið á bænum í heiðinni\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg held að búálfurinn\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ehafi fylgt með kúlunni suður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eþví þegar ég legg eyrað að postulíninu\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eheyrist stundum í honum tuðið\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg segi honum að hafa sig hægan\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eog bið ömmu afsökunar á að liggja\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eá línunni enda sé ég bara\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eað forvitnast um sprettu í grasaheiðinni\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Eyþór Árnason","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45231425192136,"sku":"ea6","price":5500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/ThadkemuralltafnyrskaflifjallidFRAMAN.jpg?v=1791886219"},{"product_id":"mei-mei-kanina","title":"Mei Mei kanína","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eBókin sem fór metsölulista The New York Times! Mei\u003c\/strong\u003e Mei er lítil kanína með stóra drauma. Hún vill gleðja heiminn með tónlist sinni! Fyrstu tónleikarnir hennar í Hopperuhúsinu nálgast og hún hefur æft sig meira en nokkur kanína nokkru sinni. En fiðrildin í maganum flögra um og trufla hana. Hvað gerir kanína þegar röng nóta bergmálar um Hopperuhúsið?\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eGRAMMY-verðlaunahafinn og tónlistarkonan Laufey skrifar hér, í fyrstu bók sinni, töfrandi sögu um að sigrast á mistökum. Bókin er skreytt frábærum teikningum eftir Lauren O’Hara.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Laufey Lín","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45231425749192,"sku":"laufey","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/MeiMei_kanina_ISL_FRONT.jpg?v=1791886436"},{"product_id":"fiasol-i-tomu-tjoni","title":"Fíasól í tómu tjóni","description":"\u003cdiv class=\"book-description mb-5 bt-5 overflow-hidden\"\u003e\n\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eNú er Fíasól í tómu tjóni. Ingólfur Gaukur nennir ekki að hanga með henni. Amma Gógó og Afi Donni aflýsa jólunum og æða til Tenerife og Fíasól og fjölskylda elta. Glæpsamlegir atburðir eiga sér stað í Skrímslagarðinum. Fíasól gerist spæjari, tekur málin í sínar hendur og flýgur yfir skynsemismörkin.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eHún glímir við hættur, lygar, sorgir og svik og líka gleði og hugrekki sem hún á nóg af.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er níunda bókin um hina heimsfrægu Fíusól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Sem fyrr teiknar listamaðurinn Halldór Baldursson veröld Fíusólar og bókaverðlaunaslóðin er löng á eftir þeim öllum!\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003caside id=\"book-binding-types\"\u003e\u003c\/aside\u003e","brand":"Kristín Helga Gunnarsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45231426044104,"sku":"khg12","price":5000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/FiasolitomutjoniFRAMAN.jpg?v=1791886603"},{"product_id":"svartakof","title":"Svartakóf","description":"\u003cdiv id=\"book_description\"\u003e\n\u003cp\u003eLögreglumaðurinn Helgi Reykdal er á leið á Litla-Hraun ásamt tveimur kollegum. Framundan er mesta raun sem hann hefur ratað í. Um leið syrgir hann dauða Anítu, unnustu sinnar, sem Bergþóra, fyrrum sambýliskona hans, varð völd að. Og samhliða reynir hann að grafast fyrir um hvað varð um forvera hans í starfi – Huldu Hermannsdóttur.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv id=\"book_long_description\"\u003e\n\u003cp\u003eSvartakóf er margbrotin glæpasaga eftir ráðgátumeistarann Ragnar Jónasson. Bækur Ragnars koma út um víða veröld, hafa selst í milljónum eintaka og hlotið margvísleg verðlaun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRagnar fer hér á kostum í frábærlega fléttaðri glæpasögu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Svartakóf ríghélt mér allt til enda.“ Atnhony Horowitz\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"Ragnar Jónasson","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45231537455304,"sku":"rj19","price":7000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Svartakof.jpg?v=1791905249"},{"product_id":"ljosfadir","title":"Ljósfaðir","description":"\u003cp\u003eJónas í Hróarsdal í Skagafirði var bóndi, yfirsetumaður og hafði auk þess formlegt leyfi til lækninga þótt sjálfmenntaður væri. Til hans lá straumur sjúkra, lemstraðra og þunglyndra sem dvöldu á heimilinu í von um bata – sumir lengi. Rúmföstum gömlum manni er honum í mun að miðla þekkingu sinni til þriðju eiginkonunnar, Lilju. Hún sinnir lækningunum með honum og annast að mestu hinn misleita hóp sjúklinga, auk þess að stýra búinu. En viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi, Jónas yngri, tvídklæddur og „myndarlegri en djöfullinn sjálfur“ kemur til dvalar í Hróarsdal – og erfiðar spurningar um tilvist, sekt og ábyrgð verða ekki lengur umflúnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðrún Eva Mínervudóttir hefur hér skrifað áhrifamikla skáldsögu sem er „fleytifull af sannleika, hundrað ára gömlum hviksögum, munnmælum, staðreyndum og söguburði“ eins og hún orðar það í eftirmála. Guðrún Eva er í fremstu röð íslenskra rithöfunda, síðasta bók hennar, Í skugga trjánna, var hlaðin lofi og varð ein mest selda bók ársins 2024.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„JÓNAS JÓNSSON. HANN EIGNAÐIST 33 BÖRN MEÐ ÞREMUR KONUM. EN HANN VAR LÍKA LJÓSFAÐIR SEM HJÁLPAÐI MÖRG HUNDRUÐ BÖRNUM Í HEIMINN. LANGALANGALANGAFI MINN.“ Í skugga trjánna, Guðrún Eva Mínervudóttir (2024).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Enn einu sinni sannar Guðrún Eva sig sem einn besti stílisti landsins ... ein magnaðasta bók síðari ára.“ MENNINGARVEFUR RÚV\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e„Þetta er svo vel skrifað og af mannskilningi og visku.“ EGILL HELGASON, KILJUNNI\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Eva Mínervudóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45233340317896,"sku":"gem11","price":7000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Ljosfadir.jpg?v=1792097080"},{"product_id":"marrid-i-stiganum-ny-utgafa","title":"Marrið í stiganum - ný útgáfa","description":"\u003cp\u003eEva Björg Ægisdóttir sló í gegn bæði heima og erlendis með sinni fyrstu bók, Marrið í stiganum. Bókin hlaut meðal annars Gullrýtinginn í Bretlandi sem frumraun ársins. Sagan er nú endurútgefin í tilefni af sjónvarpsþáttaröðinni Elma. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUng kona finnst myrt í fjörunni við Akranes. Hin látna reynist hafa búið sem barn í bænum en flutti skyndilega burt ásamt móður sinni. Lögreglukonan Elma, sem er nýflutt á Skagann, rannsakar málið ásamt samstarfsmönnum sínum. Upp á yfirborðið koma ýmis skuggaleg mál úr fortíðinni en Elma þarf líka að takast á við atburði í eigin lífi sem hröktu hana aftur heim á æskuslóðirnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Eva Björg Ægisdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45233347789000,"sku":"ebaetv","price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0028\/8787\/6666\/files\/Marrid_i_stiganum_TV_KAPA_FRONT.jpg?v=1792097477"}],"url":"https:\/\/bjartur-verold.is\/collections\/2026.oembed?page=2","provider":"Bjartur \u0026 Veröld","version":"1.0","type":"link"}